Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.02.2022, Síða 14

Víkurfréttir - 23.02.2022, Síða 14
„Nei, það er nú ekki langt síðan ég fór að fikta við tölvur. Björgvin tengda- sonur minn keypti þessa fyrir mig í Reykjavík,“ segir Gunnar þegar hann sýnir útsendurum Víkurfrétta nýja fartölvu sem hann hefur fengið í hendurnar og notast við daglega. „Ég er að ná í blöðin og frétta- miðla en svo er ég aðallega í tón- listinni,“segir Gunnar í samtali við blaðamann. Gunnar segist hafa gaman af Yo- utube myndveitunni. „Ég er svolítið drjúgur í tónlistinni og þykir gaman af allri dansmúsík,“ segir hann og bætir við: „Svo er það bara að spila kapal. Maður getur legið alveg í honum.“ Þú ferð mikið inn á Youtube og þar er mikið af efni. „Já, það er mikið af efni sem maður finnur þar. Það klikkar nú stundum þegar ég er að leita þar en ég byrja þá bara aftur.“ Er langt síðan þú lærðir að bjarga þér á tölvu? „Nei. Þegar ég fékk þessa tölvu, þá kenndu dætur mínar mér að komast inn á þetta. Ég var nú svolítið lengi að átta mig á þessu. Ég þurfti að spyrja oft um sömu atriðin,“ segir Gunnar og hlær. „En svo kom þetta smátt og smátt.“ Heldur þú að það sé algengt hjá eldra fólki að það nýti sér tölvur? „Það er örugglega misjafnt. Sumir eru alveg á kafi í þessu. Ég var að hugsa um að læra á heimabankann, en læt Lovísu dóttur mína bara um það fyrir mig.“ Þannig að þú ferð ekkert í heima- bankann sjálfur til að skoða? „Nei, ég þarf þess ekki. Dóttir mín er búin að sýna mér hvernig þetta virkar, en ég held að ég nái því ekki,“ segir Gunnar og kímir. Þá segist hann heldur ekki vera kominn að því að „gúggla“ á netinu til að leita sér upplýsinga. Hann láti frekar Youtube leiða sig áfram í flakki um heima danstónlistar og fleira í þeim dúr. Til í að læra á Google Blaðamaður býðst til að sýna Gunnari hvernig á að nota leitar- vélina á netinu. „Þú mátt sýna mér það en þarft jafnvel að gera það oftar en einu sinni svo ég nái því.“ Gunnar er jafnframt kominn með snjallsíma en segist ekki vera með nein öpp eða gögn þar. Hann sé bara til að hringja og taka á móti sím- tölum. Gunnar hefur næstum lifað heila öld og tímarnir eru mikið breyttir frá því hann var ungur maður. Þá voru ekki tölvur. „Þá var bara penni og blað og allt skrifað,“ segir hann. Virkur þátttakandi í heilsueflingu Heilsuefling Janusar í Reykjanesbæ berst í tal en Gunnar hefur verið þátttakandi í því verkefni frá upp- hafi og er enn að. „Ég hef verið að mæta tvisvar í viku eins og þetta var en það hefur alveg dottið út eitt og eitt skipti og þá sérstaklega þegar það er leiðinda veður eins og verið hefur undan- farið.“ Ertu ennþá að keyra? „Já, já, ég er með bílpróf.“ Eru læknarnir ekkert að skoða sjónina svo þú haldir prófinu? Jú. Það var í fyrra og þá var ég búinn að fara yfir alla stafina og læknirinn bara glápir á mig. Ég varð að gjöra svo vel að lesa aftur. Hann trúði mér ekki og ég spurði hann hvers vegna hann horfði svona á mig en hann svaraði því ekki,“ segir Gunnar og hlær af atvikinu. Gunnar fékk vottorðið hjá lækninum og er ennþá með gild ökuréttindi. Það er stutt síðan Gunnar fór til augn- læknis þar sem augnbotnarnir voru skoðaðir og sagðir vera eins og hjá ungmenni. Hefur það haft góð áhrif á þig að stunda þessa heilsurækt? „Já. Ég held að ég hafi byrjað alltof seint á þessu. Þetta er helvíti gott svona passlega mikið. Ef maður reynir of mikið á sig þá verður maður þreyttur. Ef þetta er allt í hófi þá er þetta bara mjög gott og það er gott að halda því bara svoleiðis.“ Heldur áfram á meðan heilsan leyfir Gunnar ætlar að halda áfram í rækt- inni eins og hann getur og meðan heilsan leyfir. Það gangi vel og ef eitthvað klikki, þá bara klikki það, segir hann. Gunnar er líka duglegur að stunda ræktina heimavið. Hann er með þrekhjól heima hjá sér sem hann notar daglega. Þá er einnig oft sett dansmúsík á fóninn og tekin spor í stofunni. Það gerði Gunnar einmitt fyrir blaðamenn Víkurf- rétta og myndskeið af því má sjá í rafrænni útgáfu blaðsins. Þú ert að dansa líka, er það ekki? „Já, já. Við ætluðum að fara að byrja starfið núna eftir Covid-ið en við mættum ekki nema tvö. Það þarf eitthvað að láta vita betur af þessu. Ég hitti einmitt eina stúlkuna í göng- unni í morgun og hún vissi ekkert af því að dansinn væri byrjaður, þannig að það þarf að láta vita betur af honum.“ Nærri aldargamall og keypti sér nýja fartölvu Það er áhugavert að heyra af fólki sem er næstum 99 ára gamalt og er að læra á tölvur og notfæra sér þá tækni í daglegu lífi. Gunnar Jónsson, íbúi í þjónustuíbúð á Nesvöllum, var að endurnýja fartölv- una sína sem hann notar daglega. Ég er svolítið drjúgur í tónlistinni og þykir gaman af allri dansmúsík. Svo er það bara að spila kapal. Maður getur legið alveg í honum. Páll Ketilsson pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA Gunnar tók dans fyrir Víkurfréttamenn. Var með kúrekabeltið klárt en vantaði bara kúrekahattinn. 14 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.