Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
24
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Gleðileg jól!
V ið gleðjumst um jólin
til þess að fagna
fæðingu frelsarans,
ljóss heimsins. Við gleðju-
mst einnig hvert með öðru,
fjölskylda og vinir, jafnvel
ókunnugt fólk, því á jól-
um fögnum við bæði hinu
himneska og því sammann-
lega.
Á sinn hátt hafa jólin orðið
veraldlegri á undanförnum
áratugum, það er æ meiri
áhersla á umgjörðina og
allsnægtirnar, en hið and-
lega hefur látið undan síga.
Kannski ekki síst á opinber-
um vettvangi, þar sem sumir
virðast feimnir við að nefna
almættið og Krist í samhengi
við þessa mestu hátíð ársins.
Það er ástæðulaust, en
sennilega er einnig ástæðu-
laust að hafa of miklar
áhyggjur af því. Þegar líður
að klukkan sex í kvöld kemur
helgin af sjálfu sér til þeirra,
sem hana vilja halda, og
fleiri til. Um það þarf enga
opinbera leiðbeiningu.
Fyrir Úkraínumenn eru
jólin með öðru sniði en áður.
Ekki aðeins vegna þess að
þau eru að þessu sinni haldin
í skugga innrásar Rússa í
fósturjörðina, heldur vegna
þess að nú halda þeir þau
hátíðleg hinn 25. desember
en ekki 7. janúar eins og
verið hefur til þessa. Það
tengist klofningi úkraínsku
rétttrúnaðarkirkjunnar frá
hinni rússnesku og þá var
tækifærið notað til þess að
taka loks upp gregoríanskt
tímatal, líkt og aðrar vest-
rænar þjóðir og kirkjur.
Jólin í Úkraínu eru haldin
við þröngan kost að þessu
sinni, rafmagn vantar víða
og vatnsveita víða löskuð,
enda hefur Rússaher harð-
stjórans Vladímírs Pútíns
það beinlínis að hernað-
arlegu markmiði – þvert á
alþjóðalög og samninga – að
herða að úkraínskum al-
menningi með þeim hætti,
til þess að draga úr baráttu-
þreki hans og sigurvilja.
Eins og fleira í stríðinu
hafa þær ráðagerðir snúist
í höndunum á Pútín, því
þessar aðgerðir hafa þjapp-
að þjóðinni enn frekar
saman í viðureigninni við
innrásarherinn. Og meira
en það, því það hefur aukið
mönnum von um að ef aðeins
þeir þrauki veturinn, þá sé
sigurinn vís með hækkandi
sól og vori.
Þær vonir munu glæðast
nú um jólin, sem er sigur-
hátíð ljóssins sem tekur við
af myrkum tímum vetrarins,
hátíð endurfæðingar og hinn-
ar dýrmætu gjafar lífs og
elsku Guðs.
Það er þó rétt að minnast
þess að jólaguðspjöll Bibl-
íunnar snúa ekki einungis
að dýrðinni, fæðingu endur-
lausnarans og sigri ljóssins.
Þau eru einnig áminning um
hörku heimsins og grimmd
mannsins. En um fram allt
gefa þau von.
Ómögulegt er að segja fyrir
um hvort vonir Úkraínu-
manna rætast með vorinu,
sennilega er það nokkur
bjartsýni. En án vonarinnar
er engin von og vonirnar
verður að næra til þess að
þær rætist, hvort heldur er í
vor, næsta vor eða síðar.
Við vitum að sól mun
hækka á ný, það kallar ekki
á neitt af mannsins hálfu
annað en þrautseigju. Vonin
ein dugar hins vegar ekki
til þess að sigrast á myrkri
af manna völdum. Til þess
þarf aðgerðir, aðföng og
aðstoð. Íslendingar hafa ekki
látið sitt eftir liggja, bæði
með pólitískri samstöðu og
fjárstuðningi við Úkraínu,
hjálpargögnum og skjólshúsi
yfir flóttamenn þaðan. Þar
þarf þó meira til og svo mun
áfram vera meðan stríðið
stendur og ugglaust lengi á
eftir.
Það kemst þó ekki í hálf-
kvisti við framlag vina okkar
í Póllandi, sem hafa stutt
nágranna sína og frændur
af einurð og rausn, opnað
land sitt fyrir þeim, og er
Pólland þó ekki með auðugri
löndum Evrópu. Íslendingar
þekkja örlæti Pólverja vel,
því þeir réttu okkur að eigin
frumkvæði hjálparhönd í
bankahruninu, sem þeir hafi
ævarandi þökk fyrir. Um
leið eru Pólverjar stærsta
þjóðarbrot á Íslandi, svo
Íslendingar eiga fyrir vikið
einnig frændsemi og vináttu
við Úkraínumenn. Það væri
verðug jólagjöf Íslendinga,
vopnlausrar þjóðar, að við
hjálpuðum Póllandi við að
hjálpa Úkraínu með mannúð
og mannkærleik að leiðar-
ljósi.
Það væri í góðu samhengi
við hinn kristna boðskap um
náungakærleikann. Kærleik-
ann, sem er langlyndur og
góðviljaður meðal manna
og okkur ber að auðsýna
hvert öðru. Þannig höldum
við gleðileg jól; jól sem eru
okkur gleðileg, enn frekar ef
við gerum þeim gleðilegri jól
þar sem myrkrið er mest.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugarnesskóli Samkomusalurinn var fallegur þegar nemendur dönsuðu i kringummyndarlegt tré.
Morgunblaðið/Eggert
Selásskóli Nemendur á yngra stiginu klæddu sig í sitt fínasta púss á jólaballinu síðasta dag fyrir jólafrí.Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/