Víkurfréttir - 23.02.2022, Side 20
Afmælissýningu Leikfélags Keflavíkur, Fyrsti kossinn, lauk um liðna helgi eftir tuttugu og fjórar sýninga sem jafnframt er sýningamet í Frumleikhúsinu.
Það er að vera komið hálft ár síðan æfinga-
ferlið hófst og áhorfendur eru sammála um að
þessi sýning hafi verið algjörlega frábær og eigi
fullt erindi í atvinnuleikhúsin.
Því var forseti Íslands, Guðni Th. Jóhann-
esson, sammála en hann mætti á sýningu um
liðna helgi og skemmti sér konunglega. Guðni
kom baksviðs að lokinni sýningu og hrósaði
sýningunni og leikurunum í hástert og sagðist
hafa átt skemmtilega kvöldstund í Frumleik-
húsinu.
Þetta er reyndar í annað sinn sem forsetinn
kemur á sýningu en áður kom hann með fjöl-
skylduna á Dýrin í Hálsaskógi.
„Auðvitað er okkur mikill heiður sýndur
þegar sjálfur forsetinn gefur sér tíma til þess
að kíkja á leiksýningar hjá okkur og erum stolt
af því,“ sögðu leikararnir og nefndu um leið á
að textahöfundurinn Þorsteinn Eggertsson
og meðlimir Hljóma og Trúbrots þeir Gunnar
Þórðarson og Erlingur Björnsson hefðu einnig
mætt og fundist stórkostlegt að heyra og sjá
þetta tímamótaverk sem hefur að geyma lög
sem Rúnar heitinn Júlíusson gerði ódauðleg.
Sýningin er eins og áður sagði sett upp í
tilefni 60 ára afmæli Leikfélags Keflavíkur
og skrifuð af þeim Brynju Ýr Júlíusdóttur og
Guðlaugi Ómari Guðmundssyni. Sýningin er
jafnframt sú 100. frá stofnun Leikfélags Kefla-
víkur ef rétt er talið.
Leikfélagar vilja koma á framfæri þakklæti til
allra þeirra sem gáfu sér tíma til þess að kíkja á
sýninguna í Frumleikhúsinu og studdu þannig
við öflugt starf félagsins.
Forseti Íslands sá Fyrsta kossinn hjá Leikfélagi Keflavíkur
Deildir Dagsetning Dagur Tími Staður
1. deild 3. mars 2022 Fimmtudagur Kl. 17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Keflavík norðan Aðalgötu
2. deild 3. mars 2022 Fimmtudagur Kl.17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Keflavík sunnan Aðalgötu
3. deild 3. mars 2022 Fimmtudagur Kl. 17:00 Krossmóa 4, 5. hæð
Njarðvík, Hafnir, Vogar
4. deild 1. mars 2022 Þriðjudagur Kl. 17:00 Sjómannastofan Vör
Grindavík
5. deild 2. mars 2022 Miðvikudagur Kl. 18:00 Efra Sandgerði
Sandgerði
6. deild 2. mars 2022 Miðvikudagur Kl. 17:00 Réttarholtsvegi 13, Garði
Garði
8. deild 28. febrúar 2022 Mánudagur Kl. 17:00 Nettó – Miðvangi 41, Hafnarfirði
Hafnarfjörður, Garðabær,
Álftanes, Kópavogur,
Seltjarnarnes, Reykjavík
FUNDABOÐ
AÐALFUNDIR DEILDA KAUPFÉLAGS SUÐURNESJA VERÐA
HALDNIR SAMKVÆMT SAMÞYKKTUM FÉLAGSINS SEM HÉR SEGIR:
Krossmóa 4 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 421 5409
20 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM