Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.01.2022, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 19.01.2022, Qupperneq 11
„Þetta er mjög lifandi og skólastjórastarfið er miklu skemmtilegra en ég gerði ráð fyrir. Tónlist er náttúrlega lífsgæðaaukandi og sýnir sig kannski best þegar elsti nemandinn er 85 ára,“ segir Halldór Lárusson, skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis. Halldór kom til Sandgerðis 2007 og með skólastjórastarfinu kennir hann nemendum að berja trommur en fyrir hann sjálfan var trommu­ sett ekki í boði í tónlistarskólanum þegar hann hóf tónlistarnám ungur að árum en þegar Halldór var ellefu ára segist hann hafa ákveðið að verða tónlistarmaður. „Það var ekki trommusett í skólanum þegar ég byrjaði en ég lærði klassískan trommuslátt til að byrja með og líka á píanó,“ segir Halldór en fimmtán ára var hann byrjaður að spila á sveitaböllum með hljómsveitum. Ásóknin í tónlistarnám í tvo tón­ listarskóla í Suðurnesjabæ er svo mikil að ekki er hægt að anna allri eftirspurn. Píanó­ og gítarleikur eru efst á blaði en svo er flest annað í boði. Að undanförnu hefur ásókn aukist í söngnám og trommuleik og þegar Víkurfréttir heimsóttu Halldór heim í skólann var hann við trommu­ kennslu. Nemandinn þar, maður á miðjum aldri, segir að Halldór hafi selt sér þessa hugmynd, að fara í nám í trommuleik í heita pottinum í Sandgerði. „Þegar ég hitti fólk og tónlist kemur upp í umræðunni fæ ég oft að heyra hjá því að það hefði nú viljað læra á hljóðfæri og fær þá oftast spurningu til baka frá mér af hverju það skelli sér ekki og sæki um í tónlistarskóla – og fæ þá spurn­ inguna: „Get ég það?“ Ég svara auð­ vitað á móti að það sé jú möguleiki á því. Tónlistarskólar séu ekki bara fyrir grunnskólanemendur.“ Annar ekki eftirspurn Í Tónlistarskóla Sandgerðis fá 177 nemendur tónlistarkennslu frá unga aldri upp í eldri borgara. „Þetta eru nemendur í hljóðfæranámi og svo er hluti af þessu hljófæraval í sam­ vinnu við grunnskólann, forskóla og skólakór Sandgerðis,“ segir Halldór en við spyrjum skólastjórann hvort tónlist sé fyrir alla. „Það er einhver galdur við tón­ list sem ég get ekki alveg útskýrt. Ég vissi til dæmis alveg hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór, að­ eins ellefu ára, og það hefur gengið eftir. Það kom aldrei neitt annað til greina. Tónlist sameinar menningar­ heima, fólk af öllum trúarbrögðum og lífsskoðunum. Þetta er eitthvað tungumál, mjög hollt. Ungmenni læra sjálfsaga og það er vitað að tónlist­ arnám styður við margs konar nám eins og stærðfræði og lestur og fé­ lagsfærni. Í svona tilfellum eins og með Guðmund okkar, 85 ára nem­ anda, er þetta svo lífsgæðaaukandi. Hann lifir fyrir þessa tíma í tónlistar­ skólanum. Almennt líður fólki betur og því ættum við að hvetja eldra fólk til að drífa sig meira í tónlist. Þetta er án efa þjóðhagslega hagkvæmt þegar eitthvað bætir líf þitt svona mikið, ekki síst á efri árum, minni veikindi og hefur góð áhrif á alla.“ Á trommunum með Sandgerðingum Halldór hefur alla tíð spilað mikið og með alls kyns grúppum í gegnum tíðina og nú undanfarið hefur hann verið mikið í upptökum, til dæmis með góðum Sandgerðingum. „Ég var til dæmis að taka upp með Klassart systkinunum úr Sandgerði, þeim Smára og Fríðu Dís Guðmunds­ börnum. Þá hef ég verið að vinna með Sandgerðingnum Ólafi Þór Ólafssyni og félaga hans Þorgils Björgvinssyni en við höfum líka verið saman í „opnu sviði“ í Grindavík. Þá hef ég líka unnið í upptökum fyrir hol­ lenska hljómsveit að undanförnu. Þá geri ég mitt hér heima og sendi hljóð­ skrár til þeirra úti.“ Jákvætt viðhorf Það er við hæfi að spyrja Halldór, sem kom úr Reykjavík til Suðurnesja fyrir fimmtán árum síðan, hvernig honum finnist tónlistarlíf á Suður­ nesjum. „Það hafa langflestir heyrt um bít­ labæinn og um vinsælar hljómsveitir frá Keflavík í gamla daga og tónlist­ arlíf er mjög sterkt á Suðurnesjum en það sem mér fannst mjög áhuga­ vert var að upplifa strax jákvætt viðhorf sveitarfélaga til tónlistar og tónlistarkennslu,“ segir Halldór Lárusson. Tónlist er lífsgæðaaukandi Halldór Lárusson, skólastjóri Tónlistarskóla Sandgerðis, segir mikla ásókn í tónlistarnám í Suðurnesjabæ „Tónlist sameinar menningarheima, fólk af öllum trúarbrögðum og lífsskoðunum. Þetta er eitthvað tungumál, mjög hollt. Ungmenni læra sjálfsaga og það er vitað að tónlistarnám styður við margs konar nám eins og stærðfræði og lestur og félagsfærni“ Guðmundur Ákason er 85 ára flautunemandi og hann er elsti nemandi skólans. Hér er hann með kennurum sínum, Vilborgu og Sigurgeiri. Skólastjórinn við trommusettið að kenna Arnari Helgasyni en þeir félagar hittust í heita pottinum þar sem skólastjórinn seldi honum hugmyndina að koma í nám. Páll Ketilsson pket@vf.is vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 11

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.