Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 18
FRÉTTIR Innlent18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Suðurlandsbraut 52 Sími 533 6050 www.hofdi.is Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Starfsfólk Höfða fasteignasölu um tvo daga að undirbúa borgar- stjórnarfund enda þarf að senda út gögn fundarins með tveggja daga fyrirvara. Með þessari ákvörðun er reynt að horfa til þess að sú undir- búningsvinna lendi ekki á rauðum dögum eða inni í jólafríum. Það er ómaklegt af borgarfulltrúum Sjálf- stæðisflokks að saka borgarfulltrúa um vinnuleti að vilja líta til þessara sjónarmiða um vinnuaðstæður starfsfólks og fulltrúum Sjálfstæð- isflokks til minnkunar að gefa sér að slíkt liggi að baki.“ Enginn þrýstingur Borgarfulltrúarnir þrír lögðu fram svohljóðandi gagnbókun: „Enginn starfsmaður Reykjavíkurborgar hefur reynt að beita undirrituð þrýstingi í því skyni að knýja fram að borgarstjórnarfundur 3. janúar félli niður. Hins vegar hafa nokkr- ir borgarfulltrúar beitt þrýstingi í þessu skyni.“ „vorkenni“ sjálfum sér að þurfa að mæta á fund. Tillagan um að fella niður þennan borgarstjórnarfund tekur mið af starfsaðstæðum þess starfsfólks sem undirbýr borgar- stjórnarfundinn. Að jafnaði tekur Tillaga um að fella niður reglulegan fund borgarstjórnar Reykjavíkur þriðjudaginn 3. janúar 2023 náði ekki fram að ganga þar sem hún var ekki samþykkt mótatkvæðalaust. Því verður fundur haldinn í borg- arstjórn þennan dag. Tillagan var borin upp til atkvæða á síðasta fundi borgarstjórnar fyr- ir jól, 20. desember. Með tillögunni greiddu atkvæði sextán borgarfull- trúar Samfylkingarinnar, Fram- sóknar, Pírata, Sósíalistaflokks Ís- lands, Viðreisnar, Flokks fólksins og Vinstri-grænna gegn þremur atkvæðum borgarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins. Þrír fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins sátu hjá. Í 2. málsgrein 14. greinar sveit- arstjórnarlaganna segir að sveitar- stjórn sé heimilt að fella niður reglu- legan fund sinn, enda sé tillaga um slíkt samþykkt mótatkvæðalaust á næsta fundi sveitarstjórnar á und- an. Í kjölfar atkvæðagreiðslunnar var farið að bóka um málið á borg- arstjórnarfundinum og er óhætt að segja að þar hafi andi jólanna ekki svifið yfir vötnum. Borgarfulltrúarnir þrír, sem greiddu atkvæði gegn tillögunni, Kjartan Magnússon, Jórunn Pála Jónasdóttir og Þorkell Sigurlaugs- son, lögðu fram svohljóðandi bók- un: Ekki vorkunn að mæta „Vandséð er að virða þurfi borg- arfulltrúum það til vorkunnar, þótt þeir mæti til vinnu þriðjudaginn 3. janúar eins og annað launafólk.“ Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar lögðu fram svohljóðandi gagnbók- un: „Það er undarlegt að borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins fullyrði að borgarfulltrúar meirihlutans lÞrír borgarfulltrúar felldu tillögu um að fresta fyrsta fundinum á nýju árilSkilyrði samkvæmt lög- um að tillagan yrði samþykkt mótatkvæðalaustlHarðorðar bókanir voru lagðar fram í borgarstjórn Vildu ekki fella niður fundinn Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Borgarstjórnarfundur Fyrsti fundur ársins 2023 verður haldinn 3. janúar. Íslensku fiskiskipin hafa siglt til hafnar hvert af öðru undanfarna daga. Það er kærkomið fyrir sjómennina að eyða jólun- um með fjölskyldum sínum. Gamla höfnin í Reykjavík er að fyllast og það er tilkomu- mikil sjón að sjá þau prýdd jólaljósum þegar skyggja tekur. Ekki skemmir fyrir að veðrið hefur verið stillt, en kalt. Er ástæða til að hvetja fólk til að renna niður að höfn og virða fyrir sér dýrðina. Eftir jólin halda sum skipanna til veiða á ný og önnur halda til veiða á nýju ári. Ljósum prýdd fiskiskipin fylla Gömlu höfnina yfir hátíðarnar Ljósmynd/Sigurður Jökull Nýr framkvæmda- stjóri Samorku Finnur Beck hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Samorku, samtaka orku- og veitufyrir- tækja, og tek- ur við starfinu af Páli Erland. Finnur hefur verið forstöðumaður málefna- starfs hjá Samorku frá miðju ári 2021. Þar áður starfaði hann sem lögfræðingur HS Orku hf. frá árinu 2015 til 2020 og var um tíma settur forstjóri félagsins. Finnur hefur m.a. starfað sem héraðsdómslögmaður hjá Landslögum og sinnt stundakennslu í lögfræði við Háskólann í Reykjavík á sviði fjármunaréttar, stjórnskip- unarréttar og alþjóðlegs og evrópsks orkuréttar. Aðildarfélög Samorku eru rúmlega 50 talsins. Innan samtakanna starfa fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raf- orkuframleiðendur, raforkusal- ar og flutnings- og dreifingar- fyrirtæki raforku. Finnur Beck Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.