Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 20
FRÉTTIR
Innlent20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Húsavík er vaxandi bær og þar
hefur fólki fjölgað undanfarið. Ýmis
þjónusta hefur hins vegar breyst og
ekki þótti gott þegar Húsasmiðjan
lokaði verslun sinni í fyrra. Nú í des-
ember lokaði Bústólpi sinni afgreiðslu
og eru bæði þessi fyrirtæki orðin að
pöntunarfélögum. Það hefði einhvern
tímann þótt tíðindi að ekki væri hægt
að kaupa hænsnakorn á Húsavík. Svo
á einnig við um ýmsa smávöru sem
tengist landbúnaði. Þjónusta Póstsins
hefur líka breyst og nú er einungis
keyrt í sveitirnar tvisvar í viku. Þegar
falla út dagar t.d. vegna veðurs eru
ekki settir inn neinir aukadagar
þannig að stundum kemur pósturinn
bara einu sinni í viku. Þá koma mörg
Morgunblöð í póstkassann. Svo mörg
að þau komast varla fyrir.
Mýs hafa sótt heim að híbýlum
manna nú í haust sem aldrei fyrr.
Mikill músagangur við bæjarhús hefur
einkennt síðustu vikur og stundum
valda þær tjóni á heyrúllum. Hvort
þær hafa vitað um vetrarkuldann skal
ósagt látið en stundum er það svo.
Allavega hafa þær undirbúið sig vel,
því víða má sjá músarholur með ýmsu
matarkyns sem þær hafa sankað að
sér og matarbirgðir þeirra virðast í
meira lagi þetta haustið.
Mannlífið hefur tekið breytingum
og margt fólk af erlendum uppruna
starfar á svæðinu. Við afgreiðslu-
borðin í verslunum á Húsavík þarf oft
að tala ensku enda vinna þar margir
sem ekki kunna tölurnar á íslensku.
Í samtölum við það fólk hefur komið
fram að það vill gjarnan læra tungu-
málið. Fyrirtækin eru samt ekkert
að bjóðast til þess að kosta fólk á
námskeið. Þetta kemur sér ekki alltaf
vel því fullorðið fólk, sem ekki kann
erlend tungumál, er stundum að vand-
ræðast við kassann þegar það þarf að
gefa upp kennitölu eða reikningsnúm-
er á ensku.
Mjólkurframleiðsla leggst af á
einu stóru kúabúi í Aðaldal nú um
áramótin. Margir bændur eru að
fullorðnast og óvíst að hagkvæmt sé
að byggja upp sumt af þeim fjósum
sem eftir eru í héraðinu. Einungis
einn mjólkurframleiðandi er eftir á
Tjörnesi og í Reykjahverfi eru tvö
kúabú þar sem áður voru nítján
kúabændur. Í sumum sveitum er talin
hætta á að nautgripir heyri sögunni
til, en margir telja að með samhentu
átaki megi bjarga búgreininni og eru
bjartsýnir á að það sé hægt að efla þá
framleiðslu sem fyrir er.
Tíðarfarið er alltaf að koma á
óvart og mörgum fannst nóg um
rigningarnar í sumar. Kornrækt í
Þingeyjarsveit gekk ekki vel og ákváðu
nokkrir bændur að þreskja ekki
byggið þar sem uppskeran var lítil
sem engin. Hins vegar kommjög góð
tíð í nóvember sem varð til þess að
margir gátu sinnt sínum útiverkum
í blíðviðri sem lengi var búið að bíða
eftir. Margir nutu góðs af þessu, menn
og skepnur. T.d. voru kindur úti óvenju
lengi og komu á sumum bæjum ekki
inn fyrr en viku af desember. Þá fóru
heimilishænsni á beit flesta daga og
gátu baðað sig í moldinni.
Tónleikar hafa verið nokkrir á
aðventunni og vel sóttir. Jólin mín og
þín, tónleikasýning Tónasmiðjunnar,
var hátíðleg stund í kirkjunni með
um 35 flytjendum. Hópurinn stóð sig
frábærlega og það gladdi alla mikið
að geta um leið stutt gott málefni.
Tónlistarfólkið styrkti Velferðarsjóð
Þingeyinga um 500 þúsund krónur að
þessu sinni. Nú í desember hafa beiðn-
ir um aðstoð sjaldan verið fleiri, en
mörg heimili ná ekki endum saman.
Forsvarsmenn samfélagshjálparinnar
eru mjög þakklátir þeim sem láta eitt-
hvað af hendi rakna og þess má m.a.
geta að Kiwanisklúbburinn Skjálfandi
deilir út matarkössum í samstarfi við
Norðlenska. Þá er inneignarkortum í
Nettó úthlutað og fiskeldið í Hauka-
mýri gefur fisk.
Húsavíkurkirkja á marga vini og
hollvinasamtök kirkjunnar hafa safnað
fé til framkvæmda. Þetta merka hús
þarf mikið viðhald auk þess sem nú
liggja fyrir breytingar á lóð kirkjunn-
ar. Er meðal annars meiningin að gera
aðgengi að kirkjunni auðveldara fyrir
fatlað fólk og á kirkjutorginu, sem
þarna verður, er ætlunin að hafa bekki
og borð fyrir ferðamenn og gesti. Þar
á líka að vera gróður sem prýðir um-
hverfið og með öllu þessu á mannlífið í
hjarta bæjarins að blómstra.
Jólahátíðin er að ganga í garð og
þeir sem hafa húsdýr velja besta heyið
til þess að allir eigi jól. Það er gaman
að gefa grænt hey sem fær góðar
viðtökur á garðanum. Það er líka
skemmtilegt að hafa með sér brauð-
bita, svolítið meira en venjulega, því
stundum eru einhverjir góðvinir sem
það kunna að meta. Og nú þegar frost
og fannfergi er um alla jörð er hlýtt og
notalegt í fjárhúsunum og um að gera
að vera bjartsýnn þótt úti sé kalt. Jón
Arnkelsson frá Hraunkoti í Aðaldal
orðar þetta svo:
Þótt standi stórhríðáglugga,
eðastormuroghríðarmugga,
ogúti sémargtaðugga,
–ekki pæla í því.
Þaðstyttir uppumsíðir,
storma,él oghríðir,
er voriðogvindarþíðir,
vekjaallt áný.
Hlýtt og notalegt í fjárhúsunum
ÚRBÆJARLÍFINU
Atli Vigfússon
Laxamýri
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Fjárhúsin Þegar kalt er úti er gott að vera í fjárhúsunum í Grobbholti á Húsavík. Baldur Freyr Skarphéðinsson
fer oft með afa sínum að gefa fénu og hittir þá vin sinn, forystuhrútinnMola. Tveir góðir saman.
Óskum nemendum okkar og landsmönnumöllum gleðilegrar hátíðar
www.okuland.is