Morgunblaðið - 24.12.2022, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 37
Síðumúla 3 | 108 Reykjavík | Netverslun balika.is
Óskum viðskiptavinum og
landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Þökkum fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Vísnahorn
Hent á lofti
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Illur þefur þetta er.
Í Þingeyingum á því ber.
Ekki hár er seggur sá.
Síðan geymsla veramá.
Guðrún B. sendi lausn með
snjókveðjum:
Óloftmikið út úr hvofti,
enda (þingeyskt loft) í sviga.
Þó Hans sé ekki hár í lofti,
má húkka í geymsluloftið stiga.
Helgi Einarsson svarar:
Óloft fáum líkar hér.
Loftið þingeyskt eðli ber.
Ei hár í lofti hann um fer.
Háaloftið geymsla er.
Sjálfur skýrir Guðmundur
gátuna þannig:
Illt er loftið inni hér.
Er í Þingeyingum loft.
Hár í lofti ei hann er.
Er fullt geymsluloftið oft.
Þá er limra:
Það var óttalegt ástand á Lofti.
Uppi á geymslulofti
hjó af sér fingur
sá Hnífsdælingur
með hnífinn stöðugt á lofti.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Lengur ekki boða bíð,
bólinu ég fram úr skríð,
til að gleðja landsins lýð
ljúka þarf við gátusmíð:
Vöxtur nú í ánni er.
Árafjölda vitni ber.
Slark á vegi hermi hér.
Hefur dauða í förmeð sér.
Lausn Helga fylgdu vísur með
þessari athugasemd: „Ekkert
má orðið, bannað að hafa börn í
matinn!“
Gamla Grýla er dauð
gafst hún upp í nauð
er sett var inn
eyminginn
upp á vatn og brauð.
Hér kemur eitthvað jákvæðara
Jólasveinar fara um fjöll,
fagna börnin því,
kæti vex í koti og höll,
komið jólafrí.
Megi gæfan gefa þér
gleði, styrk og þor.
Meira brátt til sólar sér,
síðan kemur vor.
Þá er limra:
Við tóvinnu sat húnTinna
ogTumi var fénu að sinna,
Gunna var þreytt
og gerði ekki neitt,
en Geiri fórmúsum að brynna.
„ALLT Í LAGI, SÓLVEIG, EN HVAÐ EIGUM
VIÐ AÐ SEGJA KONUNNI MINNI?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að svindla í
megrunarátakinu.
ÉG ER OF SADDUR
TIL AÐ LABBA
GOTT AÐ ÉG GET
ENN TUGGIÐ
MAUL
MAUL
MAUL
GETUR LÚTUR SÉÐ ÞÉR FARBORÐA EF
ÞÚ GIFTIST HONUM?
ÞAÐ VERÐUR ALLTAF EINHVER MATUR!
FARÐU ÚT!
„HEFUR EINHVER EINHVERJU VIÐ
ÞETTA AÐ BÆTA ÁÐUR EN ÉG GERI ALLT
NÁKVÆMLEGA EINS OG MÉR SÝNIST?
DAGATAL
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
að það væri gæfumerki að vera fæddur
undir jólastjörnunni og ég held að það
sé dagsatt.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Ernu er Andrés
Svanbjörnsson verkfræðingur, f. 20.10.
1939. Þau eru búsett í Sjálandshverfi
í Garðabæ. Foreldrar Andrésar
voru hjónin Svanbjörn Frímannsson
bankastjóri, f. 14.7. 1903, d. 9.7. 1992, og
Hólmfríður Andrésdóttir húsmóðir, f.
3.9. 1915, d. 30.5. 2005.
Börn Ernu og fyrri maka, Péturs
Reimarssonar verkfræðings í Reykja-
vík, f. 9.3. 1951, eru 1) Frosti Pétursson
stærðfræðingur, f. 1.12. 1971, býr í
Reykjavík; 2) Reimar Snæfells Péturs-
son hæstaréttarlögmaður, f. 14.11.1972,
býr í Reykjavík. Maki: Björg Vigfús-
dóttir, klínískur fjölskylduráðgjafi,
f. 21.12. 1978; 3) Valva Pétursdóttir
verkefnisstjóri, f. 23.1. 1975, býr í Nor-
egi. Maki: Valdimar Þór Valdimarsson,
CNC tæknimaður, f. 9.8. 1975. Synir
Andrésar eru Frímann útfararstjóri, f.
1972, búsettur í Kópavogi, og Markús
Þór sýningarstjóri, f. 1975. Maki Mark-
úsar er Dorothée Kirch sýningarstjóri,
f.1974. Þau búa í Reykjavík. Andrés og
Erna eiga samanlagt 10 barnabörn og
eitt langafabarn.
Hálfsystkini Ernu eru, sammæðra;
Hildur Jakobína vinnusálfræðingur,
f. 1969; samfeðra: Ragnhildur Rós
hjúkrunarfræðingur, f. 1956; Pálmi
vélstjóri, f. 1958; Helgi tannlæknir, f.
1959; Ólafur Skúli læknir, f. 1961; Jón
Skúli verkfræðingur, f. 1963; Dag-
ný Bergþóra leiðsögukona, f. 1965,
og Ásmundur húsasmiður, f. 1967.
Uppeldissystkini Ernu, börn Gísla
Eiríkssonar: Guðný Edda bóndakona,
f. 1940; Kristján byggingameistar, f.
1944: Bergsteinn rafeindavirki, f. 1945;
Helgi myndhöggvari, f. 1947, og Lilja
matreiðslukona, f. 1949, d. 2022.
Foreldrar Ernu: Kristín Guðnadóttir
fótaaðgerðafræðingur, f. 22.10. 2027,
býr í Reykjavík, og Indriði Gíslason,
prófessor í íslensku við KHÍ, f. 27.7.
1926. d. 15.3. 2009, kvæntur Ingibjörgu
Ýr Pálmadóttur kennara, f. 7.5. 1931,
d. 23.7. 2021. Þau bjuggu í Reykjavík.
Uppeldisfaðir Ernu og eiginmaður
Kristínar var Gísli Eiríksson bifreiðar-
stjóri, f. 10.5. 1909, d. 22.10. 1992, bjó í
Reykjavík.
Erna
Indriðadóttir
Hildur Hansína Jóhannesdóttir
húsfreyja í Grímshúsum
Ólafur Guðnason
bóndi í Grímshúsum í Aðaldal
Jakobína Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja á Skuggabjörgum
Guðni Vilhjálmur Þorsteinsson
bóndi á Skuggabjörgum í Fnjóskadal
Kristín Guðnadóttir
fótaaðgerðafræðingur í Reykjavík
Guðrún Guðnadóttir
húsfreyja í Jarlsstaðaseli
Þorsteinn Þorsteinsson
bóndi í Jarlsstaðaseli í Bárðardal
Margrét Ólafsdóttir
húsfreyja á Fossi
Páll Þorsteinsson
bóndi á Fossi á Síðu
Dagný Pálsdóttir
húsfreyja í Skógargerði
Gísli Helgason
bóndi í Skógargerði í Fellum
Ólöf Margrét Helgadóttir
húsfreyja í Skógargerði
Helgi Indriðason
bóndi í Skógargerði
Ætt Ernu Indriðadóttur
Indriði Gíslason
háskólaprófessor í Reykjavík