Tímarit rafvirkja - 01.08.1939, Qupperneq 3

Tímarit rafvirkja - 01.08.1939, Qupperneq 3
TÍHARIT BAFVIRKJA Úlgefandi: RafTirkjafélag Reykjaviknr 1. ÁRG. JÚLÍ—ÁGÚST 1939 1. TÖLUBLAÐ Avarp Mörgum úhugamönnum innan raf- virlcjastéttarinnar hefur fyrir löngu síðan verið það Ijóst, hve mikil þörf væri á þvi að hún eignaðist sitt eigið blað eða tíma- lit. þessi nauðsgn hefur fyrst og fremst i erið brýn vegna þess hve stéttin í heild hefur skilið lilutverk sitt, gagnvart sjálfri f.rr og þjóðfélaginu, illa. 1 öðru lagi hefur liun verið brýn vegna þeirrar sérstöðu rafvirkjastéttarinnar fram yfir aðrar iðn- stéttir: mikil bókleg eða fræðileg þekking. Þetta tvennt: vöntun á fræðilegri þekk- ingu samfara verklegri reynslu eða öfugt og skilningsleysi eða öllu heldur athafna- leysi stéttarinnar í hlutverki sínu innan þjóðfélagsins, hefur valdið þjóðinni meiri skaða, en menn almennt hafa gert sér Ijóst. Flest raforkumál, eða einstakar fram- kvæmdir, stórar og smáar, hafa verið framkvæmdar á mjög sérdrægnislegan lxátt, án samvinnu þeirra annarra aðila er rafvirkjastéttin samanstendur af, þ. e. raf- magnsverkf ræðinganna, raffræðinganna, rafvirkjameistaranna og rafvirkjasvein- anna. Petta hefur gengið svo langt, að menn í hærri embættum innan stéttarinn- ar hafa beitt aðstöðu sinni til að ganga algerlega á snið við faglærða menn innan rafvirkjastéttarinnar til tilheyrandi fag- vinnu, heldur leitað utan stéttarinnar að mönnum til þessara starfa. Petta, ásamt mörgu öðru, sem aflaga hefur farið, hefur skapað þá tortryggni og úlfúð innan stéttarinnar, sem ekki verður þolað lengur. Allir drenglyndir menn, sem hafa komið auga á þetta d- stand, verða að leggjast á eitt um að vinna bug á því. í þessu landi fossanna, en sem á að verða land raforkuveranna, verður að skapa vel menntaða og samhuga raf- virkjastétt. Parna er mikið verk að vinna. Stéttin er dreifð um byggðir landsins, þessvegna er lienni nauðsynlegt að koma á þeim tengilið, sem tímarit getur orðið. Rafvirkjafélag Reykjavikur ákvað á síð- asta aðalfundi sínum, að gangast fyrir út- gáfu rafvirkja-tímarits, scm gæti komið út a. m. k. annanhvern mánuð til að byrja með. Leita skyldi samvinnu ann- arra aðila innan stéttarinnar. Var það fyrst og fremst „Félag löggiltra rafvirkjameistara i Reykjavík” og verk- fræðingarnir. Ilvorugir hafa þó ákveðið að tal<a beinan þátt í útgáfunni. Ilinsvegar hafa allir þeir einstaklingar sem við höfum átt tal við um stuðning og álit á útgáfunni verið henni mjög hlynntir og hvetjandi og heitið stuðningi sínum við hana. Petta hefur gert okkur svo bjartsýna við höfum þegar ákveðið að hefjasl handa, Við göngnm þess ekki duldir, að ýmsir erfiðleikar munu mæta okkur, er við treystum því að geta yfirunnið þá með góðu samstarfi við alla þá, sem skilja nauðsynina á velgengni rafvirkjastéttar- innar og þar með á útgáfu tímaritsins. Tímaritinu má ætla að ræða hagsmuna- mál stéttarinnar frá sem flestum hliðum, flytja fræðandi greinar um raforkumál hér á landi og kynna helztu nýjungar raf- tækninnar á hverjum tíma. Petta er vandasamt hlutverk. En þetta tekst, ef þið, rafvirkjar, raffræðngar og raf- magnsverkfræðingar, hvar sem þið eruð á landinu. styrkið útgáfuna með því að skrifa greinar, senda fréttapistla eða ann-

x

Tímarit rafvirkja

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.