Morgunblaðið - 18.10.2022, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
S
tarfsemi Algalífs er í mikl-
um blóma og hefur vöxtur
fyrirtækisins verið ævin-
týri líkastur. Það sem
byrjaði árið 2012 sem þró-
unarverkefni úti í Noregi er núna
orðið að um það bil fimmtíu manna
fyrirtæki sem velti 1,5 milljarði
króna á síðasta ári og vinnur núna að
stækkun sem mun auka veltuna upp
í 5 milljarða. Aðalvara fyrirtækisins
er fæðubótarefnið astaxantín sem
unnið er úr þörungum sem ræktaðir
eru við fullkomin skilyrði í verk-
smiðju Algalífs í Keflavík.
Orri Björnsson er forstjóri Alga-
lífs og segir hann stofnendur fyrir-
tækisins hafa valið að reisa verk-
smiðju á Íslandi svo að stóla mætti á
aðgang að nægu rafmagni á stöðugu
og sanngjörnu verði, en þörungarnir
vaxa í rörakerfum sem böðuð eru
birtu frá sérhönnuðum rafmagns-
ljósum. „Félagið tók húsnæði á leigu
árið 2013 á svæðinu sem áður heyrði
undir varnarliðið og árið 2014 var
standsetningu lokið framleiðsla
hófst í smáum stíl. Framleiðslugetan
hefur vaxið í áföngum og veltan auk-
ist eftir því,“ segir hann en á þessu
ári stefnir í allt að 1.800 milljóna
veltu.
Smíði nýrrar verksmiðju er á
lokametrunum en með henni stækk-
ar verksmiðjan um 7.500 fermetra, í
12.500 fermetra alls, og framleiðslu-
getan þrefaldast. Þegar húsnæðið er
tilbúið verður ræktunarbúnaði bætt
við í áföngum og stefnan sett á að ár-
ið 2024 verði fullri framleiðslugetu
náð.
Hrein og skilvirk
Fer þá öll framleiðslan fram undir
einu þaki, allt frá ræktun og út-
drætti yfir í blöndun og pökkun.
„Astaxtantín er framleitt víða um
heim með ólíkum aðferðum. Sums
staðar fer ræktunin fram í opnum
tjörnum þar sem þörungarnir nær-
ast á sólarljósi en þar þarf um það bil
tíu til fimmtán sinnum meira vatn í
framleiðsluna. Þó að ræktun með
sólarljósi spari rafmagn að einhverju
leyti þá kallar slík framleiðsla á um-
talsverða rafmagnsnotkun þar sem
dæla þarf meira vatni og skilja þör-
unginn frá mun meira vatnsmagni.
Okkar framleiðslukerfi er líka ein-
angrað og varið gegn umhverfis-
áhrifum og notast við hreint íslenskt
vatn við framleiðsluna, og sú vara
sem við seljum er fyrir vikið hreinni
og laus við óæskileg efni á borð við
örplast og þungmálma í lokaafurð-
inni. Þegar við bætist að orkukostn-
aður okkar er lægri en hjá flestum
samkeppnisþjóðunum, og framleiðni
mikil á hvern lítra af framleiðslu-
kerfum, þá er útkoman að íslenska
astaxantínið er mjög samkeppnis-
hæft í verði og gæðin þau mestu sem
þekkjast í þessari framleiðslu.“
Gerir líkamanum gott
Astaxtantín er mikið undraefni og
eitt öflugasta andoxunarefni sem völ
er á. Orri segir heimsmarkaðinn
ennþá tiltölulega smáan enda eru
neytendur rétt að byrja að uppgötva
kosti vörunnar. „Ætla má að um tíu
milljónir manna noti astaxtantín
reglulega en til samanburðar er talið
að á bilnu 300 til 500 milljón manns
noti ómega fitusýrur sem
fæðubótarefni. Enn sem komið er
hafa eiginleikar astaxtantíns ekki
fengið mikla athygli rannsakenda en
það stendur til bóta og sterkar vís-
bendingar eru um að astaxtantín
hafi t.d. mjög góð áhrif á liðamót og
vinni gegn bólgum, s.s. í vöðvum,
lungum, hjarta eða lifur,“ útskýrir
Orri og bætir við að árlega stækki
náttúrulegi astaxtantín-markað-
urinn um 15% eða þar um bil.
„Framleiðendur þessa efnis eru ekki
margir og við höfum markað okkar
sérstöðu með háþróuðu framleiðslu-
ferli sem tryggir að okkar kaup-
endur geta treyst að ekki verði
sveiflur í framboði eða gæðum.“
Algalíf selur aðeins lítið brot af
eigin framleiðslu beint til neytenda
og þá fyrst og fremst á innanlands-
markaði. Fer megnið af framleiðsl-
unni til erlendra fæðubótarefna-
framleiðenda á borð við California
Gold og Sports Research. Orri segir
að þó að það sé meiri ábati af að geta
selt fullbúna neytendavöru þá sé erf-
itt að koma fæðubótarefnum á mark-
að nema þau séu hluti af breiðari
vörulínu. Samkeppnin er hörð og
myndi ein pakkning af íslensku as-
taxtantíni týnast í hillum stórversl-
ana, apóteka og heilsubúða. „Í þess-
um geira gildir að fá sem mest
hillupláss og illgerlegt að ná fótfestu
með aðeins eina vöru. Vöxtur net-
verslunar kann að breyta þessu að
einhverju leyti, en þá situr eftir að
það tekur tíma og orku að sinna eig-
in vörumerki og koma því á fram-
færi. Þetta er eitthvað sem við mun-
um halda áfram að hafa á bak við
eyrað, enda varan góð og hægt að
miðla góðri sögu til neytenda.“
Sækja inn á Asíumarkað
Þá er eftir að skoða fleiri söluleiðir
og segir Orri að mætti t.d. reyna að
blanda astaxtantíni í ákveðnar mat-
vörur. „Andoxunareiginleikar efnis-
ins valda því að það getur verið
vandasamt að blanda astaxtantíni í
sumar vörur, og helst kæmi til
greina að nota það í vörur sem hafa
geymsluþol sem er innan við vika
eða tíu dagar,“ útskýrir Orri.
Einnig felast áhugaverð tækifæri í
að selja astaxtantín til notkunar í
laxeldi: „Astaxtantín er ekki bara
andoxunarefni heldur gefur það lax-
fiskinum líka bleika litinn. Lítið er
um að fóðurframleiðendur noti nátt-
úrulegt astaxtantín en þeir eru farn-
ir að sýna þessu hráefni meiri áhuga
og sennilegt að með vexti landeldis
og aukinni áherslu á lífræna vottun
velji æ fleiri laxeldisfyrirtæki að
nota náttúrulega afurð í fóðrið.“
Þá er astaxtantín rétt að byrja að
ná fótfestu á risastórum mörkuðum
en þegar blaðamaður náði tali af
Orra var hann á leið í vinnuferð til
SA-Asíu til að kynna vöruna. „Við
erum að vonast til að Kína, Japan,
Kórea, Víetnam og Taíland geti orð-
ið öflugir markaðir þegar fram í
sækir og erum við þegar byrjuð að
selja talsvert mikið þangað. Ef fram
heldur sem horfir mun meirihlutinn
af okkar framleiðslu fara til kaup-
enda í Asíu.“
Markaðurinn vex um 15% á ári
Eftir stækkun mun
framleiðslugeta Algalífs
þrefaldast. Fyrirtækið
hyggur m.a. á sókn
inn á Asíumarkað.
Tekist hefur að þróa framleiðsluaðferð sem er skilvirk og hrein. Erlendir
framleiðendur astaxtantíns glíma við aðskotaefni og háan orkukostnað.
Morgunblaðið/Eggert
Unnið að framleiðslunni í verksmiðju Algalífs. Senn verður ný viðbygging tekin í notkun. Ekki veitir af ef á að takast að anna eftirspurn eftir þessu öfluga andoxunarefni.
Orri segir að í dag noti um tíu milljón manns astaxtantín reglulega en til
samanburðar tekur allt að hálfur milljarður manna ómega-fitusýrur.
Aðstæður til hátækni-astaxtantínræktunar á Íslandi eru
eins og best verður á kosið. Nefnir Orri að félaginu gangi
vel að manna lausar stöður en Algalíf hefur þurft að ráða
til sín fjölda sérfræðinga í líffræði. „Störfin á gólfinu í
sjálfri framleiðslunni eru ef til vill þau sem eru erfiðust í
mönnun en þar er unnið á vöktum. Þá fær hver nýr starfs-
maður talsverða þjálfun og því slæmt ef við missum fólk
frá okkur. Við þurfum því að vanda okkur við að velja inn
rétta fólkið.
Ef það er eitt sem Orri getur kvartað yfir þá er það hvað
íslensk regluverk gefur lífeyrissjóðunum lítið svigrúm til
að fjárfesta í nýsköpunarfyrirtækjum. Lífeyrissjóðirnir séu
fjársterkir og gætu veitt nýstofnuðum fyrirtækjum mikil-
væga vítamínsprautu en verði, reglum samkvæmt, að
forðast áhættufjárfestingar. „En lífeyrissjóðirnir eru nógu
margir og nógu stórir til að dreifa slíkum fjárfestingum og
taka þannig virkari þátt í uppbyggingu, rannsóknum og
þróun. Virðist mér stundum að sprotafyrirtæki séu föst í
þeim sporum að þurfa að veðja á styrki sem oft eru tak-
markaðir að stærð, og að mikil orka fari í að sækja um
næsta styrk og þarnæsta til að reyna að lifa af,“ segir
hann. „Sem betur fer vorum við aldrei í þessum sporum
og hafa íslenskir og norskir aðilar lagt Algalífi til í kringum
sjö milljarða króna. Þessa fjármuni munu þeir á endanum
fá ríflega til baka, jafnvel ef miðað er við hófstilltustu
áætlanir.“
Þarf að fjárfesta meira í sprotum
Ljósmynd/Algalíf Ljósmynd/Algalíf