Morgunblaðið - 24.12.2022, Side 39
ÍÞRÓTTIR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Alfons Sampsted, landsliðsmaður
í knattspyrnu, gengur senn í raðir hol-
lenska úrvalsdeildarfélagsins Twente.
Hann kemur frá Bodø/Glimt í Noregi,
þar sem hann átti þrjú afar góð tímabil
og varð meistari með liðinu bæði
2020 og 2021 ásamt því að fara langt
með því í Evrópukeppni í tvígang.
Hollenski miðilinn Voetbal greindi frá
þessu í gær og sagði Alfons vera á leið
í læknisskoðun, áður en hann skrifar
undir langtímasamning. Verður hann
gjaldgengur með hollenska liðinu frá
og með 1. janúar.
Finnski knattspyrnumaðurinn
Dani Hatakka sem lék með Keflvík-
ingum á síðustu leiktíð hefur samið
við FH-inga um að leika með þeim á
komandi keppnistímabili. Hatakka er
varnarmaður sem var í stóru hlutverki
hjá Keflvíkingum en hann lék 26 af
27 leikjum þeirra í Bestu deildinni og
skoraði fjögur mörk, þrjú þeirra í jafn-
mörgum leikjum í fyrri umferð móts-
ins. Hann er 28 ára gamall og lék áður
með m.a. Honka, SJK og KuPS í Finn-
landi og með norsku liðunum Hödd og
Brann. Samtals hefur Hatakka spilað
233 deildaleiki á ferlinum og skorað í
þeim 17 mörk og hann lék 14 leiki með
yngri landsliðum Finnlands.
Sandra Sigurðardóttir, landsliðs-
markvörður í fótbolta, hefur framlengt
samning sinn við Val og verður hjá
félaginu næstu tvö árin. Sandra er
orðin 36 ára gömul, en hún var aðeins
fjórtán ára þegar hún fór að leika með
Þór/KA/KS árið 2001. Fjórum árum
síðar var hún komin til Stjörnunnar,
þar sem hún lék til ársins 2016, þegar
leiðin lá til Vals. Sandra hefur alls
leikið 331 leik í efstu deild og er sú
leikjahæsta frá upphafi í deildinni.
Ljóst er að hún heldur áfram að bæta í
metið frá og með næstu leiktíð.
Þýskalandsmeistarar Magdeburgar
fá erfitt verkefni í átta liða úrslitum
þýsku bikarkeppninnar í handknattleik
karla en dregið var til þeirra í gær.
Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir
Kristjánsson og samherjar þeirra í
Magdeburg drógust gegn Kiel á útivelli
og óhætt er að segja að það verði
stórleikur átta liða úrslitanna sem fara
fram að loknu heimsmeistaramótinu,
dagana 4. og 5. febrúar.
Manchester United mætir C-deildar-
liðinu Charlton í átta liða úrslitum
enska deildabikarsins í knattspyrnu
en þau verða leikin 10. og 11. janúar.
Southampton mætir Manchester City,
Nottingham Forest mætir Wolves og
Newcastle mætir Leicester.
N'Golo Kanté, miðjumaður enska
knattspyrnufélagsins Chelsea, verður
frá keppni vegna meiðsla fram í febr-
úar. Þetta tilkynnti Graham Potter,
stjóri Chelsea, á blaðamannafundi í
gær en Kanté, sem er 31 árs gamall,
lék síðast með Chelsea í ágúst þegar
liðið gerði jafntefli gegn Tottenham í
deildinni. Kanté hefur verið að glíma
við meiðsli aftan í læri allt tímabilið og
missti þar af leiðandi af heimsmeist-
aramótinu í
Katar m ð
franska
landslið
Chelsea
með 21
áttunda
úrvalsd
innar en
hefur sa
Kantés
á tímab
e
inu.
er
stig í
sæti
eildar-
liðið
knað
mikið
ilinu.
fékk öll þessi mál í fangið en það
sem situr eftir er allur lærdómur-
inn og reynslan sem ég sjálfur
öðlaðist sem þjálfari og manneskja
auðvitað. Það kom tímapunktur þar
sem ég, Ómar Smárason deildar-
stjóri samskiptadeildar og Sigurður
Sveinn Þórðarson liðstjóri karla-
landsliðsins vorum einir eftir og
allir aðrir farnir. Stjórnin var farin,
formaðurinn farinn og sambandið
var svo gott sem hauslaust.
Ég get hlegið að þessu augnabliki
núna, þar sem ég sat einn með
Ómari og Sigga og velti hlutunum
fyrir mér, en ég gerði það ekki þá.
Við reyndum að gera eins gott úr
þessum aðstæðum og við gátum en
við gerðum líka okkar mistök. Mað-
ur lifir hins vegar og lærir í þessum
heimi og nú þegar það er smá logn-
molla í kringum okkur get ég sagt
að þetta var góður skóli þó ég væri
ekki til í að gera þetta aftur.“
Pressan alltaf til staðar
Í sumar bárust fréttir af því að
Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður
KSÍ, hefði rætt við Heimi Hall-
grímsson um að taka við þjálfun
karlalandsliðsins.
„Þetta fór ekki í taugarnar á mér,
ekki þannig. Svona er bara fótbolta-
heimurinn og pressan er og verður
alltaf til staðar. Ég var atvinnumað-
ur í 16 ár og hefur verið þjálfari í 8
ár þannig að ég tel mig þekkja fót-
boltaheiminn ágætlega. Það fylgja
því ákveðin forréttindi líka að vera í
starfi þar sem pressan er til staðar,
því þá veistu fyrir víst að þú ert í
starfi í háum gæðaflokki. Ég geri
bara þær kröfur til sjálfs mín að ég
nái árangri og ég hef aldrei þekkt
neitt annað, hvorki sem leikmaður
né þjálfari.
Svo framarlega sem mínar skoð-
anir, og Vöndu, eru byggðar á þekk-
ingu en ekki tilfinningum þá veit ég
að hún er að vinna sína vinnu og ég
mína. Ég kunni líka að meta það að
hún var opin við mig með þessar
viðræður sínar við Heimi. Þetta
mál er einfaldlega búið og það er í
raun ekkert meira um það að segja.
Á sama tíma græði ég lítið á því að
pirra mig á svona hlutum enda er
þetta ekki neitt sem ég get stjórnað.
Þetta er ekki einsdæmi hjá KSÍ,
ég þekki marga þjálfara sem hafa
unnið leik á þriðjudegi og svo verið
reknir á miðvikudegi.“
Lokar aldrei dyrunum
Albert Guðmundsson hefur ekki
verið í náðinni hjá þjálfaranum
að undanförnu og var ákveðið
fjaðrafok í kringum það þegar hann
var ekki valinn í hópinn fyrir lands-
leikjagluggann í september.
„Framtíð hans með liðinu er bara
opin eins og ég hef áður sagt. Ég
ætlast til ákveðinna hluta hjá mín-
um leikmönnum og reglurnar hjá
mér eru ekki margar. Ég hef sjálfur
verið leikmaður og ég sé mjög
mikið með mínum tveimur augum
ef svo má segja. Þegar allt kemur
til alls snýst þetta fyrst og fremst
um hegðun og hugarfar. Albert er
gríðarlega hæfileikaríkur leikmaður
og hann er einn sá hæfileikaríkasti
sem hefur leikið með landsliðinu
undir minni stjórn en hann verður
að vera í þessu 100%.
Ég hef oft tekið dæmi með Gylfa
Þór Sigurðsson sem er klárlega
einn besti leikmaður sem hefur spil-
að fyrir landsliðið. Hans hugarfar
var alltaf upp á 10, bæði innan
sem utan vallar. Hann lagði einna
mest á sig í öllum leikjum og líka á
æfingum liðsins. Ég hef rætt þessa
hluti opinskátt við Albert og hann
veit hvar minn hugur liggur. Um
leið og hann lagar ákveðna hluti þá
eru dyrnar alltaf opnar hjá mér. Ég
mun aldrei loka neinum dyrum á
leikmenn enda er það vinnuregla
hjá mér að láta ekki stjórnast af
tilfinningum. Ég mun halda áfram
að taka mínar ákvarðanir út frá
þekkingu fyrst og fremst.“
Neikvæðnin háværust
Arnar Þór hefur fengið sinn skerf
af gagnrýni síðan hann tók við
landsliðinu.
„Ég hef ekkert á móti gagnrýni
ef það er einhver þekking á bak við
hana. Ef þú ætlar að gagnrýna val
mitt á hópnum, liðinu eða taktíkinni
sem ég vil spila þá skal ég glaður
hlusta ef gagnrýnin er málefnaleg.
Því miður er það þannig í dag, í
samfélaginu sem við búum í, að
gagnrýnin er oft byggð á tilfinning-
um eða einhverju öðru undirliggj-
andi sem býr að baki þar sem að þú
ert að reyna að koma einhverjum
öðrum að til dæmis. Þeirri gagnrýni
get ég ekki tekið alvarlega. Á sama
tíma eru það oftast þessar skoðanir
sem verða hvað háværastar og þeir
dreifa sér alla jafna út í samfélagið.
Staðan er einfaldlega sú að það
er ekkert gaman að því að smella
á fréttir sem eru með jákvæða fyrir-
sögn og neikvæð fyrirsögn selur oft
á tíðum miklu betur.
Ég hef reynt að taka þessu ekki
persónulega en það er ekki alltaf
auðvelt. Þú þarft að grafa djúpt til
að verja þig fyrir svona gagnrýni
og stundum þarf maður að moka
sig upp úr ansi stórri holu þegar
gagnrýnin er hvað mest. Oft á tíð-
um er gagnrýnin líka bara ósann-
gjörn, eins og til dæmis þegar við
unnum San Marínó. Við gáfum það
út fyrir þann leik að við myndum
gefa ungum leikmönnum tækifæri
og við gerðum ellefu breytingar á
byrjunarliðinu. Þegar við komum
heim þá var þetta eins og við hefð-
um farið í burtu í þrjár vikur, spilað
sjö leiki við San Marínó og tapað
þeim öllum, sem mér fannst mjög
ósanngjarnt.“
Allt undir á næsta ári
Fram undan er svo undankeppni
EM 2024 sem fram fer í Þýskalandi
en öll undankeppnin verður leikin
á næsta ári og dróst Ísland í J-riðil
ásamt Bosníu, Liechtenstein, Lúx-
emborg, Portúgal og Slóvakíu.
„Mér líst mjög vel á þennan riðil
og ef ég hefði fengið að velja eitt
lið úr styrkleikaflokki tvö þá hefði
ég valið Bosníu. Eins og þetta
horfir við mér þá verða það Bosnía,
Slóvakía og svo Ísland sem berjast
um þetta annað sæti riðilsins. Lúx-
emborg er líka með lið sem hefur
bætt sig mikið en ég er ánægður
með þennan drátt. Liðin munu
kroppa stig hvert af öðru og það má
ekki gleymast að töpuð stig hér eða
þar eru alls enginn dauðadómur.
Þetta verður mikil barátta alveg
fram í nóvember og leikjaplanið í
mars verður erfitt þegar við mæt-
um Bosníu á útivelli. Á sama tíma
förum við í þann glugga með breitt
bak og höfum fulla trú á okkur.
Ég er með samning út árið 2023
og það er eðlilegt að horft verði
til árangurs liðsins í undankeppni
EM, þegar að við setjumst niður
að samningnum liðnum. Liðið tók
framförum á þessu ári og markmið-
ið er að halda áfram að taka skref
fram á við. Ég finn það á fjölmiðlum
að við tókum framförum á árinu
sem er að líða, einfaldlega vegna
þess að það hefur verið ákveðið
logn í umræðunni í kringum karla-
landsliðið. Þeir sem eru neikvæðir
og vilja vera neikvæðir eru að bíða
eftir undankeppninni og það er
bara eðlilegt að mitt starf verði
dæmt út frá því hvernig okkur
gengur í henni,“ bætti Arnar Þór
við að lokum.
Morgunblaðið/Eggert
Mark Hákon Arnar Haraldsson, Hörður Björgvin Magnússon, Arnór Sigurðsson, Þórir Jóhann Helgason, Davíð
Kristján Ólafsson og Birkir Bjarnason fagna marki Þóris Jóhanns gegn Ísrael i Þjóðadeildinni í júní í sumar.
Fyrsta æfingin 28. desember
Hópurinn kemur saman á fyrstu
æfinguna miðvikudaginn 28. desem-
ber, allir nema þeir átta leikmenn
sem spila í þýsku 1. deildinni. Þeir
þurfa að leika með sínum félags-
liðum milli jóla og nýárs og mæta
síðan til leiks en lokaundirbúningur
Guðmundar með allan hópinn hefst
mánudaginn 2. janúar.
Liðið æfir þá saman í fjóra daga
en fer síðan til Þýskalands og mætir
þar þýska landsliðinu undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar í Bremen og
Hannover dagana 7. og 8. janúar.
Þaðan verður haldið til Kristian-
stad í Svíþjóð og leikið gegn Portú-
gal, Ungverjalandi og Suður-Kóreu
í D-riðli heimsmeistaramótsins
dagana 12., 14. og 16. janúar.
Þrjú af þessum fjórum liðum
komast áfram í milliriðil sem
leikinn verður í Gautaborg og mæta
þar liðunum sem enda í þremur
efstu sætum C-riðils. Í honum leika
Svíþjóð, Brasilía, Grænhöfðaeyjar
og Úrúgvæ. Leikdagar þar eru 18.,
20. og 22. janúar.
Til þess að komast í átta liða
úrslitin í Stokkhólmi þarf íslenska
liðið að ná öðru sæti í þessum milli-
riðli en þau eru leikin 25. janúar.
Síðan er leikið um endanleg sæti á
heimsmeistaramótinu dagana 27. og
29. janúar.
Viktor Gísli Hallgrímsson væru
aðalmarkverðir liðsins en þar sem
Viktor væri að jafna sig af meiðsl-
um í olnboga væri Ágúst Elí til taks
og myndi æfa með liðinu fram að
brottför.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val
Viktor Gísli Hallgrímsson, Nantes
Ágúst Elí Björgvinss., Ribe-Esbjerg
Vinstra horn:
Bjarki Már Elísson, Veszprém
Hákon D. Styrmiss., Gummersbach
Vinstri skyttur:
Aron Pálmarsson, Aalborg
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg
Ólafur Guðmundsson, Amicitia
Miðjumenn:
Gísli Þ. Kristjánsson, Magdeburg
Janus Daði Smárason, Kolstad
Elvar Örn Jónsson, Melsungen
Hægri skyttur:
Ómar Ingi Magnússon, Magdeburg
Viggó Kristjánsson, Leipzig
Kristján Örn Kristjánsson, Aix
Hægra horn:
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad
Óðinn Ríkharðsson, Kadetten
Línumenn/varnarmenn:
Ýmir Örn Gíslason, RN Löwen
Arnar Freyr Arnarsson, Melsungen
Elliði S. Viðarsson, Gummersbach
Björgvin er reyndastur
Björgvin Páll Gústavsson mark-
vörður er leikreyndasti leikmaður
Íslands á mótinu en hann á 244
A-landsleiki að baki. Aron Pálm-
arsson hefur leikið 158 landsleiki,
Ólafur Andrés Guðmundsson 137 og
Bjarki Már Elísson 91.
Aron er markahæsti leikmað-
urinn með 618 mörk fyrir íslenska
landsliðið. Bjarni Már hefur skorað
291 mark, Ólafur Andrés 269 og
Ómar Ingi Magnússon er orðinn
fjórði markahæstur af núverandi
landsliðsmönnum með 216 mörk í
66 landsleikjum.
Hákon Daði er reynsluminnstur
með átta landsleiki og Elvar Ás-
geirsson hefur spilað níu sinnum
með A-landsliði Íslands, en það eru
einmitt síðustu níu landsleikirnir,
eftir að hann kom í fyrsta sinn inn í
hópinn á EM í janúar.
Morgunblaðið/Eggert
Reyndastir Aron Pálmarsson er markahæstur núverandi landsliðsmanna
og Björgvin Páll Gústavsson er leikjahæstur í hópnum.