Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 13

Morgunblaðið - 27.08.2022, Page 13
fiskur að fara út af hádegisverð- armatseðlum og öðrum stöðum þar sem fólk vill ódýrari vöru og fólk er ekki að gera eins vel við sig. […] En ég held að fiskur muni áfram njóta góðs af heilsueflingu, stækk- un millistéttarinnar og fólksfjölgun í heiminum. Allir meginstraumar styðja við hátt verðlag á fiski sem er holl og góð vara en að endingu er það þó neytandinn sem á síðasta orðið. Til lengri tíma litið held ég að hvítfiskur verði hátt verðlagður, eigi að vera hátt verðlagður og geti jafnvel hækkað enn meira. En það er alveg ljóst í mínum huga að ef við ætlum að ná fram verðhækk- unum umfram verðlag á mörkuðum verðum við að stýra betur okkar framboði frá Íslandi.“ Hann telur mikilvægt að íslensk- ur hvítfiskur verði að verða verð- mætari vara í hugum neytenda en til þess þarf að fjárfesta meira í ímynd íslenskra sjávarafurða. Að markaðsetningin snúist meira um að hér sé um að ræða umhverf- isvænni vöru, sem veidd er á grundvelli sjálfbærrar nýtingar og með minna kolefnisspor. „Ég held að í þessu liggi heilmikil tækifæri – sérstaklega gagnvart yngri kyn- slóðinni“ Víða hörð átök á vinnumarkaði „Óvissan er mjög mikil horft framá- við,“ fullyrðir Bjarni. „Orkuverð til heimila t.a.m. í Betlandi hefur kannski þrefaldast eða fjórfaldast milli ára. Fyrir fólk sem er með lít- ið svigrúm í sínum fjármálum hefur þetta mikil áhrif. Þá koma kröfur um leiðréttingar á launum. Þess vegna er viðbúið, hvort sem það er hér á landi eða annars staðar, að við séum að fara að horfa fram á nokkuð hörð átök um það hvernig skuli haldið á þessum málum,“ seg- ir hann og bætir við að það eigi eft- ir að koma í ljós hvort hækkun vaxtastigs í hinum vestræna heimi leiði til samdráttar sem styðji við aukið jafnvægi. Þróunin styðji við reksturinn „Við erum í verksmiðjustarfsemi nálægt markaðnum. Yfir 90% af okkar sölu er inn á Evrópu, það er okkar megin markaðssvæði. Þar eru allar okkar virðisaukandi verk- smiðjur,“ segir Bjarni. Starfsem- in hefur verið í samkeppni við framleiðslu í Austur-Evrópu og ekki síst Kína, en töluvert af evr- ópskum fiski hef- ur verið frystur og sendur til Kína í vinnslu áður en hann er frystur á nýjan leik og seldur í stórmörkuðum í Evrópu. Svokölluð tvífryst vara. Verulegar truflanir hafa hins vegar orðið í aðfangakeðjum, ekki bara vegna Covid-19, heldur einnig vegna hækkandi eldsneytisverðs, gámaskorts og vinnuafls. „Hinn vestræni heimur hefur áttað sig á að ekki sé hægt að reiða sig eins mikið á rússneskar vörur og vöru- framleiðslu frá Kína eins og verið hefur. Framleiðslustarfsemin í Kína er þar vegna þess að hún er ódýrari en annar staðar. En launakostn- aður hefur farið hækkandi og flutn- ingskostnaður stóraukist auk við- varandi áhrifa vegna Covid. Þessi jafna er orðin allt önnur í dag og niðurstaðan sú að markaðurinn er í auknum mæli farin að treysta á vöru nær markaðnum og leitar fyrst þar áður en horft er til fjar- lægari slóða Þættir eins og afhendingaröryggi og rekjanleiki vörunnar skiptir nú meira máli ásamt umhverfismálum sem eru á oddinum ansi víða og einungis viðbúið að kröfurnar verði meiri þar á næstunni. Svar okkar við því er að geta tryggt vöruna til okkar viðskiptavina, auka fjárfest- ingu í sjálfvirknivæðingu,staðla vöruframboðið enn meira svo það sé hagkvæmara og setja umhverf- ismálin í forgang.“ Fjölbreyttur vandi í Bretlandi Iceland Seafood sendi í byrjun ágúst út tilkynningu um afkomu fé- lagsins á fyrri árshelmingi. Þar sagði um reksturinn í Bretlandi að „það mun taka lengri tíma og kosta meira en áður var áætlað að koma á stöð- ugleika í rekstrinum. […] Miðað við núverandi horfur er gert ráð fyrir að tap verði á rekstr- inum á öðrum árshelmingi 2022, en jafnvægi verði náð á fyrsta árs- helmingi 2023.“ Bjarni segir að reksturinn í Bret- landi hafi verið mjög erfiður, en það hafi verið samverkandi þættir sem hafa orðið til þess. „Launa- kostnaður hefur aukist töluvert, það er erfiðara að fá vinnuafl, eftir Covid hefur vinnuvilji fólks minnk- að. Það er líka ljóst að Bretland hefur reitt sig á framleiðslu frá Austur-Evrópu og Kína í heil- miklum mæli, og framleiðsluein- ingar þar eru minna sjálf- virknivæddar en maður sér annar staðar í Evrópu. Færri fara frá Evrópu til Bret- lands í atvinnuleit í kjölfar Brexit. Allt sem lýtur að pappírsvinnu og tollagerð sem gerir vörum kleift að fara á milli hefur breyst. Þessir frí- verslunarsamningar sem um var rætt um við stór hagkerfi eins og Japan og Bandaríkin hafa tekið lengri tíma og skilað minna en vænst var til.“ Markmiðið nú sé að ná að gera verksmiðjustarfsemina í Bretlandi arðbæra en til þess þurfi að koma verðhækkunum á hráefni til við- skiptavina, eitthvað sem tekist hef- ur að verulegu leiti. Eins er ljóst að verð á mörgum fisktegundum er að lækka sem aftur stuðlar að jafn- vægi í framleiðslunni. Þá séu við- ræður í gangi við kaupendur um aukin viðskipti auk þess sem unnið sé að fjárfestingum í verksmiðjunni sjálfri sem á að minnka vinnuafl, lækka kostnað og auka afköst. „ Við trúum því að góðir hlutir gerist hægt og höfum mikla trú á því sem við erum að gera í Bretlandi til lengra tíma litið þrátt fyrir hindr- unarhlaup í byrjun.“ Fjárfesta í sólarorku Reksturinn á Írlandi varð sér- staklega fyrir barðinu á mikilli hækkun á verði á laxi en sú hækk- un hefur gengið til baka að mestu leyti og rekstrareiningarnar alls staðar hafa fundið fyrir hækkunum á orkuverði og kælimiðlum, svo eitthvað sé nefnt. En neyðin kennir nakinni konu að spinna, eins og sagt er. „Við erum að mæta þessu á ýms- an hátt, meðal annars með því að koma fyrir sólarsellum á þökum á verksmiðjum okkar í Barselóna og Madríd á Spáni Það mun mæta um fjórðungi af okkar orkuþörf. Svo er auðvitað alltaf verið að leita leiða til að spara orku, en til skemmri tíma er þetta erfitt. Við munum vænt- anlega gera það sama á Írlandi og í auknum mæli verða sjálf ábyrg fyr- ir stærri hluta af okkar orkuþörf,“ segir Bjarni. Hinn vestræni heimur hef- ur áttað sig á að ekki sé hægt að reiða sig eins mik- ið á rússneskar vörur og vöruframleiðslu frá Kína eins og verið hefur. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Verð á Norður-atlantshafslaxi hækkaði ört í byrjun árs sem hafði mikil áhrif á rekstru félagsins á Írlandi. Verð hafa lækkað nokkuð að undanförnu. LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 2022 MORGUNBLAÐIÐ 13 Tórshavn / The Faroe Islands Scrabster / Scotland Scandinavia Norway / Sweden / Finland Europe The Baltics Estonia / Latvia / Lithuania Spain & Portugal Hirtshals Denmark Seyðisfjørður / Iceland Þorlákshöfn / Iceland Rotterdam The Netherlands Smyril Line Cargo Iceland | +354 470 2800 | island@cargo.fo | smyrillinecargo.com Við sækjum og sendum VÖRUR UM ALLA EVRÓPU með skipum, lestum, vörubílum og flugvélum Siglingaleiðir til Íslands MS Norröna Mykines Akranes Eystnes Hvítanes Mistral Skipaflutningar – samstarfsaðilar Akstursþjónusta, um alla Evrópu, allar gerðir af flutningavögnum Akstursþjónusta um alla Skandinavíu, allar gerðir af flutningavögnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.