Víkurfréttir - 23.02.2022, Page 1
24 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
studlaberg.is
Hjá okkur er allt
innifalið
Ljósleiðari
10.490 kr/mán.
ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER
NET
SÍMI
SJÓNVARP
K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8
w w w . k v . i s • k v @ k v . i s
Opnunartími
Hringbraut:
Allan sólarhringinn
Opnunartími
Tjarnabraut:
08.00 - 23.30 Virka daga
09.00 - 23.30 Helgar
FLJÓTLEGT OG GOTT!
Toppur
Sítrónu, 0,5 L
55%
99
kr/stk
áður
219 kr
Prótein kleinuhringir
3. tegundir
Corny Big
Allar tegundir, 50 g
337
kr/stk
áður
449 kr
25% 29%
99
kr/stk
áður
139 kr
Thelma Dís Ágústsdóttir
er 23 ára og býr í Muncie
í Indiana og leikur með
Ball State University.
SJÁ VF SPORT
1000 stig
Thelmu
Ellefu manns taka þátt í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjanesbæ sem fram fer
laugardaginn 26. febrúar næst-
komandi. Margrét Sanders, odd-
viti flokksins, er ein sem býður
sig fram í efsta sæti en mikið er
af nýju fólki sem gefur kost á sér.
Meðal sex efstu
frambjóðendanna frá
2018 eru aðeins tveir
sem bjóða krafta sína
áfram en auk Mar-
grétar býður Anna
S. Jóhannesdóttir,
bæjarfulltrúi sig fram í 2.–3. sæti.
Guðbergur Reynisson og Eyjólfur
Gíslason bjóða sig báðir fram í 2.
sætið, Helga Jóhanna Oddsdóttir
sækist eftir 3. sæti og Alexander
Ragnarsson 3.–4. sæti.
Aðrir frambjóðendur eru Eiður
Ævarsson (4. sæti), Gígja S. Guð-
jónsdóttir (4. sæti), Steinþór Jón
Gunnarsson (5. sæti) og Guðni
Ívar Guðmundsson (6. sæti).
Sjálfstæðisflokkurinn var með
22,9% atkvæða í síðustu kosn-
ingum og hlaut 3 bæjarfulltrúa.
Flokkurinn hefur síðustu tvö
kjörtímabil verið í minnihluta
í bæjarstjórn en var þrjú kjör-
tímabil þar á undan með hreinan
meirihluta undir stjórn Árna Sig-
fússonar, bæjarstjóra. Síðan þarf
að leita allt til kjörtímabilsins
1986–1990 þegar sjálfstæðis-
menn voru ekki í meirihluta.
Sveitarstjórnarkosningar
verða 14. maí. Sjálfstæðismenn í
Reykjanesbæ ríða á vaðið í undir-
búningi kosninga og eru fyrstir
til að ákveða röð á lista sem þeir
gera nær undantekningarlaust
með prófkjöri.
Framkvæmdir við Njarðvíkurskóla sumarið
2021 fóru 82% fram úr kostnaðaráætlun en
Ístak var með lægsta tilboðið fyrir 102,4 millj-
ónir króna. Lokauppgjör var hins vegar 186
milljónir króna.
Bæði meirihluti og minnihluti bæjarstjórnar
Reykjanesbæjar bókuðu um málið á síðasta
bæjarstjórnarfundi. Friðjón Einarsson, formaður
bæjarráðs, útskýrði framúrkeyrsluna en í bókun-
inni sem hann flutti segir að bæjarstjórn ítreki
mikilvægi þess að starfsmenn upplýsi tafarlaust
þegar upp komi frávik frá áður samþykktri fjár-
hagsáætlun.
Margrét Sanders, oddviti sjálfstæðismanna,
sagði í bókun að snemma í ferlinu hafi verið ljóst
að framkvæmdin yrði umfangsmeiri og þar af
leiðandi kostnaðarsamari. Þrátt fyrir það hafi
aldrei verið lögð fram kostnaðaráætlun til sam-
þykkis. „Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á
að þegar í ljós koma vankantar í framkvæmdum
á vegum bæjarins sé staldrað við og umfang sem
og áætlun verksins endurmetið og fari síðan í
formlegt samþykki, þannig að hægt sé að veita
aðhald í framkvæmdum,“ segir m.a. í bókuninni.
Meðal atriða sem þurfti að laga umfram upp-
haflega áætlun var lagfæring á ónýtu loftræsti-
kerfi, rakaskemmdir voru verulegar, laga þurfti
starfsmannaaðstöðu og þá stóðust burðarvirki
og brunarvarnir ekki kröfur.
82% fram úr áætlun
Framkvæmdir við Njarðvíkurskóla:
Sjálfstæðisflokkurinn:
Ellefu í prófkjöri
í Reykjanesbæ
Fjölmörg fiskiskip leituðu vars á Stakksfirði í óveðrinu sem geisaði á þriðjudaginn. Hér má sjá grindvísku togarana Hrafn
Sveinbjarnarson GK og Tómas Þorvaldsson GK á milli háhýsa við Pósthússtræti í Keflavík. Auk togara voru einnig loðnuskip í vari
á Stakksfirði en loðnuskipin hafa verið á veiðum skammt undan Reykjanesskaganum á síðustu dögum. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mikil uppbygging
hjá Golfklúbbi
Grindavíkur
SJÁ VF SPORT
Miðvikudagur 23. febrúar 2022 // 8. tbl. // 43. árg.