Morgunblaðið - 24.12.2022, Blaðsíða 48
Í lausasölu 1.410 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
LAUGARDAGUR 24. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2022
MENNING
Orgeltónleikar í Hallgrímskirkju
haldnir annan í jólum kl. 17
Björn Steinar Sólbergsson, organisti Hallgrímskirkju,
leikur vinsæl orgelverk á tónleikum í Hallgrímskirkju á
mánudag, annan í jólum, kl. 17. Á efnisskránni eru verk
eftir Johann Sebastian Bach, Claude Balbastre, César
Franck og Charles-Marie Widor sem tengjast fæðingu
frelsarans. Jafnframt verður frumflutt eftir Hrafnkel
Orra Egilsson Pastorale yfir jólasálminn Nóttin var sú
ágæt ein. Miðar fást á tix.is og við innganginn.
ÍÞRÓTTIR
Sautján sem léku á EM fara á HM
Sautján af þeim nítján leikmönnum sem Guðmund-
ur Þ. Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í
handknattleik, valdi í gær til lokaundirbúnings
fyrir heimsmeistaramótið léku með íslenska liðinu
á Evrópumótinu í janúar á þessu ári. Björgvin Páll
Gústavsson er leikjahæsti leikmaður liðsins og Aron
Pálmarsson er sá markahæsti.» 38
Fjórir ættliðir og fjögur systkini
eru í kór Hólaneskirkju á Skaga-
strönd. Systurnar Guðrún og
Hjördís Sigurðardætur hafa verið
í kór Hólaneskirkju á Skagaströnd
í um 70 ár, en Gylfi og Árni Ólafur,
bræður þeirra, eru einnig í kórn-
um. Hallbjörg Jónsdóttir, dóttir
Guðrúnar og Jóns Ólafs Ívarsson-
ar, Jenný Lind Sigurjónsdóttir,
dóttir Hallbjargar og Sigurjóns
Inga Ingólfssonar, og Hallbjörg
Jónsdóttir yngri, barnabarna-
barn Guðrúnar, dóttir Jóns Ólafs
Sigurjónssonar og Hugrúnar Sifjar
Hallgrímsdóttur kórstjóra, syngja
jafnframt í kórnum. „Ég sagði einu
sinni að þetta væri fjölskyldukór-
inn okkar,“ segir Guðrún.
Hugrún Sif, skólastjóri Tónlist-
arskóla Austur-Húnavatnssýslu,
hefur stjórnað kórnum í 18 ár.
„Sóknarnefndarformaðurinn
stoppaði mig úti á götu og spurði
hvort ég væri til í að prófa þetta,
ég sló til og hef stjórnað kórnum
síðan,“ segir hún. Um 30 manns
eru í kórnum, sem æfir á þriðju-
dagskvöldum. Hann syngur í
messu í Hólaneskirkju klukkan
fimm í dag, aðfangadag, og í Hösk-
uldsstaðakirkju klukkan tvö á
morgun, jóladag, en auk þess sinnir
kórinn Hofskirkju. „Þetta eru háin
þrjú,“ segir Hugrún Sif.
Syngjandi fjölskylda
„Ég hef alltaf verið mikið fyrir
söng og mér finnst ofboðslega
gaman að syngja,“ segir Guðrún
um áhugamálið. Hún fæddist á
Ströndum, dóttir Hallbjargar
Jónsdóttur og Sigurðar Guðmons-
sonar. „Foreldrar mínir voru mikið
tónlistarfólk. Móðir mín spilaði á
harmoníku og pabbi var í kórum
þegar við bjuggum á Ströndum.“
Þau hafi flutt á Skagaströnd 1948
og hún byrjað þar í kirkjukórnum
skömmu síðar eða rétt eftir ferm-
ingu. „Við systurnar vorum löngum
saman heima og sungum og það
endaði með því að við fórum í
kórinn.“
Guðrún taldi tvær dætur sínar
á að koma í kórinn. Þórey hætti
fljótlega vegna vinnu en Hallbjörg
hefur sungið í honum í aldarfjórð-
ung. „Mér hefur alltaf þótt gaman
að syngja, var lengi í leikfélaginu
áður en það lagðist af og hef verið
í leik- og sönghópnum á árlegu
þorrablóti okkar um árabil,“ segir
hún. „Mér líður vel í kirkjunni,
kirkjukórinn er mjög góður félags-
skapur og organistinn frábær. Ég
er ekki hlutlaus því hún er tengda-
dóttir mín!“ Þess má geta að Jón
Ólafur, sonur Hallbjargar, spilar
oft á bassa eða gítar með kórnum.
„Ég spila líka smávegis á gítar,“
upplýsir Hallbjörg. „Mamma átti
gítar og við systurnar djöfluðumst
í honum en skömmu fyrir fermingu
gáfu foreldrar okkur gítar í jólagjöf
og ég hef spilað síðan.“
Hallbjörg segist syngja hvað sem
er og sérstaklega dægurlög. „Mér
finnst mest gaman að vera í hópi
þar sem fjórar raddir koma saman
og heyra samhljóminn eftir að hafa
æft allar raddirnar.“
lFjórirættliðir og fjögur systkini í kórHólaneskirkju
Fjölskyldutengslin
sterk í kirkjukórnum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kórsystkini Frá vinstri: Gylfi, Hjördís, Guðrún og Árni Sigurðarbörn.
Fjórir ættliðir Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Guð-
rún Sigurðardóttir og Jenný Lind Sigurjónsdóttir.
Nánar á w w w.it r.is
w w w. i t r. i s
L augarnar í Reykjavík
GJAFAKORT
Í SUND EÐA FJÖL-
SK YLDUGARÐINN
ER GÓÐ JÓLAGJÖF
Skoðaðu afgreiðslutíma
sundstaða og Fjölsk yldu-
garðsins um jól og áramót
á www.itr.is