Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 6

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 hluta af þessum bolfiski inn í vinnsl- urnar sínar á Dalvík og Akureyri. Síldarvinnslan er ekki með neina slíka framleiðslugetu. En við erum líka mjög ánægð með það að kjölfestufjárfestarnir í Síld- arvinnslunni séu Samherji, Gjög- ursfólkið, fólk og fyrirtæki sem við þekkjum mjög vel að góðu einu og líf- eyrissjóðir. Samsetning hluthafa er mjög flott. Það er samt ekki Samherji sem er að kaupa. Þetta er almenn- ingsfyrirtæki sem er að kaupa því það vantar það sem við höfum. Það er þetta sem við trúum á. Við erum þeirrar trúar að forsendur okkar séu réttar og okkar metnaður stendur til þess að vera jafnmikið til fyrirmynd- ar með bolfiskinn hér og uppsjávar- hlutinn er fyrir austan.“ Söluverðið sanngjarnt Vísir hf. er meðal stærstu botnsjáv- arútgerða landsins og fylgja því tölu- verðar aflaheimildir kaupum Síldar- vinnslunnar á útgerðarfyrirtækinu, alls 14.744 þorskígildistonn miðað út- hlutun vegna fiskveiðiársins 2021/ 2022. Útgerðarfyrirtækið er með fjórðu mestu aflaheimildirnar í þorski á landinu eða 5,4% hlutdeild í heildaraflamarki í tegundinni og rúmlega 6% aflahlutdeild í ýsu. Því hefur verið velt upp hvort eig- endur Vísis hefðu átt að fá hærra verð fyrir hluti sína í félaginu í ljósi hinna miklu aflaheimilda og hafa sumir vísað til verðs á kvóta á mark- aði, sem gæti verið um 4.000 krónur á kíló af þorski. Spurður um þá gagnrýni sem salan hefur fengið, ekki síst söluvirðið, svarar Pétur: „Það sjá allir að þetta eru háar upphæðir þótt megnið hafi verið greitt með hlutabréfum. Við vissum að við myndum fá gagnrýni frá þeim sem myndu segja að þetta væri allt of mikið og frá þeim sem myndu segja að þetta væri allt of lítið.“ Hann kveðst ekki vita nákvæmlega hvaða þættir hafi ákvarðað það verð sem tilboð Síldarvinnslunnar hljóðaði upp á, enda hafi hann ekki verið við- staddur þegar sú vinna fór fram. Hann segir þó getgátur um að verð- mæti kvótans sem fylgir fyrirtækinu hefði kallað á hærri upphæð ekki taka tillit til raunverulegra aðstæðna. „Markaðurinn verðmetur ekki sjáv- arútvegsfyrirtæki á upplausnarverði. Segjum sem svo að við hefðum ákveðið að hætta og taka sem mest út úr þessu. Þá hefðum við byrjað að selja fyrirtækið í bútum og þá er fljótt að koma taprekstur í fyrir- tækið. Þetta myndi taka tíma, en daginn sem við færum að selja kvóta yrðu eignir okkar, skip og tæki, verðlaus. Allt markaðsstarfið verðlaust, við- skiptasamböndin, vörumerkið og allt saman. Þá fengjust verðmæti úr veiðiheimildunum en við þyrftum að borga skatt af þeim. Að ræða um eitt- hvað jaðarverð á kvóta er bara rugl. Það vita það allir að rekstrarvirði kvóta er kannski um helmingur af því sem hann selst á í dag – s.s. raun- verulegt virði. Við erum að fá sann- gjarnt verð.“ Snýst ekki allt um peninga Pétur viðurkennir að upplausnarvirði Vísis gæti mögulega náð 60 milljörð- um króna en sem fyrr segir myndi því fylgja kostnaður auk þess sem það séu ekki einungis peningar sem máli skipta. „Það var markmið okkar að starfsmennirnir og allir sem hafa einhverra hagsmuna að gæta af starfseminni fyllist frekar tilhlökkun en kvíða vegna sölunnar – að þessar 200 til 250 fjölskyldur plús samfé- lagið okkar beri ekki skaða af. Á það er ekki hægt að setja verðmiða.“ Skyldan gagnvart starfsfólkinu er ekki einungis tilfinning heldur mark- mið sem er í skriflegu undirrituðu samkomulagi milli systkinanna og foreldra þeirra heitinna. Þetta hafi alltaf verið rauði þráðurinn frá upp- hafi og þegar systkinin sex urðu hlut- hafar árið 1981. „Þess vegna var þetta tækifæri gripið þegar trúverð- ugt tilboð barst. Í öllum fjölskyldu- fyrirtækjum í sjávarútvegi er ríkjandi vilji og afl, sem er varla hægt að henda reiður á, sem passar ekkert við einhverja mælikvarða í fjármála- geiranum. Það er í raun skondið að heyra há- skólaprófessora tala eins og þessi þáttur sé ekki til. Þetta er einn stærsti þáttur í íslenskum sjávar- útvegi. Ef litið er til minni fyrirtækja, af hverju eru menn ekki löngu búnir að selja ef þetta snýst bara um pen- inga? Það eru nánast allir í þessu sem starfa í fyrirtækjum með sögu sem spannar 50, 70 eða 120 ár,“ fullyrðir Pétur. Gagnrýnin kom á óvart Pétur telur gagnrýnina, sem salan hefur fengið, ekki hafa verið ósann- gjarna eða óvægna, en eitt og annað hafi komið honum á óvart. „Einkenni- legast í þessu hefur verið að stjórn- málamenn, sem hafa talað vel um opinbera hlutabréfamarkaðinn, hafi gagnrýnt þetta af eins miklum krafti og raun ber vitni. Tali þannig að það, að fjölskyldufyrirtæki sameinist fé- lagi sem skráð er á markaði og opni þannig fyrir að almenningur geti far- ið að kaupa í fyrirtækinu og orðið þátttakendur í rekstrinum, skuli vera forsenda umræðu um hækkun gjalda á sjávarútvegsfyrirtæki, sem þýðir að almenningur fái minna út úr sinni fjárfestingu. Þetta ætti í sjálfu sér að vera öfugt. Þeir ættu að hvetja til skráningar á hlutabréfamarkað, hvetja almenning til að nálgast þessi fyrirtæki í gegn- um þessi skráðu félög og hóta ekki skattahækkunum þegar það gerist. Ég tel að það að fá sjávarútveginn á hlutabréfamarkaðinn gæti verið hluti af þeirri sátt sem allir vilja.“ Þá telur Pétur einnig einkennilegt hvernig málið hefur verið tengt við þættina Verbúðina. Þættirnir hafi verið ágætir að hans mati og lýst ástandinu sem var mjög vel, en það sem vakið hafi fyrir eigendum Vísis hafi einmitt verið að ljúka verbúðar- kaflanum og tryggja örugg heilsárs- störf. „Frá því að kvótakerfinu var komið á hafa um 50 þúsund tonn ver- ið færð til í alls konar tilfærslum til hinna og þessara verkefna, alltaf mest á kostnað verbúðarfyrirtækja eins og okkar sem reka veiðar og vinnslu og eru að reyna að búa til heilsársvinnu bæði á sjó og í landi. Þetta ætlar engan endi að taka. Nú síðustu tvö ár er til dæmis aukning í strandveiðum á meðan það er 20% niðurskurður í bolfiski hjá þeim sem eru með heilsársvinnlu í fyrirtækjum eins og okkar. Og ráðherra boðar meiri landvinn- inga til hlutastarfanna í strandveið- inni á kostnað heilsársstarfanna. Ef þessar 50 þúsund tonna tilfærslur hefðu ekki verið til viðbótar við annan niðurskurð, þá hefðu færri fyrirtæki farið í þrot, verið seld eða sameinast öðrum en ef eingöngu hefði þurft að takast á við niðurskurðinn á afla- heimildum sem nauðsynlegur var til að verja fiskistofnana frá þeirri of- veiði sem var stunduð. Með samein- ingu sem þessari erum við meðal annars að bregðast við tilfærslum stjórnvalda á veiðiheimildum, að þessu leyti.“ Þá vekur hann athygli á að ákvörð- unin um sameininguna komi einmitt í kjölfar óvenju langs sumarfrís vegna kvótaskerðinga. „Nú getum við mætt fólkinu okkar og sagt að þau séu orð- in hluti af öflugra fyrirtæki og stönd- ugra en áður. Verbúðin ætti í raun að virka sem rök fyrir því sem erum að reyna að gera. Það eru þessi öfug- mæli í gagnrýninni sem kom okkur aðeins á óvart.“ Fyrirtækjum fækkaði en hluthafar margfalt fleiri Miklu frekar hefði verið tilefni til þess að gagnrýna söluna, hefði hún farið þannig fram að fyrirtækið yrði selt á hæsta verði án þess að eigend- ur fengju nokkuð um það að segja hvað yrði gert í framhaldinu, að sögn Péturs. En eigendurnir hafa náð að hafa áhrif á það, meðal annars sem hluthafar í sameinuðu fyrirtæki. Þá hefur salan einnig hlotið gagn- rýni þar sem sumum hafi þótt hún merki um aukna samþjöppun í grein- inni. Sitt sýnist þó hverjum um það að mati Péturs, sem spyr hvort hægt sé að tala um samþjöppun í raun. „Við erum að hleypa fleiri hluthöfum að í gegnum stærra félag. Það eru fleiri eigendur en færri fyrirtæki. Mánudaginn 11. júlí fækkaði fyrir- tækjum í sjávarútvegi um eitt en hluthöfum fjölgaði um tugi ef ekki hundruð. Er það samþjöppun?“ Pétur kveðst sannfærður um að framtíð starfseminnar í Grindavík sé björt og telur að salan sé ekki lok bókarinnar heldur aðeins upphaf nýs kafla. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Pétur Hafsteinn Pálsson (t.v.) ásamt föður sínum Páli H. Pálssyni fyrir um tveimur áratugum, en Vísir hefur frá upphafi verið fjölskyldufyrirtæki. „Það var markmið okkar að starfsmennirnir og allir sem hafa einhverra hags- muna að gæta af starfsem- inni fyllist frekar tilhlökkun en kvíða vegna sölunnar.“ Margir hafa lagt orð í belg í sambandi við söluna á Vísi hf. og vöktuaðsendar greinar Þórólfs Matthías- sonar, prófessors við Háskóla Íslands (HÍ), í Frétta- blaðinu nokkra athygli. Fullyrti hann að eigið fé út- gerðarfyrirtækja væri verulega vanmetið í efna- hagsreikningum þeirra og sakaði hann jafnframt endurskoðendur þeirra um að hafa staðfest eigna- stöðu sem væri í raun skáldskapur. Birkir Leósson, fyrrverandi endurskoðandi Vísis, lenti í ritdeilum við prófessorinn í Fréttablaðinu sem endaði með því að Birkir ákvað að kæra Þórólf til siðanefndar HÍ, eftir að prófessorinn sakaði endur- skoðendur Vísis um að hafa undirritað efnahags- og rekstrarreikning fé- lagsins fyrir árið 2013, þrátt fyrir að hann hefði ekki endurspeglað raun- verulegt virði fyrirtækisins og þannig farið á svig við ákvæði ársreikningalaga. „Það getur vel verið að mönnum þyki að lög eigi að vera öðruvísi en við vitum ekki betur en að lögin séu þannig að það megi hvorki afskrifa né færa upp bókfært virði aflaheimilda í efnahagsreikningi. Það er gagnlegt að ræða hvernig ætti að bókfæra þetta, nauðsynleg fræðileg umræða. En við höfum bara gert þetta í samræmi við þau lög sem eru í gildi. Það eru til menn sem myndu vilja hafa lögin öðruvísi og við gerum ekki athugasemdir við þá skoðun manna þó við séum henni ósammála,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf. Hvorki má afskrifa né færa upp LÖGIN SKÝR UM AFLAHEIMILDIR Í ÁRSREIKNINGUM Þórólfur Matthíasson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Alls fylgja kaupunum sex skip Vísis, þar á meðal línuskipið Páll Jónsson GK-7 sem kom til landsins 21. janúar 2020. ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.