Morgunblaðið - 18.10.2022, Síða 20

Morgunblaðið - 18.10.2022, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is S tofnendur Vaka voru svo sannarlega framsýnir þeg- ar þeir settu félagið á laggirnar árið 1986. Fyrir- tækið hefur frá upphafi sérhæft sig í þróun og smíði fiski- teljara af öllum stærðum og gerðum en síðar bættust við fiskidælur og fiskflokkarar. Eins hefur fyrirtækið verið leiðandi í stærðarmælingu á eldisfiski, fyrst með notkun inn- rauðrar tækni og nú með sérstökum myndavélum. „Það hefur orðið heil- mikil þróun í notkun gervigreindar og myndavélatækni til að greina stærð og ástand fisksins og nú er farið að fylgjast með öðrum þáttum einnig eins og ágangi laxalúsar og ýmsum heilsufarslegum einkennum á eldisfiski í kvíum og kerum,“ út- skýrir Benedikt Hálfdanarson fram- kvæmdastjóri Vaka. Búnaður Vaka er notaður í fisk- eldi til að gefa eldisfyrirtækjum skýra mynd af vexti og heilsu fisk- anna í kvíunum en það má einnig koma mælitækjunum fyrir í laxa- stigum og þannig vakta ástand villtra stofna. Geta teljarar Vaka ekki bara stærðarmælt fiskinn held- ur einnig tegundar- og kyngreint ásamt því að skrá margvíslega um- hverfisþætti. Í útrás allt frá byrjun Á þeim tæpu fjórum áratugum sem liðnir eru frá stofnun Vaka hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og má finna viðskiptavini þess um allan heim. Á Íslandi starfa um 35 manns hjá fyrirtækinu auk þess sem mest- öll framleiðsla tækjanna er hjá ís- lenskum undirverktökum og á helstu mörkuðum erlendis eru starfsmenn sem sinna sölu, þjónustu og uppsetningu tækjanna, en ár hvert selur Vaki búnað fyrir hátt í tvo milljarða króna. „Við höfum alla tíð verið í fararbroddi á þessum markaði og erum langfremst í vöruþróun mælilausna af þessu tagi til notkunar í fiskeldi,“ segir Bene- dikt. Eins og gefur að skilja er aðeins lítill hluti viðskiptavina Vaka á Ís- landi. „Þegar litið er um öxl var það kannski gæfa okkar að enginn heimamarkaður var fyrir hendi þeg- ar við hófum starfsemi og þurftum við strax að finna kaupendur erlend- is. Voru tækin okkar fyrst notuð í Skotlandi, Noregi og Síle og eru það okkar langstærstu markaðir enn í dag,“ segir Benedikt en hann hefur fylgt fyrirtækinu frá árinu 1994 og voru starfsmennirnir fjórir þegar hann byrjaði. Vöktun hluti af forvörnum Tímamót urðu í rekstrinum árið 2016 þegar bandaríska fyrirtækið Pentair keypti starfsemi Vaka en þremur árum síðar keypti lyfjaris- inn Merck reksturinn. „Merck er stórt fyrirtæki í lyfjageiranum en með kaupunum vildu þau styrkja sig í sessi í fiskeldi, og tvinna saman lyfjaþróun og greiningartækni,“ út- skýrir Benedikt. „Okkar tækni verð- ur miðpunkturinn í þróun tækni- legra lausna Merck fyrir fiskeldi en teljarabúnaðurinn tekur myndir af fiskunum og nýtir gervigreind til að meta hvort tilteknir einstaklingar eru t.d. komnir með sár eða hvort fiskarnir hegða sér undarlega. Það má líka nota gervigreindina til að fylgjast með laxalúsarsmitum og telja hve margar agnarsmáar laxa- lúsarlirfur hafa sest á hvern fisk. Ræktandinn hefur líka mun gleggri mynd af stöðu mála í kvíunum, s.s. hvernig fiskurinn vex og dafnar og hvort fóðurnýting sé í takt við það sem búist er við.“ Þessi bætta yfirsýn hjálpar við allan rekstur, gerir fóðrun skilvirk- ari og auðveldar ræktendum að tímasetja betur ýmsa þætti í eldis- ferlinu. Í mörgum brunnbátum eru einnig teljarar frá Vaka sem telja seiði við afhendingar í kvíar og eins við meðhöndlun eftir að fiskur er kominn í áframeldi. „Það skiptir mjög miklu máli að vita hversu margir fiskar eru fluttir í kvíarnar. Ef 100.000 fiskar eiga að vera í hverri kví, og öll fóðrun og með- höndlun tekur mið af því, þá viltu ekki að fiskarnir í kvínni séu í reynd 105.000 eða 95.000 því þá er ýmist vanfóðrað eða offóðrað í kvína og mikil verðmæti tapast.“ Bætt afköst og minna hnjask með sjálfvirkni Vaki er einnig leiðandi í framleiðslu dælubúnaðar og flokkara fyrir fisk- eldi og hefur þróað lausnir sem tryggja bætta meðferð á fiskinum. „Flokkararnir okkar geta flokkað fisk mjög nákvæmlega frá fimm grömmum að stærð, en það sem er sérstakt við flokkarana er að þeir geta sjálfvirkt aðlagað flokkunina eftir skilaboðum frá teljurunum. Dæla, flokkari og teljari eru sam- tengd og á stjórnborði er hægt að gefa upp hvernig skipta á fiskinum sem á að flokka, flokkarinn stillir sig þá sjálfkrafa af með rafmagns- tjökkum, dælan skammtar rétt magn af fiski og þegar fiskur fer að flæða í gegnum kerfið fínstillir kerf- ið stærðarstillinguna til að fá ná- kvæmlega þá stærðarskiptingu sem óskað er eftir. Sjálfvirknin þýðir að aðeins þarf einn starfsmann til að sinna verki sem áður kallaði á að hafa marga að stússa í kringum bún- aðinn og handstilla hann,“ útskýrir Benedikt, en kerfinu var gefið nafn- ið SmartFlow. Þéttleikastýring skiptir líka miklu máli þegar fiskur er fluttur með dælum og hefur Vaki hannað dælur sínar þannig að við op slöngunnar sem sett er ofan í ker er skammtari sem tengdur er skynjara sem grein- ir flæði fisks inn í rörið. „Án þessa skynjara, og sjálfvirkrar dælustýr- ingar, getur það gerst að of margir fiskar sogast upp í einu og lenda í einni kös í rörinu þar sem þeir geta orðið fyrir hnjaski og vantað súrefni. Er það lykilatriði fyrir góða með- höndlun og velferð fisksins að fyr- irbyggja þennan vanda hvort sem verið er að dæla úr kerum til að meðhöndla og bólusetja, telja eða flytja fisk.“ Þurfa vel menntað fólk Framtíðin virðist björt enda gera allar spár ráð fyrir áframhaldandi vexti fiskeldis um allan heim. Bene- dikt segir Vaka þurfa að vaxa með markaðinum en gæta þess um leið að slá ekki af gæðum þjónustunnar: „Þjónustan skiptir ekki minna máli en sjálfur búnaðurinn og ekki nóg að afhenda tækin heldur þarf að tryggja að viðskiptavinurinn sé ánægður. Viðskiptavinir okkar verða stærri og stærri og með því að byggja upp gott langtímasamband tryggjum við áframhaldandi við- skipti. Sölumennirnir okkar selja fyrsta tækið en þjónustan selur það næsta.“ Vöxturinn er ekki bara í laxeldi heldur er einnig mikill uppgangur í tilapíu- og rækjueldi. Benedikt segir Vaka þróa lausnir fyrir tilapíueldi en það sé öllu flóknara að vakta rækj- una með sömu tækni. „Vandinn er sá að rækjan er bæði agnarsmá og næstum því gegnsæ í vatni, og því erfið tæknileg úrlausnarefni að greina dýrin með myndavélum,“ segir hann. „Við horfum líka spennt til þess sem er að gerast hér á Ís- landi, bæði í sjókvíaeldinu og eins eru þær áætlanir sem við höfum séð í landeldi afar áhugaverðar. Ef fer sem horfir stefnir í meira en 130 þúsund tonna framleiðslu hérlendis eftir nokkur ár. Helstu áskoranir í þessum geira eru að fá vel menntað starfsfólk bæði í fiskeldistengdum fögum og eins í tækni- og rekstrar- tengdum þáttum. Þarna verða stjórnvöld að tryggja að menntun standi þeim til boða sem vilja marka spor á þessum vettvangi í framtíð- inni.“ Má telja hve margar lúsarlirfur eru á laxinum Búnaðurinn sem Vaki hefur þróað er í notkun hjá fiskeldisfyrirtækjum um allan heim. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Mynd úr safni af slátrun og pökkun hjá Arnarlaxi. Dælu- og flokkunarbúnaður Vaka fer vel með fiskinn. Benedikt Hálfdánarson með vænan lax í höndunum. Mælibúnaðurinn sem Vaki hefur þróað hámarkar skil- virkni í fiskeldi, m.a. með því að tryggja að samræmi sé á milli fóðrunar og fjölda einstaklinga í kvíunum. Lax syndir fram hjá myndavél Vaka. Gervigreind getur metið stærð, þyngd, kyn og hvort vísbendingar eru um smit eða einhvern kvilla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.