Fréttablaðið - 05.01.2023, Side 4

Fréttablaðið - 05.01.2023, Side 4
Íslensk stjórnvöld verða að vakna og taka afstöðu. Það er ekki hægt að vera stikkfrí í þessu máli. Kristinn Hrafns- son, ritstjóri Wikileaks Við höfum okkar ábyrgð og lagalega skyldu. Hjördís Guð- mundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna kristinnhaukur@frettabladid.is veður Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna, segir gagnrýni ferðaþjónustuaðila ekki letja stofnunina að gefa út við- varanir vegna veðurs í framtíðinni. „Við höfum okkar ábyrgð og laga- lega skyldu,“ segir hún. Ferðaþjónustan hefur gagn- rýnt almannavarnir og stjórnvöld vegna þess að óvissustigi var lýst yfir á gamlárskvöld. En óveðrið sem varað var við á höfuðborgarsvæðinu raungerðist ekki. Bjarnheiður Halls- dóttir, formaður Samtaka ferða- þjónustunnar, sagði þetta rýra traust ferðaþjónustunnar til stjórn- valda og að mikið tjón yrði þegar samgöngum væri raskað með veg- lokunum. Fyrirtæki aflýstu ýmsum ferðum út af viðvörunum. Hjördís segir að enginn sé yfir gagnrýni hafinn. „Við tökum hvert tilfelli og rýnum það til að sjá hvað sé hægt að gera betur,“ segir hún. „Við teljum okkur geta lært af öllu.“ Hún segir að óvissustig sé sett á ekki síst til að koma öllum við- bragðsaðilum á tærnar. Samhæfing sé eitt helsta verkefni almanna- varna. Almannavarnir eru í nánu samtali við Veðurstofuna. Mat Veð- urstofunnar sé ekki huglægt. Gular, appelsínugular og rauðar viðvaranir séu settar á út frá vissum skilyrðum. Almannavarnarstigin miðast hins vegar við samfélagsleg áhrif og fleiri forsendur. Til dæmis ef það verður óveður þar sem enginn býr er ekki lýst yfir óvissustigi. „Við erum alltaf að vinna með þessar blessuðu spár og það er eng- inn sem getur sagt til um hvernig veðrið verður nákvæmlega,“ segir Hjördís. Um áramótin hafi höfuð- borgarsvæðið lent í miðju stormsins en ekki á skilunum. n Gagnrýni ferðaþjónustu letji ekki almannavarnir Frumsýning 13. janúar Tryggðu þér miða borgarleikhus.is Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, ferðast um heim- inn til að tala fyrir málfrelsi, fjölmiðlafrelsi og fyrir vini sínum, Julian Assange, sem bíður niðurstöðu í framsals- máli til Bandaríkjanna. benediktarnar@frettabladid.is fjölmiðlar „Við erum að vinna í að fá Bandaríkjastjórn til þess að fella niður þessa gölnu lög- sókn gegn Assange,“ segir Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, um stöðu máls Julian Assange, stofn- anda Wikileaks. Málfundur um stöðu tjáningar- frelsis verður í Þjóðminjasafninu á laugardaginn. Málfrelsi, sem eru samtök um frjálsa og opna umræðu, lýðræði og mannréttindi, efna til fundarins. Meðal gesta verða Toby Young, aðstoðarritstjóri Spectator, Ögmundur Jónasson, fyrrverandi innanríkisráðherra, auk Kristins sjálfs. Kristinn verður ekki á fundin- um í eigin persónu því um þessar mundir er hann á ferðalagi um heiminn til þess að kynna málefni Assange sem situr nú í einangr- unarfangelsi í Bretlandi og bíður niðurstöðu í framsalsmáli Banda- ríkjastjórnar. Kristinn segir að víða beinist spjót að upplýsingafrelsinu. „Á málfundinum mun ég tala um upplýsingafrelsi, aðgengi að upplýsingum og réttindi manna á því sviði. Einnig mun ég ræða um þá pólitísku aðför sem beinist að Julian Assange, sem er ein mesta aðför að málfrelsi og fjölmiðlafrelsi á síðari árum,“ segir Kristinn. Undanfarið hefur Kristinn verið í Suður-Ameríku að tala um mál- efni Assange. Hann segir að fram Biður heiminn að liðsinna Assange Julian Assange bíður í fangelsi í Bretlandi eftir niðurstöðu úr framsalsmáli til Bandaríkjanna. Fréttablaðid/Getty undan sé áframhaldandi slagur um að koma vini sínum og félaga úr fangelsi. „Ég hitti fjóra forseta og varafor- seta nokkurra ríkja Suður-Amer- íku. Þeir tóku undir með okkur og eru tilbúnir að aðstoða okkur í þessum slag,“ segir Kristinn. Að sögn Kristins eru radd- irnar um málefni Assange að verða háværari. Nú sé að myndast þrýstingur á ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta um að fella málið niður. Kristinn stefnir á að halda áfram að ferðast um heiminn og berjast fyrir málfrelsi og fjölmiðlafrelsi og fyrir niðurfellingu á máli Assange. „Ég vil að það verði lögð pressa á alla pólitíska leiðtoga sem telja sér vera annt um málfrelsi og fjölmiðla- frelsi, að þeir taki afstöðu í þessu máli og beiti sér í þessu máli,“ segir Kristinn sem kveðst telja að mál- fundurinn á laugardag verði mikil- vægur til að opna umræðuna hér á landi. „Íslensk stjórnvöld verða að vakna og taka afstöðu. Það er ekki hægt að vera stikkfrí í þessu máli. Þau geta ekki litið í aðra átt varðandi þessi mannréttindabrot,“ segir Kristinn. n erlamaria@frettabladid.is Kjaramál Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari segist ekki hafa ákveðið hvenær boðað verði til næsta fundar í kjaraviðræðum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Samninganefndir funduðu hjá ríkissáttasemjara í gær, þar sem Samtök atvinnulífsins gerðu Ef l- ingu tilboð um gerð kjarasamn- ings sem væri efnislega samhljóða samningnum sem samtökin gerðu við Starfsgreinasambandið fyrir stuttu. „Ef ling vildi fá tækifæri til þess að kynna sér tilboðið og taka afstöðu til þess. Þannig að ég gerði samkomulag við samninganefnd Eflingar um að ég yrði í sambandi við þau og tæki ákvörðun um fram- haldið þegar þau hafa haft tækifæri til að skoða tilboðið betur. Ég geri þó ráð fyrir því að það verði öðrum hvorum megin við helgina,“ segir Aðalsteinn. n Funda næst fyrir eða eftir helgi Samninganefndir Eflingar og Sam- taka atvinnulífsins funduðu í Karp- húsinu í gær. Fréttablaðið/erNir gar@frettabladid.is dómsmál Kona ein í Brekkuhjalla Kópavogi hefur verið dæmd til að klippa ofan af trjám á lóð sinni þannig að þau standi ekki meira en í 48,6 metra hæð yfir sjávarmáli fjórum metrum frá lóðamörkum eins og segir í dómi Héraðsdóms Reykjaness. Tvenn hjón í parhúsi í Heiðar- hjalla höfðuðu mál á hendur kon- unni. Samkvæmt matsgerð skyggir trjágróðurinn algerlega á dagsbirtu, sól og útsýni á lóðum nágrann- anna og verulegur óþrifnaður sé af trjánum. n Verði 49 metra yfir sjávarmáli 4 Fréttir 5. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.