Fréttablaðið - 05.01.2023, Side 28
Sprúðlandi
góðæri í bíó
Kvikmyndaárið 2023 verður stærra
en kvikmyndaárið 2022. Nú er enginn
faraldur fyrir neinum og það sést á
lista yfir stórmyndir sem væntan-
legar eru í kvikmyndahús Íslendinga
á nýju ári. Þær eru raunar svo margar
að Fréttablaðið þurfti að helminga
listann. Hér eru stærstu myndir ársins
fram í mars.
odduraevar@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Villibráð 6. janúar
Aníta Bríem, Björn Hlynur Haraldsson, Hilmir
Snær Guðnason, Gísli Örn Garðarsson og fleiri
leikarar mæta saman í matarboð. Svo fer allt úr
böndunum. Svona mynd sem allir Íslendingar
munu eflaust vilja sjá.
M3gan 13. janúar
Lítil dúkka sem er vélmenni
og fer svo brátt að lifa eigin
lífi. Hrikalegur hryllingur
beint inn í janúarstreðið.
Knock at the Cabin 3. febrúar
M. Night Shyamalan mætir enn og aftur með
hryllingsmynd um stúlku og foreldra hennar
sem tekin eru sem gíslar af vopnuðum mönnum.
Þeir krefjast þess að fjölskyldan taki ákvarðanir
til að koma í veg fyrir heimsendi í mynd þar sem
Dave Bautista og Rupert Grint eru meðal leikara.
Magic Mike’s Last Dance 10. febrúar
Channing Tatum mætir í þriðja skiptið á hvíta
tjaldið sem ómótstæðilegi dansarinn Mike
í mynd sem byggir á ævi hans. Salma Hayek
verður honum til halds og traust í mynd sem
verður eflaust ægilega kynþokkafull.
Ant-Man and the Wasp: Quantumania
17. febrúar
Mauramaðurinn mætir í þriðja skiptið í heim
Marvel. Nú fær hann aðalvondakallinn sem
tekur við krúnu Thanosar en það er enginn annar
en Kang. Þetta snýst allt um skammtaríkið að
þessu sinni og munu Paul Rudd og Evangeline
Lilly þurfa að taka á honum stóra sínum
Creed III 3. mars
Adonis Creed mætir aftur á tjaldið í þriðja kafla Rocky-afleggjarans
sem við persónuna er kenndur. Þessi lærisveinn hnefaleikagoðsins
Rocky Balboa mun þurfa að taka á öllu sínu þegar æskuvinurinn
Damian mætir aftur á sjónarsviðið eftir langa fangelsisvist. Michael
B. Jordan leikstýrir og fer með aðalhlutverkið en Sylvester Stallone
er kominn í fýlu þannig að hann og Rocky verða langt utan hrings-
ins ferkantaða og sjást hvergi.
Shazam! Fury of the Gods 17. mars
Shazam, léttgeggjaðasta ef ekki hreinlega
fyndnasta ofurhetja allra tíma, mætir aftur í
boði DC-myndasögurisans. Zachary Levi endur-
tekur rullu titilpersónunnar og nú í félagsskap
Helen Mirren og Rachel Zegler.
John Wick: Chapter 4 24. mars
Einhver ofsafengnasta andhetja síðari ára er
ekki búin að gefast upp og gerir það varla á
meðan Keanu Reeves nennir og nýtur þess
að leika John Wick sem mætir nú nýjum og
krefjandi áskorunum í tryllingslegri hasarmynd
sem er sú fjórða í röðinni.
Einnig væntanlegar
n Speak No Evil
n The Banshees of Inisherin
n Shotgun Wedding
n Plane
n Un beau matin
n Operation Fortune: Ruse de
guerre
n Babylon
n The Fabelmans
n The Whale
n Napóleonsskjölin
n Northern Comfort
n Á ferð með mömmu
n A Man Called Otto
n Cocaine Bear
n Empire of Light
n 65
n Marlowe
n Scream 6
n Volaða land
The Super Mario Bros.
Movie 31. mars
Frægasta tölvuleikjapersóna
veraldar, pípulagningamaður-
inn Mario, fær sína eigin
bíómynd í fyrsta sinn í mörg
ár. Hann nýtur enn liðsinnis
bróður síns, Luigi, í baráttunni
um líf og limi prinsess-
unnar góðkunnu við hinn illa
Bowser. En ekki hvað?
280 Lífið 5. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðiðLíFIð Fréttablaðið 5. janúar 2023 FIMMTUDAGUR