Morgunblaðið - 24.12.2022, Page 23
FRÉTTIR
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
23
Tunguhálsi 10 | 110 Reykjavík
415 4000 | kemi.is | kemi@kemi.is
Bílavarahlutir
BOSCH
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18
laugardaga 11-14
Verið velkomin
í sjónmælingu
Gera má ráð fyrir miklum töfum
við vegabréfaskoðun á breskum
flugvöllum næstu daga, vegna
verkfalla tollvarða sem annast
landamæraeftirlit.
Áforma tollverðir að leggja
niður vinnu á hverjum degi fram
til áramóta, að 27. desember
undanskildum. Aðgerðirnar eru
hluti af verkfallahrinu opinberra
starfsmanna í Bretlandi sem
krefjast betri kjara. Í vikunni
hafa hjúkrunarfræðingar og
sjúkraflutningamenn lagt
tímabundið niður vinnu og í gær
boðuðu hjúkrunarfræðingar
vinnustöðvun 18. og 19. janúar,
verði ekki samið við þá áður.
BRETLAND
Miklar tafir á breskum flugvöllum
inni,“ sagði annar verslunareigandi í
grenndinni. Vitni sögðust hafa heyrt
sjö eða átta skot áður en lögregla náði
að handtaka manninn.
Átök brutust út síðar um daginn
milli lögreglu og mannfjölda, sem
safnaðist saman á svæðinu þar sem
árásin var gerð. Á myndum sást
að fólk kveikti elda á götum úti og
kastaði stólum og öðru lauslegu að
lögreglu en óeirðalögreglumenn
beittu táragasi á móti.
Nýlega sleppt úr varðhaldi
Franskir fjölmiðlar herma að
árásarmaðurinn heiti WilliamM., en
vitni og lögregla sögðu í gær að hann
væri hvítur, 69 ára gamall franskur
lestarstjóri á eftirlaunum. Farið var
með árásarmanninn á sjúkrahús, en
við handtökuna varð hann fyrir skoti
í andlitið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
maðurinn kemst í kast við lögin, því
hann hefur gert tvær aðrar tilraun-
ir til manndráps, árin 2016 og 2021.
Talið er er að hatur á innflytjendum
hafi verið tilefni árásarinnar í gær
þótt það hafi ekki verið staðfest. Inn-
anríkisráðherra Frakklands, Gerald
Darmanin, hefur ítrekað varað við
hættunni á ofbeldisverkum öfgahópa
í landinu. Yfirsaksóknari Parísar-
borgar, Laure Beccau, staðfesti við
fjölmiðla í gær að árásarmanninum
hefði verið hleypt úr fangelsi nýlega,
aðeins rúmu ári eftir að hann réðst
á tjaldborg innflytjenda í París með
sverð að vopni. Ekki liggur fyrir hvers
vegna maðurinn var látinn laus.
Rétt fyrir hádegið í gær hóf 69 ára
maður skotárás á menningarsetur
Kúrda, veitingahús og hárgreiðslu-
stofu á Rue d‘Enghien í París og varð
þremur viðstöddum að bana auk þess
að særa aðra þrjá. Skotárásin var í tí-
unda hverfi borgarinnar, Strasbourg-
St. Denis, en á því svæði er fjöldi
verslana og veitingahúsa og heimili
fjölda Kúrda. Lögreglan náði að yfir-
bugamanninn á hárgreiðslustofunni.
Mikil skelfing greip um sig í
hverfinu og yfirvöld báðu almenn-
ing að halda sig fjarri hverfinu. „Við
sáum gamlan hvítan mann skjóta
að menningarsetrinu áður en hann
fór inn á hárgreiðslustofuna,“ sagði
veitingahúsaeigandinn Romain við
AFP fréttastofuna í gær. „Við vorum
skelfingu lostin, og læstum okkur
Þrír látnir eftir árás öfgamanns í París
lÞrír látnir, einn í lífshættu og tveir alvarlega særðirlÁrásarmanninum sleppt úr varðhaldi fyrir stuttu
lRéðist með sverði að innflytjendum fyrir árilÁstæðan óstaðfest en talin hatur á innflytjendum
AFP/Thomas Samson
París Lögregla við menningarmiðstöð Kúrda á Rue d’Enghien í 10. hverfi
Parísarborgar þar sem karlmaður hóf skothríð um hádegisbil í gær.
Snjókoma og jökulkaldur vindur
í aðdraganda jólanna vestanhafs
urðu til þess að veðurviðvaranir
voru hjá 240 milljónum Banda-
ríkjamanna í gær. Þúsundum
flugferða var aflýst og vegum lok-
að. Líklegt er að veðrið hafi áhrif
á jólahald fjölda fólks sem kemst
ekki til að fagna með fjölskyldu
sinni. Íslendingar fengu að kenna
á kuldanum fyrr í vikunni en
nístingskalt heimskautaloft hef-
ur nú fært sig yfir til Kanada og
Bandaríkjanna og jafnvel í heitari
ríkjum Bandaríkjanna er búist
við meiri kulda en venjulega.
Víða í Bandaríkjunum fór frostið
niður í 40 gráður þegar áhrif
vinds eru reiknuð með. Rúmlega
ein og hálf milljón manns er án
rafmagns vegna álags á raforku-
kerfin. Í héraðinu Saskatchewan
í miðhluta Kanada fór frostið í 50
gráður.
Fimbulkuldi og veðurviðvaranir hjá 70% Bandaríkjamanna í gær og frost gæti farið niður í 50 gráður í miðhluta Kanada
Sögulegt
kuldakast
vestanhafs
AFP/Scott Olson