Morgunblaðið - 24.12.2022, Qupperneq 40
MENNING40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 2022
Hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
„Marius er bæði einn besti vinur
minn og mikilvægasti samstarfs-
félagi þegar kemur að sviðsvinnu,“
segir Benedict Andrews sem
leikstýrir Ellen B. eftir þýska
leikskáldið Marius von Mayenburg
sem Þjóðleikhúsið frumsýnir á
Stóra sviðinu annan í jólum. Um er
að ræða fyrsta
verkið í nýjum
þríleik sem
verður heims-
frumsýndur hér-
lendis. Andrews
leikstýrir einnig
öðru verki
þríleiksins, Ex,
sem frumsýnt
er 28. janúar,
en höfundurinn
leikstýrir sjálfur í haust þriðja
verkinu, Egal.
Mayenburg starfaði lengi sem
dramatúrg við Schaubühne-leik-
húsið í Berlín en hefur líka unnið
sem leikstjóri og þýðandi. Að sögn
Andrews eru rúm 20 ár síðan þeir
Mayenburg kynntust þegar sá
síðarnefndi var á ferðalagi um Ástr-
alíu þar sem Andrews er fæddur
og uppalinn og hóf leikstjórnarferil
sinn. „Í raun má segja að hann
beri ábyrgð á því að ég fór líka að
leikstýra í evrópskum leikhúsum,“
segir Andrews og rifjar upp að í
upphafi ferils síns hafi hann verið
eins og Konstantín í Mávinum eftir
Tsjekhov.
Fer alltaf inn að kviku
„Ég var að leita að nýjum leikhús-
formum og óhræddur við að gera
tilraunir samtímis því sem ég hafði
augun opin fyrir áhugaverðum leik-
skáldum sem gætu fangað samtím-
ann í textum sínum,“ segir Andrews
og bendir á að slíkt leikskáld hafi
hann fundið í Mayenburg þegar
hann las leikrit hans Feuergesicht.
„Mér leið eins og ég væri að lesa
grískan harmleik sem Tarantino
hefði endurskrifað. Leikritið bjó yfir
einstökum krafti, var tilraunakennt
í forminu þar sem knappar senur
bjuggu til góða snerpu. Á sama
tíma bjó hrár frumkraftur að baki
textanum þar sem fjallað var um
níhílíska krísu minnar kynslóðar. Ég
heillaðist því umsvifalaust af Mari-
usi sem leikskáldi. Hann fer alltaf
inn að kviku, en þó aldrei til þess
eins að stuða fólk,“ segir Andrews
sem leikstýrði verkinu hjá Sydney
Theater Company. Í framhaldinu
bauðst Andrews að leikstýra hjá
Schaubühne, þar sem Mayenburg
og Thomas Ostermeier höfðu tekið
við stjórnartaumum. Þar leikstýrði
Andrews á árunum 2004 til 2010
verkum eftir Mayenburg, Söruh
Kane, David Harrower, Caryl
Churchill og Tennessee Williams.
„Í tuttugu ár höfum við Marius
reglulega unnið saman og átt í
löngu listrænu samtali. Hann er
einn af þeim manneskjum sem fá
fyrstar að lesa alla nýja texta sem
ég skrifa, hvort sem það eru hand-
rit, ljóð eða bækur,“ segir Andrews
og rifjar upp að þeir hafi reglulega
hist á zoom eftir að heimsfaraldur-
inn braust út og þar hafi Mayen-
burg sagt sér frá nýju verkunum
sem nú mynda þríleikinn sem frum-
sýndur verður í Þjóðleikhúsinu.
Snjall höfundur
„Á þeim tíma vissum við ekki
hvort og hvenær hægt yrði að opna
leikhúsin aftur svo Marius sá jafn-
vel fyrir sér að hægt væri að leika
verkin heima í stofu. Ég las verkin
jafnóðum og hann skrifaði þau,“
segir Andrews og segist umsvifa-
laust hafa heillast af þríleiknum þar
sem sér finnist kveða við nýjan tón
hjá Mayenburg.
„Tæknilega er hann einstaklega
snjall höfundur, sem sést til dæmis
á því valdi sem hann hefur á rytma í
samtölum persóna. Verkin eiga það
sameiginlegt að vera mjög fyndin á
sama tíma og þau eru hrá og dular-
full,“ segir Andrews og bendir á að
persónur verkanna séu einstaklega
spennandi og túlkun þeirra mikill
línudans þar sem mikilvægt sé að
skilja það eftir hjá áhorfendum að
lesa í samskipti og afstöðu persóna.
Sýnd og reynd takast á
„Textinn býður áhorfendum stöð-
ugt upp á að túlka hlutina á marg-
víslegan hátt, sem er spennandi.
Við þurfum sífellt að velta fyrir
okkur hverjum er treystandi
hvenær, því það breytist í sífellu.
Verkin þrjú, ekki síst Ellen B., fjalla
um valdabaráttu persóna og hvaða
þýðingu það hafi að gera sér ljóst að
maður hafi mögulega lifað lífi í lygi.
Grunnspurning verkanna, sem snýr
að því hvað sé satt og hvað logið, er
í ákveðnum skilningi líka grunnstef
leikhússins þar sem við erum sífellt
að takast á við sýnd og reynd,“ seg-
ir Andrews og tekur fram að fyrir
sér sem listamanni sé mikilvægt
að veita ekki nein auðveld eða skýr
svör til að gefa áhorfendum tæki-
færi á að hugleiða efnið áfram eftir
að sýningu lýkur.
„Fyrir mér á leikhúsið að vera
rannsóknarstofa fyrir krísur. Í
leikhúsinu getum við skoðað og
greint hluti sem erfitt er að greina
annars staðar. Þar gefst okkur
tækifæri til að skoða og setja okkur
í spor persóna sem minna á okkur
sjálf en eru á sama tíma ekki eins
og við. Þar gefst okkur tækifæri til
að skoða eigin galla og þverstæður
á öruggan hátt.“
Snýst um vinnu leikarans
Í Ellen B. hittum við fyrir Astrid
og Klöru sem hafa verið saman um
nokkurn tíma. Astrid er mennta-
skólakennari á fimmtudagsaldri
og 15 árum eldri en Klara, en þær
kynntust þegar Astrid var kennari
Klöru. Í upphafi verks mætir Wol-
fram, yfirmaður Astridar, í heim-
sókn og kemur öllu í uppnám. Með
hlutverkin fara Unnur Ösp Stefáns-
dóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir og
Benedikt Erlingsson, sem lék síðast
á sviði fyrir um áratug. Í verkinu
tekst höfundur á við spurningar um
valdajafnvægi og trúnaðartraust í
nánum samböndum, mörkin milli
atvinnu og einkalífs, lygina og sann-
leikann, kynferðislega áreitni og
ásakanir, hvort sem þær eru falskar
eða sannar.
„Fyrstu tvö verkin minna mig um
margt á kammerverkin eftir Ibsen
þar sem gestur kemur inn á heimili
og raskar því jafnvægi sem ríkt
hefur milli persóna. Þetta eru verk
sem skoða valdasamspil persóna
og fá okkur til að efast um sann-
leiksgildi þess sem er sagt,“ segir
Andrews og tekur fram að það hafi
heillað sig að fá að leikstýra verkum
sem snúist fyrst og fremst um
vinnu leikarans.
„Þessi verk gera ótrúlega miklar
kröfur til leikhópsins. Mér líður
sem leikstjóra eins og boxþjálf-
ara sem þarf að hjálpa þremur
keppendum í þungavigtarflokki
að keppa til sigurs með allri þeirri
snerpu, úthaldi og styrk sem það
krefst,“ segir Andrews og hrósar
leikhópnum sínum í hástert, en með
hlutverkin í Ex sem hann frumsýnir
eftir mánuð fara Nína Dögg Filipp-
usdóttir, Gísli Örn Garðarsson og
Kristín Þóra Haraldsdóttir.
Takast á innan sama hrings
Nina Wetzel, sem unnið hefur
náið með Mayenburg og Oster-
meier við Schaubühne-leikhúsið,
hannar leikmynd og búninga
þríleiksins. „Leikmyndin er sú sama
í öllum þremur verkum sem bindur
þau saman með sjónrænum hætti.
Þannig sjáum við ólíka keppendur
takast á innan sama boxhringsins,
ef svo mætti segja,“ segir Andrews
og tekur fram að sér hafi fundist
spennandi að gefa áhorfendum
tækifæri til að skoða verkin sem
heild og bera saman innihaldið
þótt verkin þrjú muni einnig geta
staðið ein og sér. „Með sama hætti
og litaþríleikur Kieslowskis myndar
sterka heild en einnig er hægt að
skoða hverja kvikmynd sem sjálf-
stætt verk.“
Andrews hrósar Magnúsi Geir
Þórðarsyni leikhússtjóra fyrir þá
dirfsku að setja verkin þrjú upp á
Stóra sviðinu. „Fámenn verk eru
oftast sett upp á minni sviðum, en
frábær uppfærsla leikhússins á
Úlfinum í leikstjórn Unnar Aspar
sýndi okkur að Stóra sviðið getur
opnað algjörlega nýja möguleika
fyrir slík verk. Með því að setja
þríleikinn upp á Stóra sviðinu eru
verkin í ákveðnum skilningi með-
höndluð líkt og þau væru klassík,“
segir Andrews og vísar þar einnig
til þess að í Þjóðleikhúsinu sé löng
hefð fyrir því að frumsýna klassísk
verk annan í jólum. Sjálfur hefur
Andrews leikstýrt tveimur verkum
eftir Shakespeare á Stóra sviðinu
sem voru jólasýningar, fyrst Lé kon-
ungi, sem frumsýndur var annan í
jólum 2010, og síðan Macbeth, sem
frumsýndur var annan í jólum 2012.
Traustið forréttindi
„Mér finnst frábært að fá tæki-
færi til að vinna aftur með íslensk-
um leikurum og ég er hér með sex
framúrskarandi leikara,“ segir
Andrews og tekur fram að hann ef-
ist um að hægt væri að setja verkin
upp nema vera með réttu leikarana
sem henti í hlutverkin. „Sú mikla
nánd og vinátta sem einkennir
íslenskan leikhús- og kvikmynda-
heim skilar sér í miklu trausti sem
hægt er að byggja á strax frá fyrstu
æfingu, sem eru mikil forréttindi,“
segir Andrews og bendir á að þetta
séu gæði sem ekki sé hægt að ganga
að í leikhúsum erlendis.
„Ég man mjög vel eftir því þegar
ég var að leikstýra Shakespeare-
verkunum tveimur hér í húsinu
hversu mjög ég dáðist að þeim
hæfileika íslenskra leikara að vera
drepfyndin samtímis því að vera
grimm, nákvæm og hrein og bein,
sem er ómetanleg gáfa,“ segir
Andrews og bætir við að hann sé
hugfanginn af nærveru, leikgleði og
hollustu leikhópanna tveggja sem
hann vinni með nú um stundir.
l Þjóðleikhúsið frumsýnir EllenB. eftirMarius vonMayenburg í leikstjórnBenedictsAndrews
l Leikstjórinn segir kveða við nýjan tón hjá leikskáldinu í þríleiknumEllenB., Ex ogEgal
„Rannsóknarstofa fyrir krísur“
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja @mbl.is
Ljósmynd/Jorri
Átök Unnur Ösp Stefánsdóttir, Ebba Katrín Finnsdóttir og Benedikt Erlingsson í hlutverkum sínum í Ellen B.
Benedict Andrews