Fréttablaðið - 05.01.2023, Page 22
Fólk erlendis heldur alltaf
að skautamenning sé
mjög stór á Íslandi og það
er oft tilkomið vegna
Mighty Ducks.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Þorbjörg J. Rafnar
frá Seyðisfirði,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
fimmtudaginn 22. desember.
Útför hennar verður frá Neskirkju
þriðjudaginn 10. janúar kl. 15. Sérstakar þakkir færum við
starfsfólki á deild V2 á Grund fyrir kærleiksríka umönnun
og hlýhug.
Ásthildur S. Rafnar Þorsteinn Ólafsson
Jónína Þ. Rafnar Guðmundur Þorgrímsson
Andrea Þ. Rafnar Benedikt Hreinsson
Halldór Friðrik Þorsteinsson Steindóra Gunnlaugsdóttir
Bergljót Þorsteinsdóttir Magnús Stephensen
Þórhallur E. Þorsteinsson Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Hallgrímur Guðmundsson Erna Valentínusardóttir
Þórólfur Guðmundsson Áslaug Ákadóttir
Áslaug Guðmundsdóttir Unnar Garðarsson
Sunna Einarsdóttir Gunnar Örn Rögnvaldsson
Stefán Arnar Einarsson Hrafnhildur Rafnsdóttir
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn
Bjarni Helgason og góðir félagar úr íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur í Laugardalnum í gær. Fréttablaðið/Valli
Gunnar Stahl og félagar lita enn ímynd umheimsins af íslenskri skautamenningu.
Næsta laugardag fagnar Skauta
félag Reykjavíkur 130 ára afmæli
sínu. Talsmaður félagsins segir
nýtt æfingasvell vera forgangsat
riði fyrir skautaíþróttir á Íslandi.
arnartomas@frettabladid.is
Skautafélag Reykjavíkur fagnar 130 ára
afmæli sínu um þessar mundir þótt saga
þess teygi sig enn lengra aftur. Fyrstu
heimildir úr sögu félagsins eru frá miðri
19. öld þegar nokkrir nemendur úr Lat
ínuskólanum stunduðu skautahlaup á
Tjörninni.
Félagið var fyrst stofnað 1873 en
hætti starfsemi einhverjum árum síðar.
Skautafélag Reykjavíkur var síðan end
urvakið 7. janúar 1893 og var aðalhvata
maðurinn þar að baki Axel V. Tulinius.
Skautaáhugi landans var mismikill
á 20. öldinni en lengi hafði verið barist
fyrir almennilegu skautasvelli sem varð
að veruleika með tilkomu svellsins í
Laugardalnum 1990 sem var svo yfir
byggt og vígt árið 1998 sem Skautahöllin.
Þar verður einmitt stórafmæli Skauta
félags Reykjavíkur fagnað næsta laugar
dag þar sem gestum og gangandi verður
boðið frítt á skauta og í kaffi og köku.
Þétt setið svell
„Skautafélag Reykjavíkur er stærsta
skautafélag á landinu og þar af er list
skautadeildin sú stærsta og telur yfir
300 iðkendur,“ segir Bjarni Helgason
hjá Skautafélagi Reykjavíkur. „Íshokkí
deildin er í kringum 150 til 170 svo þetta
telur hátt í 500 manns sem fjölgar jafnt
og þétt.“
Bjarni segir ístímann vera helsta
þröskuldinn í íslenskri skautamenn
ingu í dag.
„Það er ekki eins og með fótboltann
þar sem er farið út á gras og æft, heldur
þarf alltaf að vera svell til að geta æft,“
segir hann. „Svellið okkar er þétt setið og
þess vegna er helsta baráttumál félagsins
núna að fá æfingasvell þarna við hliðina.“
Hugmyndirnar um æfingasvell segir
Bjarni vera vel á veg komnar.
„Það var gerð forgangsröðun á íþrótta
mannvirkjum í Reykjavíkurborg fyrir
nokkrum árum þar sem við skoruðum
mjög hátt,“ segir hann. „Borgin hefur
ítrekað að hún muni fara eftir þessari
forgangsröð.“ Í því samhengi bendir
Bjarni á að Skautafélag Reykjavíkur sé
ekki hverfisfélag eins og f lest íþrótta
félög í Reykjavík.
„Þetta er svolítið eins og sundlaugar
eða skíðasvæði – þetta er að þjóna öllu
höfuðborgarsvæðinu,“ útskýrir hann.
„Starfsemin hefur markast svolítið af því
enda erum við með krakka úr Kópavogi,
Hafnarfirði, jafnvel frá Reykjanesbæ og
Hveragerði.“
Langlífur stimpill
Þrátt fyrir ýmsar áskoranir segir Bjarni
skautaíþróttir á Íslandi standa mjög vel.
„Í íshokkíinu erum við sem dæmi að
keppa við stórþjóðir í heimsmeistara
mótunum þar sem Ísland hefur verið
í kringum 30. sæti á heimslistanum
sem er mjög gott miðað við hvað við
erum fámenn,“ segir hann. „Ég held að
gæðin séu mjög mikil í skautaíþróttum
á Íslandi en það vantar bara fleiri svell.“
Þegar kemur að alþjóðlegri íshokkí
ímynd Íslands er ekki hægt að skauta
fram hjá klassísku fjölskyldumyndinni
D2: The Mighty Ducks frá 1994. Þar
þurftu bandarísku hetjurnar að taka
á hinum stóra sínum í úrslitaleik gegn
svartklæddu skúrkunum í íshokkíliði
Íslands.
Loðir þessi poppkúltúrstimpill enn þá
við okkur?
„Já alveg klárlega,“ segir Bjarni og hlær.
„Fólk erlendis heldur alltaf að skauta
menning sé mjög stór á Íslandi og það
er oft tilkomið vegna Mighty Ducks.“ n
Svellkalt stórafmæli á skautum
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sigríður Th. Mathiesen
lést á Líknardeild Landspítalans,
Kópavogi, fimmtudaginn 29. desember.
Útförin fer fram í Grafarvogskirkju
mánudaginn 9. janúar klukkan 15.00.
Victor R. Viktorsson Salbjörg Bjarnadóttir
Júlíana S. Viktorsdóttir
og ömmubörn
Ástkær eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, bróðir og frændi,
Jón Sigurpáll Hansen
Naustafjöru 2, Akureyri,
lést á heimili sínu
sunnudaginn 25. desember.
Útför hans fer fram í Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. janúar kl. 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Birgitta Svandís Reinaldsdóttir
Árni Freyr Jónsson Guðný Sara Birgisdóttir
Erna Björk Friðriksdóttir
Ingibjörg Elín Árnadóttir Birgir Ásþórsson
Hafdís Steina Árnadóttir Einar M. Sölvason
Guðrún Erna, Tómas Orri og Alexander Snær
Ástkær eiginkona, móðir,
tengdamamma, amma og langamma,
Hallfríður Kristjana
Sigurgeirsdóttir
Suðurbyggð 10, Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð
21. desember. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 9. janúar kl. 13.00.
Einar Valmundsson
Valmundur Einarsson Elsa Pálmey Pálmadóttir
Sólveig Einarsdóttir Pétur Jóhannsson
Steinunn Einarsdóttir
Filippus Þór Einarsson Svanhildur Svansdóttir
Kristjana Ívarsdóttir
barnabörn og langömmubörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra
Guðjóns Þorleifssonar
vélstjóra,
áður til heimilis að Lækjargötu 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir hlýja og góða umönnun.
Börn, tengdabörn og afabörn
Ástkær eiginkona mín,
Heiður Anna Vigfúsdóttir
er látin. Jarðarför auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Birgir Guðjónsson
1874 Fyrsta stjórnarskrá Íslands er staðfest af konungi.
1909 Kólumbía viðurkennir sjálfstæði Panama.
1931 Fyrsta barnið fæðist á Landspítalanum sem tekinn
var í notkun tveimur vikum áður.
1978 Nýlistasafnið er stofnað í Reykjavík.
1979 Breska hljómsveitin Queen gefur út lagið Don’t
Stop Me Now.
1983 Ein dýpsta lægð sem vitað er um gengur yfir landið,
en veldur ekki teljandi tjóni. Loftþrýstingur miðju
lægðarinnar er 932 hektópasköl (millibör).
1985 Richard Stallman segir starfi sínu hjá MIT lausu og
hefur á fullu vinnu við GNU-verkefnið.
2005 Hópur vísindamanna í Palomar-stjörnuathugunar-
stöðinni uppgötvar dvergreikistjörnuna Eris.
2006 Intel Core-örgjörvinn kemur fyrst á markað.
2010 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, synjar
lögum um ríkisábyrgð vegna Icesave-skuldbindinga
staðfestingar.
Merkisatburðir
TímamóT Fréttablaðið 5. janúar 2023 FImmTUDaGUR