Víkurfréttir - 23.02.2022, Síða 17
Flothetta í samstarf við Bláa lónið
Bláa lónið og fyrirtækið Flothetta hafa hafið samstarf um einstakar flot-
meðferðir þar sem farið er djúpt inn í heim vatnsslökunar. Flotmeðferð er
afurð fyrirtækisins Flothettu og er djúpslakandi upplifunarhönnun, þróuð
út frá flotbúnaði Flothettu. Ferlið er úthugsað með það að leiðarljósi að
þáttakendur upplifi djúpa slökun, vellíðan og endurnæringu. Sérstaða
flotsins í Bláa lóninu byggist einnig á þeim virku efnum lónsins en kísill,
þörungar og steinefnin í vatninu hámarka upplifunina með endurnærandi
áhrifum. Umsjón verður í höndum viðurkenndra flotmeðferðaraðila sem
allir hafa lokið námskeiði í umsjón flotmeðferða og uppfylla kröfur um
þekkingu og öryggi í vatnsmeðferðarvinnu. Þess má geta að flotmeðferð
Flothettu var tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands 2020.
Flotbúnaður Flothettu er hannaður
af Unni Valdísi Kristjánsdóttur, vöru-
hönnuði og frumkvöðli í vatnsmeð-
ferðum hér á landi, og gengur hann
undir nafninu Flothetta. Hugmynda-
fræði Flothettu er innblásið af áhuga
Unnar Valdísar að vinna með heita
vatnið til heilsueflingar, slökunar og í
lækningaskyni. Flothettan kom fyrst
á markað árið 2012 og frá þeim tíma
hefur áhuginn á floti aukist og það
fest sig í sessi hér á landi. Samstarfið
við Bláa lónið er síðan framfaraskref,
því enginn annar baðstaður býður
upp á flotmeðferðir af sama metnaði
og fagmennsku. Það má því segja að
upplifunin sé einstök svo ekki sé
talað um einstakt umhverfi og eigin-
leikar Bláa lóns vatnsins.
Boðið verður upp á þrenns
konar upplifanir í Bláa lóninu; ein-
staklingsflot, paraflot og hópaflot.
Flotbúnaður Flothettu sér um að
halda þátttakendum á floti á meðan
meðferðaraðilinn veitir mjúka með-
höndlun og nudd á meðan flotið er.
Flotmeðferð er djúpt og heilandi
ferðalag þar sem gestir eru leiddir af
mýkt og öryggi inn í kyrrð og eftir-
gjöf þyngdarleysis. Allt miðar þetta
að því að næra og örva heilbrigt
orkuflæði líkamans og losa út nei-
kvæð áhrif streitu. Lögð er áhersla
á algjöra endurnæringu í gegnum
djúpt slökunarástand í þyngdar-
leysinu og að losa um alla spennu
líkamans með mjúkum teygjum, togi
og nuddi.
„Við erum mjög spennt og ánægð
með samstarfið við Flothettu. Flot-
meðferðum í Bláa lóninu hefur nú
þegar verið sýndur mikill áhugi og
eru þær einstök viðbót við þær með-
ferðir í vatni sem við bjóðum upp á í
Bláa lóninu,“ segir Eyrún Sif Eggerts-
dóttir, forstöðumaður baðstaða og
verslana hjá Bláa lóninu.
Allt um Reykjanesbæ
á einum stað
Reykjanesbær hefur opnað heima-
síðuna Visit Reykjanesbær þar
sem má nálgast margvíslegar upp-
lýsingar um Reykjanesbæ og þá
afþreyingu sem þar er í boði fyrir
börn og fullorðna.
Megintilgangur síðunnar er að
kynna Reykjanesbæ fyrir ferða-
mönnum jafnt sem heimafólki auk
þess að vera alhliða vettvangur
fyrir verslun og þjónustu. Meðal
efnis á síðunni er listi yfir fjöl-
breytta veitingastaði og gistingu
á svæðinu auk upplýsinga um
samgöngur. Sérstakur hluti er svo
helgaður útivist og má þar til að
mynda finna hinar ýmsu göngu-
leiðir á Reykjanesinu.
Á síðunni er einnig viðburða-
dagatal með yfirliti yfir helstu við-
burði sem fram fara í bænum og
þar er hægt að senda inn nýja við-
burði og uppákomur til birtingar í
dagatalinu.
„Það er okkar markmið að Visit
Reykjanesbær verði í framtíðinni
sá staður þar sem hentugast er að
nálgast upplýsingar um Reykja-
nesbæ þannig að bæjarbúar, gestir
og ferðamenn getið notið þess
sem sveitarfélagið hefur upp á
að bjóða,“ segir í frétt frá Reykja-
nesbæ.
FIMMTUDAG KL. 19:30
HRINGBRAUT OG VF.IS
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 17