Morgunblaðið - 18.10.2022, Page 30

Morgunblaðið - 18.10.2022, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. OKTÓBER 2022 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ rátt fyrir að gengið hafi vel að þjónusta laxeldið segir Sigurður ekki hægt að neita því að flutningur sjó- leiðina geri kröfur til fisks- ins sem fluttur er, en ef hann er ekki í réttri stærð þolir hann ekki kæling- una nægilega vel. Þá hafi verið áskorun þegar komið hafi upp að- stæður í eldinu sem krefjast þess að laxi sé slátrað áð- ur en hann hafi náð fullri stærð. Það hafi þó gengið vel að greiða úr þeim hnökrum. „Eins og staðan er núna erum við að senda um helminginn af öllum laxi þessa leið,“ segir Sig- urður Orri. „Aukningin er stöðug viku fyrir viku. Það er mikil áhersla á ferska fiskinn á öllum okkar leiðum í dag og þar er fókusinn „fresh by sea“.“ Eimskip hóf í febrúar á síðasta ári að auka þjónustu við útflytjendur á ferskum fiski frá Færeyjum og Ís- landi til Bandaríkjanna og Kanada. Í þessu fólst lögun siglingakerfisins að þessum útflutningi sem krefst styttri flutningstíma og var því brottför á Ameríkuleið félagsins frá Íslandi flýtt og viðkomuhöfnum á vesturleið fækkað. Skip félagsins hefja siglingu frá Þórshöfn í Færeyjum á sunnudegi og koma við í Reykjavík á þriðjudegi og er síðan er komið til Portland í Bandaríkjunum á miðvikudegi viku seinna, alls átta daga frá Íslandi og níu frá Færeyjum. Samspil margra þátta Margir þættir urðu til þess að ákveð- ið var að auka áherslu á flutning á lax til Bandaríkjanna með skipi, en það flýtti mögulega þróuninni að eftir- spurn eftir slíkri þjónustu jókst mik- ið samhliða fækkun flugferða vegna kórónuveirufaraldursins. Ekki síður höfðu áhrif framfarir á sviði kæli- tækni og aflameðferð. Sigurður Orri útskýrir að auknar kröfur um minna kolefnisfótspor hafi einnig haft veruleg áhrif. „Það sem er líka er mikil vakning í Banda- ríkjum með kolefnissporið. Verslunarkeðjur eins og Whole Fo- ods gera ákveðnar kröfur eins og losun 0,14 grömmum af koltvísýringi á kílóið, á móti ertu með 1 gramm á kíló í flugi.“ Þá ákvað til að mynda færeyska fiskeldisfyrirtækið Hid- denfjord í október 2020 að láta af öll- um flutningi með flugi. Minnkaði það losun koltvísýrings vegna flutn- inga Hiddenfjord um 94% og það sem er nú mikilvægur liður í mark- aðssetningu afurða félagsins. Vert er að geta þess að eldislax er þegar með mun minna kolefnisspor en aðr- ir próteingjafar eins og nauta-, lamba- eða svínakjöt. Þá þykir ljóst að ekki verður hægt að þjónusta eldið í þeim mæli sem þarf án flutninga sjóleiðina ef fram- leiðslumagn eldis hér á landi á að ná 200 þúsund tonn á næstu árum eins og áform eru um, segir Sigurður Orri. Auk þess sé mun hagkvæmara flytja laxinn með skipi en til að mynda með flugi. „Þetta munar miklu meira en helmingi. Einn gám- ur tekur um 20 tonn, en ein flugvél tekur 35 tonn. Þannig að ef þú ætlar að koma slíku magni inn á markað þá gerir þú það ekki bara með flugi.“ Spurður hvort komi til greina að sækja laxinn nær framleiðslunni svo sem á Vestfjörðum eða Austfjörðum, svarar Sigurður Orri því játandi. Það sé hins vegar háð því að fram- leitt magn sé orðið nægilega mikið til þess að það verði hagkvæmara en að keyra afurðirnar milli landshluta. „Þetta er nokkuð sem við höfum skoðað. Þá er áskorun að halda utan um slátrunina, því það þarf ákveðinn fjölda af gámum til þess að það gangi upp.“ Ísland í algjörri sérstöðu Landfræðileg lega Íslands gefur ákveðið forskot hvað varðar þessar hagkvæmu flutningaleiðir enda er landið nær Norður-Ameríku en önn- ur framleiðslulönd eins og Noregur og Skotland. Þá er jafnvel ákveðið forskot í samanburði við Færeyinga enda þarf fiskurinn níu daga að kom- ast á markað þaðan en átta frá Ís- landi. „Norðmenn hafa átt erfitt með að koma fiski yfir og hafa einbeitt sér meira að Evrópu, sama hafa Fær- eyingar gert. Það er auðvitað erfitt að fara í svona beina samkeppni við norska og færeyska fiskinn. Það er betra að fara með fiskinn inn á Am- eríku í staðinn fyrir að fara í slaginn við Norðmenn og Færeyinga held ég,“ segir Sigurður Orri. Um er að ræða ótvíræða sérstöðu fyrir framleiðendur hér á landi, full- yrðir hann. „Ég held að öll norsk fiskeldisfyrirtæki hefðu áhuga á sjö til átta transit-daga yfir til Am- eríku.“ Er verið að fá hæsta verð í ljósi þess að fiskurinn er þó átta daga gamall? „Já annars væri ekki verið að gera þetta. Matvæla- og lyfja- stofnun Bandaríkjanna (FDA) gerir kröfu um að laxinn sé ekki meira en átján daga gamall. Þannig að það eru alveg átta góðir dagar eftir af geymsluþoli þegar fiskurinn kemur til Bandaríkjanna frá Íslandi.“ Í skoðun að bæta við skipi Mikil röskun hefur verið á aðfanga- og birgðakeðjum sem og skortur á gámum um heim allan undanfarin misseri. Spurður hvort þetta hafi haft áhrif á laxaflutninga Eimskips, svarar Sigurður Orri því neitandi. „Nei, þessir flutningar hafa verið í forgangi hjá okkur. Það hefur reynst áskorun að finna áframflutnings- lausnir, sérstaklega hvað varðar vörubílaflutninga í Bandaríkjunum. En það hefur verið vandamál alls staðar, bæði í Bandaríkjunum og Evrópu, að finna bíla. Það hafa líka alveg komið vikur þar sem okkur hefur seinkað, við erum að sigla á hafsvæði sem er mjög krefjandi, en í svona 85 til 90% tímans höfum við verið á réttum tíma sem er mjög áreiðanlegt miðað við stærð skipa og hafsvæði, en að sama skapi hafa þessi frávik líka kennt okkur að bregðast við með því að aðlaga sigl- ingakerfi okkar enn frekar. Eftirspurnin eftir þessum flutn- ingum hefur verið mikil, sérstaklega vesturleiðina og því er í skoðun að bæta við fjórða skipinu til að auka flutningsgetu og þar með auka þjón- usta og áreiðanleika fyrir við- skiptavini okkar.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Ótvírætt er að stakt flutningaskip getur flutt mun meira af laxi en flugvél og er því mun hagkvæmara að flytja laxinn sjóleiðina til Bandaríkjanna en með öðrum samgönguleiðum. Helmingur laxins sjóleiðina til Ameríku Eimskip hefur flutt ferskan lax sjóleiðina vestur um haf í um eitt og hálft ár og hefur reynslan verið mjög góð að sögn Sigurðar Orra Jónssonar, forstöðumanns útflutnings hjá félaginu. Hann segir jafnframt að magnið, sem flutt er með skipum Eimskips, hafi aukist mikið, í takt við sífellt vaxandi framleiðslumagn hér á landi. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Sjóflutningar hafa minna kolefnisspor sem er einmitt það sem neytendur þar vestra sækjast eftir. Aðrar framleiðsluþjóðir í Evrópu búa ekki svo vel að eiga jafn greiða leið á Bandaríkjamarkað með skipi og hefur Íslandi því ákveðið forskot. Sigurður Orri Jónsson „Þetta munar miklu meira en helmingi. Einn gámur tekur um 20 tonn, en ein flugvél tekur 35 tonn. Þannig að ef þú ætlar að koma slíku magni inn á markað þá gerir þú það ekki bara með flugi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.