Morgunblaðið - 27.08.2022, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022
Ákvörðunin um söluna á Vísi hf. til Síldarvinnsl-
unnar var erfið og réðst af því hvort verð þótti
sanngjarnt og hvort breytingin myndi efla rekst-
urinn í Grindavík, segir Pétur Hafsteinn Pálsson.
Morgunblaðið/Eggert
4-6
27.08.2022
27 | 08 | 2022
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Auglýsingar
Bjarni Ólafur Guðmundsson
daddi@k100l.is
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Prentun
Landsprent ehf.
Í opinskáu viðtali í þessu blaði ræðir
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri og einn eigenda Vísis hf., um sölu
fyrirtækisins til Síldarvinnslunnar. Þar
varpar hann ljósi á mikilvægi þess að
skilgreina við hvað sé miðað þegar rætt
er um samþjöppun í sjávarútvegi.
Fyrir liggur að samþjöppun, þegar lit-
ið er til fjölda fyrirtækja, er töluvert
minni í íslenskum sjávarútvegi en öðr-
um atvinnugreinum, eins og skýrslur
Bláa hagkerfisins hafa sýnt fram á. Pét-
ur bendir hins vegar á að þegar fjöl-
skyldu- eða einstaklingsfyrirtæki sam-
einast skráðu félagi fjölgar gríðarlega í
eigendahópnum. Hann spyr því rétti-
lega: „Mánudaginn 11. júlí fækkaði fyr-
irtækjum í sjávarútvegi um eitt en hlut-
höfum fjölgaði um tugi ef ekki hundruð.
Er það samþjöppun?“
Varla getur það verið sérstakt mark-
mið að hafa margar óhagkvæmar ein-
ingar sem ekki standast alþjóðlega
samkeppni, geta ekki boðið heilsárs-
störf og hafa fáa eigendur, einungis í
þeim tilgangi að sporna við meintri
samþjöppun í sjávarútvegi.
Skilar slíkt auknum verðmætum til
þjóðarbúsins?
gso@mbl.is
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Nær hugtakið samþjöppun bara til fjölda fyrirtækja?
Fiskeldisstöðvar eru að færa sig úr
næloni yfir í léttara og sterkari efni,
segir Erna Kristjánsdóttir.
Morgunblaðið/Hákon
8
Ólafur Helgi Marteinsson kveðst
binda vonir við að hægt verði að
landa samningum við sjómenn án
þess að komi til verkfalls.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
10
Skortur á mannskap leiddi til þess
að drónaeftirlitið náði ekki í jafn
miklum mæli til stærri skipa og til
smábáta, segir Elín B. Ragnars-
dóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
16
„Það hefur sýnt sig að plastið er
ekki nógu sterkt og viðgerðar- og
viðhaldsþörf plastbátanna meiri en
reiknað var með,“ segir Þráinn
Jónsson.
22