Tímarit rafvirkja - 01.08.1939, Síða 10

Tímarit rafvirkja - 01.08.1939, Síða 10
8 TIMARIT RAFVIRKJA 1939 Tímarit Rafvirkja. gefið út af Rafvirkjafélagi Reykjavíkur. Ritnef nd: Guðjón Guðmundsson ábyrgðarmaður, Eiríkur K. Eiríksson, Jónas Ásgrímsson. Utanáskrift: Tímarit Rafvirkja, Reykjavík. Pósthólf: 276. Víkingsprent h.f. — Hverfisgötu 4 Sínii 28(14 | Raftækjaeinkasalan. Öllu starfsfólki Raftækjaeinkasölunnar hef- ur verið sagt upp frá næstu áramótum, Er talið líklegt að einkasalan verði lögð niður frá sama tíma. Rafmönguð girðing. Bóndi einn í Bangalow-héraðinu í New South Wales hefur notfært sér rafmagn til sparnaðar á girðingarefni. Notar hann aðeins einn streng úr sléttum vír á tiltölulega fáum staurum. Er vírinn einangraður frá staurun- um og tengdur við háspennu hlið hraðriðs- spanspólu (Ford coil) er fær straum í lág- spennu hlið frá 6 volta rafhlöðu. Hefur kostn- aðurinn við girðingu þessa aðeins numið venjulegrar girðingar. Girðingin er algjörlega gripheld og straumurinn hættulaus. I Steinmetz Hall á heimssýningunni í New York hefur General Electric Company sett upp tæki, er framleiða 30 feta (ensk) langa eldingu. Spenna tækjanna er 10,000,000 volt. Hleðsla þéttanna tekur 15 sekúntur. Menn hafa lengi þekkt þann eiginleika silf- urbergs að það breytir ljóssveiflum, er falla gegnum það, þannig að sveiflurnar verða að- eins í einum fleti („polarized” ljós). Nú hefur tekist að framleiða efni, sem hef- ur þennan sama eiginleika en það fram yfir silfurbergið að hægt er að gera úr því stóra fleti. Hinar svokölluðu Nicols prismur, úr Rafmagnsáll setur í gang 152 tonna hringekju Rafmagnsállinn Electra, frá New York Aquarium, sendir frá sér 500 volta spennu í vefjur sjálfvirkra rofa, er setja í gang hið 152 tonna þunga hringsvið á Fordsýningunni á heimssýningunni í New York. Tvær stúlkur ásamt Dr. Christopher Coates fiskifræðing frá New York Aquarium, halda á álnum með gúmmihönskum til að verjast straumhöggi. Eirhringir eru um afturenda álsins fyrir tengingar við mælaborðið, sem sést bakvið. silfurbergi, er ekki hægt að gera stærri en einn silfurbergskristal, en hið nýja efni er samsett úr örsmáum kristöllum, svo smáum að venjulegs ljósbrots verður ekki vart. Menn gera sér vonir um að með uppgötvun efnis þessa opnist ýmsir nýir möguleikar, svo sem bílaljós, sem ekki blinda, kvikmyndir með eðlilegri dýpt o. fl. o. fl. Nýlega heí'ur veriS stoinaS hér í bæn- um félag sem nefnist „Rafmagnsvagnar h. f.”. Hefur félagiS í hyggju aS koma upp rafknúnum vögnum á milli Hafnar- fjarSar og Reykjavíkur, nú á næstunni. Er þaS Jón Gauti, rafmagnsverkfræSing- ur, sem er aSalhvatamaSur og fram- kvæmdastjóri þessa fyrirtækis. — Hefur hann góSfúslega lofaS tímaritinu grein um þetta efni, sem væntanlega mun birtast í næsta tbl. Vegna rúmleysis, verður að biða næsta Dlaðs, sem kemur út í október, framhald af greinunum Atvinnuréttindi rafvirkja og Um vinnslu og notk- un raforku á íslandi, ásamt fleiri greinum.

x

Tímarit rafvirkja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.