Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 26
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022 26 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! AUDI E-tron 50 Sportback S-line Nýskráður 03/2021 ekinn 28þkm. Rafmagnsbíll, uppgefin drægni 360 km. S-line innan og utan, 21“ álfelgur, Bang & Olufsen hljómtæki, glerþak, myndavélaspeglar, miðstöð afturí, S-line leðursæti o.fl! Glæsilegt eintak til afhendingar strax! Raðnúmer 111277 00 M.BENZ EQB350 4MATIC POWER Nýskrá . Rafmagnsbíll, uppgefin drægni 438 km. AMG line innan og utan. Glerþak, 20“ álfelgur, sjónlínuskjár, 360° bakkmyndavél, rafmagn og minni í fram- sætum og margt fleira. Designo Patagonia rauður! Stórglæsilegur bíll til afhendingar strax! Raðnúmer 505251 M.Benz EQA250 Power First Edition Nýskráður 04/2022 ekinn 52 km. Ókeyrður sýningarbíll! Rafmagnsbíll, uppgefin drægni 488 km. AMG line innan og utan. 20“ álfelgur. Mountain grey magno mattgrár! Stórglæsilegt eintak til afhendingar strax! Raðnúmer 739266 0 0 Fullur salur af rafmagnsbílum Gleðilega hátíð með þökk fyrir viðskiptin á árinu Síungu strákarnir Indriði Jónsson og Árni Sveinsson Sjáðu úrvalið Sérstaða vegna kóngsbænadags A nnar jóladagur er eini lögboðni frídagur laun- þega um hátíðirnar að þessu sinni. Fyrir utan sunnudaga er enginn annar rauður dagur í almanakinu nú um þessi jól og áramót. Þriðji í páskum, jólum og hvítasunna voru almennir frídagar hér þar til breyting var gerð á dönsku helgi- dagalöggjöfinni 1771 í tíð Kristjáns 7. Voru þessir dagar og þrettándi dagur jóla afhelgaðir að tillögu nefnd- ar sem kom til sögunnar áður en Johann Friedrich Struensee (1737-1772), þýskur líflæknir konungs, varð raunverulegur stjórnandi ríkisins. Almenni bænadagurinn (d. store bededag) var heima- smíðaður í Danmörku. Kristján 5. fyrirskipaði árið 1686 að hann skyldi haldinn hátíðlegur í kirkjum fjórða föstudag eftir páska. Upphaflegur tilgangur dagsins var að tryggja að fólk kæmi ódrukkið til kirkju og bæðist fyrir, fasta hófst klukkan 18.00 daginn áður. Dagurinn festist í sessi í Danmörku, Færeyjum (dýri biðidagur) og Grænlandi (tussiarfissuaq). Hér mæltist dagurinn illa fyrir og var kallaður kóngsbænadagurinn. Í heitinu birtist sá misskilning- ur að dagurinn væri helgaður bænum fyrir konungi þótt fyrir honum væri beðið í hverri messu. Mörgum þótti líka óbærilegt að neyðast til að svelta. Til varð þessi vísa: Innan sleiki ég askinn minn ekki er fullur maginn. Kannast ég við kreistinginn kóngs- á bænadaginn. Séra Bjarni Sigurðsson frá Mosfelli skrifaði um af- helgun kóngsbænadagsins hér í blaðið 4. maí 1986, þrjú hundruð árum eftir að dagurinn var helgaður. Sr. Bjarni rifjar upp að tveir þingmenn lögðu árið 1893 fram frumvarp um afnám fimm helgidaga. Þeir voru annar í páskum og hvítasunnu, skírdagur, uppstigningardagur og kóngsbænadagur. Máli sínu til stuðnings töldu flutningsmenn að líta bæri til fordæma frá öðrum þjóðum þar sem þessir dagar væru ekki helgidagar, voru Skotar nefndir sér- staklega til sögunnar. Þá bæri þessa helgidaga einnig upp á þeim tíma árs þegar þjóðin mætti alls ekki verða af þeirri vinnu og afurðarýrnun sem fylgdi helgihaldinu. Gagnrök voru meðal annars þau að helgidaga mætti nota til margra þarflegra hluta, til dæmis til að kynna sér bókmenntir. Fækkun helgidaga mundi jafnframt fækka messum víða um land og særa trúarvitund fólks. Þá bæri að líta til þess að annars staðar væru þjóðir að fjölga hvíldardögum og hvíldarstundum. Þingnefnd klofnaði í málinu. Allir vildu afnema kóngsbænadaginn og standa vörð um skírdag og uppstigningardag. Meiri hluti nefndarinnar vildi á hinn bóginn afhelga bæði annan í jólum og annan í hvíta- sunnu. Við lokaafgreiðslu málsins á þingi var samþykkt að afhelga einn dag, kóngsbænadaginn. Minningin um daginn lifir þó enn innan íslensku þjóðkirkjunnar. Biskup hennar ákvað um miðja síðustu öld að innleiða almennan bænadag og er hann fimmti sunnudagur eftir páska, á svipuðum tíma og kóngsbænadagurinn forðum. Í Almanaki Þjóðvinafélagsins er kóngsbæna- dagsins jafnan getið. Í lögum um frið vegna helgihalds frá 2019 segir að helgidagar þjóðkirkjunnar séu sunnudagar, nýársdag- ur, skírdagur, föstudagurinn langi, páskadagur, annar dagur páska, uppstigningardagur, hvítasunnudagur, annar dagur hvítasunnu, aðfangadagur jóla frá kl. 18, jóladagur og annar dagur jóla. Helgidagarnir hafa með öðrum orðum ekki breyst hér á landi frá því að kóngs- bænadagurinn var afhelgaður 1893. Tilgangur helgidagalaganna hefur hins vegar breyst. Nú er ekki lengur markmið þeirra að tryggja fólki frið, ró, næði og tiltekna afþreyingu á helgidögum þjóðkirkj- unnar heldur að veita sem mest svigrúm til veraldlegra athafna án þess að trufla guðs- þjónustu, kirkjulegar athafnir eða annað helgihald með hávaða eða öðru því sem andstætt er helgi viðkomandi athafnar. Frítökurétt og hvíldartíma launafólks á að tryggja í samningum stéttarfé- laga við vinnuveitendur. Við myndun ríkisstjórnar í Danmörku fyrir rúmri viku var gerð atlaga að einum helgidegi og er almennt talið að hann sé stórbeðudagurinn, kóngsbænadagurinn. Í 60 bls. stjórnarsáttmálanum er að finna ákvæði um að ríkisstjórnin ætli að leggja fram frumvarp um að fækka helgidögum um einn frá og með árinu 2024 án þess að laun hækki, tekjur af vinnu dagsins renni til danska hersins enda þurfi að efla varnir þjóðarinnar vegna stríðsins í Úkraínu. Var gagnrýnt að nota sem rök fyrir fækkun helgidaga að útgjöld til varnarmála skyldu hækka. Verður næst vegið að skírdegi til að minnka biðlista í heilbrigð- iskerfinu eða hækka laun hjúkrunarfræðinga? var spurt. Og einnig hvers vegna ríkisstjórnin hefði ekki boðað flutning kóngsbænadagsins til föstudagsins eftir uppstigningardag, hann væri þegar orðinn að frídegi í mörgum skólum og bönkum. Með því hefði ríkisstjórnin á mildari hátt halað inn daglaun fyrir herinn. Uppnámið leiddi til þess að danska stjórnin dró í land varðandi launalausa vinnuframlagið. Þetta er ekki fyrsta tilraunin í Danmörku til að hrófla við kóngsbænadeginum, heimatilbúna danska helgideg- inum. Það hefur meðal annars verið reynt árangurs- laust við gerð kjarasamninga. Dagurinn kann að hafa glatað trúarlegu gildi sínu eða markmiðinu um að menn skuli biðjist fyrir ódrukknir, hann er hins vegar hluti af danska þjóðararfinum og því er erfitt að hrófla við honum, að minnsta kosti bótalaust. Hér mistókst árið 1893 að afhelga annan jóladag og enginn stjórnmálamaður hefur reynt það síðan, þess njótum við nú á mánudaginn. Gleðjumst jafnframt yfir inntaki jólanna, fæðingu frelsarans. Gleðileg jól! Hérmistókst árið 1893 að afhelga annan jóladag og enginn stjórnmálamaður hefur reynt það síðan. Vettvangur Björn Bjarnason •Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Vanhæfi vegna fyrri árekstra Þegar Geir H. Haarde var leiddur fyrir landsdóm 5. mars 2012, sakaður um refsiverða vanrækslu í aðdraganda bankahrunsins, stóð hann andspænis tveimur hæsta- réttardómurum, sem áttu eflaust erfitt með að vera óhlutdrægir í hans garð, eins og ég leiði rök að í nýrri bók um landsdómsmálið. Þeir Eiríkur Tómasson og Eggert Óskarsson höfðu árið 2004 sótt um embætti hæstaréttardómara, sem Geir H. Haarde veitti þá sem settur hæstaréttardómari. Hann skipaði hvorugan þeirra í embættið, heldur Jón Steinar Gunnlaugsson, og var mikil heift í málinu. Eiríkur sagði til dæmis í viðtali við Fréttablaðið 30. september 2004, að með þessari embættisveitingu hefði Geir grafið undan réttinum. Nú væru tveir sjálfstæðismenn hæstaréttardóm- arar. Eiríkur gat þess ekki, að á Íslandi hafa margir lögfræðingar verið skipaðir hæstaréttardómarar, þótt þeir hafi áður haft afskipti af stjórnmálum. Einn þeirra var Benedikt Sigurjónsson. „Hann var harður Framsóknarmaður, og ég hafði oft leitað ráða hjá honum um lögfræðileg efni,“ sagði Stein- grímur Hermannsson, þegar hann minntist dómsmálaráðherratíðar sinnar. Um þetta hlaut Eiríki að vera kunnugt, því að hann var þá einmitt aðstoðarmaður Steingríms í dómsmálaráðuneytinu. Þeir Eiríkur og Eggert voru í þeim meiri hluta landsdóms, sem vildi sakfella Geir fyrir aukaatriði. Þriðji dómandinn í landsdómi, Brynhildur Flóvenz, hafði kvartað undan því við danskt blað 1. febrúar 2009, að eftir bankahrunið yrði hún í fjölskylduboðum að reiða fram fisk, en ekki hreindýrasteik. Hún væri þó reiðubúin að fórna öllum steikum, „ef kreppan felur í sér uppgjör við klíkuveldið og fleiri konur í forystu“. Hér kenndi Bryn- hildur klíkuveldi og karlmennsku- hugarfari um bankahrunið, en nærtækasti fulltrúi þessa hvors tveggja í huga hennar var væntan- lega Geir H. Haarde forsætisráð- herra. Brynhildur var í þeim meiri hluta landsdóms, sem vildi sakfella Geir fyrir aukaatriði. Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Gyrðir G yrðir Elíasson skrifar gjarnan um hversdagsmanninn, mig og þig. Þetta fólk er reyndar ósjaldan á jaðrinum á því sem normalt má teljast. Þannig er það enn í hans nýjasta verki, nafn- laust fólk sem hér tengist að vísu fjölmörgum nafngreind- um stöðum víða um land. Þetta eru 377 sjálfstæðir smáprósar í tveimur sérlega smekklegum og eigulegum bindum: Þöglu myndirnar og Pensilskrift (Dimma. 2022). Gyrðir málaði sjálfur kápu- myndirnar. Stystu prósarnir eru ör- fáar línur, hugdettur eða þankabrot; þeir lengstu rúmar tvær síður. Oft má sjá einhver tengsl milli prósanna; í mörgum þeirra birtist t.d. sögumaður sem ekur um landið, yfirleitt án augljóss tilgangs, stundum með konu sér við hlið (sem horfir þá kannski í aðra átt en hann), en oftast er hann einn og gistir í sumarbústað eða hóteli, gjarnan með bók við höndina. Og þegar nóttin skellur á getur dregið til tíðinda. En það er alveg makalaust hvað Gyrði tekst að gera úr hverjum prósa. Þar kemur til hans dæmalausa ímyndunarafl og stílgáfa. Ég greini í þessu verki eitthvað nýtt í frásagnarmátanum sem hefur færst nær talmáli, með innskotum og endurteknum tilbrigðum þar sem slíkt á við, t.d. þegar sögumaður á í innra stríði. Byrjum á örlítilli misheyrn í stysta prósanum, „Samræðum“ (I:126): „Náttúra Íslams? Ég hef aldrei velt þessu fyrir mér – hver mundi vera náttúra Íslams?“ „Ég sagði náttúra Íslands.“ „Einmitt.“ Gyrðir er meistari hins ósagða. Fólkið hans er þög- ult – ein eða tvær setningar eru gjarnan látnar nægja í tveggja manna tali. Og jafnvel síminn á það til að þegja þegar maður þráir ekkert meira en símhringingu og bíður í ofvæni dag eftir dag. En stundum hringir síminn án þess að honum sé svarað. Og örlítið um undur og stórmerki: Á Akureyri sofnar sögumaður- inn en vaknar innst í Bárðardal. „Ég fæ engan botn í þetta en ímynda mér að draumur hafi loksins ræst“ (I:180). Og í „Of eða van“ (II:15) sofnaði sögumaður út frá Ofvitanum eftir Þórberg, einn í sumar- bústað, en vaknaði morguninn eftir með Fávitann eftir Dostojevskí á náttborðinu. Enginn blandar betur en Gyrðir saman gamni og alvöru. Til- finninganæmir munu hlæja og gráta þegar þeir lesa um manninn sem spyr heyrnarlausa hvert sé þeirra eftirlætistónskáld og blinda um uppáhaldsmálarann („Aðgát“ I:51). Annars eðlis er húmorinn í „Túristum“ (II:67); þar sem við hittum fyrir hinn ferlega Axlar-Björn. „Tilvera þeirra var gulgrá, en þau höfðu þó hvort annað.“ Prósinn „Litir“ (II:232) er eins og málverk eftir Gyrði! Mig langar að enda á því að birta „Vonarneista“ (I:39): „Eygðu góðan dag,“ sagði hann við mig að skilnaði. Ég leit á hann og sá undireins á augunum að orðið var með ufsiloni. Það speglaðist í lithimnunni. Hann var þekktur svartsýnismaður, en var þó að reyna að hressa mig við, og kannski jafnvel sjálfan sig í leiðinni. Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Morgunblaðið/Einar Falur Skáldið Gyrðir er meistari hins ósagða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.