Víkurfréttir - 23.02.2022, Síða 22
Þetta er í fyrsta skiptið sem unglingamótaröð
af þessu tagi er spiluð á Íslandi og greinilegt að
þörfin er mikil enda var þátttaka í þessu fyrsta
móti frábær og fór langt fram úr væntingum. Alls
mættu 26 keppendur til leiks en keppt var í drengja-
og stúlknaflokkum níu til tólf ára og þrettán til átján
ára. Fjórar umferðir verða spilaðar á þessu ári og verður
næsta umferð spiluð þann 9. apríl.
Eftir mótið var haft eftir Matthíasi Erni, forseta ÍPS,
á vefsíðu ÍPS (dart.is) að framtíðin væri svo sannarlega
björt í pílukasti. „Það er mjög mikilvægt að hlúa vel að
yngstu iðkendum íþróttarinnar því þau eru fram-
tíðin. Það var magnað að horfa á þau kasta í
dag og sjá hversu góð þau eru og
hvað þau geta orðið góð ef þau halda
áfram að æfa sig. Eins verður að þakka
foreldrum sem stóðu sig með prýði og
aðstoðuðu við að skrifa leiki og hrósa og
hugga eftir því sem gekk í mótinu. Einnig
vill ég þakka Pílufélagi Reykjanesbæjar sem tóku
gríðarlega vel á móti okkur, gáfu öllum keppendum mat
og drykki og voru alltaf til staðar.“
Njarðvíkingar sigursælir
Bikarglíma Íslands ásamt Bikarglímu Íslands sextán ára og yngri voru
haldin í íþróttamiðstöð Hvolsvallar um síðustu helgi. Voru það fyrstu
glímumót ársins en fresta þurfti mótum í janúar vegna þágildandi sam-
komutakmarkana. Njarðvíkingingar urðu í þriðja sæti liða en Þjótandi
sigraði þetta árið og Dímon hlaut annað sætið.
Bikarmeistaramót unglinga og fullorðina:
Njarðvíkingar hafa látið til sín taka í
fangbragðaíþróttum að undanförnu
og var deildin sú stærsta á landinu
á síðasta ári. Miklar framfarir hafa
orðið hjá deildinni og til að mynda
átti Njarðvík glímukonu ársins 2021,
Heiðrúnu Fjólu Pálsdóttur, að mati
Glímusambands Íslands. Heiðrún
var hins vegar fjarri góðu gamni
þetta árið en stórt skarð var hoggið í
hóp flestra keppnisliða vegna Covid-
smita.
Þrátt fyrir fjarveru bestu glímu-
konu Íslands stóðu Njarðvíkingar
sig ótrúlega vel. Gunnar Örn Guð-
mundsson, glímumaður Reykjanes-
bæjar, sigraði -80 kg flokk unglinga
og í stað þess að keppa í -80 kg flokki
fullorðinna valdi hann að keppa
í opnum flokki en þar var léttasti
keppandinn 20 kg þyngri en hann.
Gunnar glímdi vel og hlaut þriðja
sætið í þeim flokki.
Jóhannes Pálsson, júdómaður
Reykjanesbæjar, sigraði svo -80 kg
flokk fullorðina en drengurinn er að-
eins sautján ára gamall.
Jóel Helgi Reynisson átti frábærar
glímur og var þetta hans besta mót
til þessa. Hann varð annar í +80 kg
flokki unglinga en sótti í sig veðrið
og sigraði -90 kg flokk karla.
Í lok dags höfðu Njarðvíkingar
landað sex bikarmeistaratitlum,
fernum silfurverðlaunum og einum
bronspeningi.
Bikarglíma sextán ára og yngri: Þrír bikarmeistarar barna
Sjö Njarðvíkingar kepptu í flokkum
sextán ára og yngri, einn drengur og
sex stúlkur. Þess má einnig geta að
þessir keppendur eiga rætur sínar að
rekja til sex mismunandi landa. Lena
Andrejenko og Nderina Sopi urðu
bikarmeistarar tólf ára stúlkna og
Mariam Badawy varð bikarmeistari
fjórtán ára stúlkna. Helgi Þór Guð-
mundsson varð annar í flokki fjórtán
ára drengja og Rinesa Sopi varð
önnur í flokki fimmtán ára stúlkna.
Shoukran Aljanabi varð svo þriðja í
flokki sextán ára stúlkna.
Árangurinn kemur ekki að sjálfu sér
Þessi árangur er enn ein skraut-
fjöðurin í hattinn hjá glímudeildinni.
Góð æfingaaðstaða, styrkir frá fyrir-
tækjum, sterk stjórn og stuðningur
Reykjanesbæjar eiga stóran þátt
í vexti og árangri deildarinnar og
vexti glímunnar á öllu landinu.
DEILDARSTJÓRI FRÆÐSLUÞJÓNUSTU SUÐURNESJABÆJAR
Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir öflugum og skapandi leiðtoga í starf
deildarstjóra fræðsluþjónustu. Suðurnesjabær er næst stærsta sveitafélagið á
Suðurnesjum með um 3.800 íbúa og um 280 starfsmenn. Í sveitarfélaginu eru
tveir leikskólar, tveir grunnskólar og tónlistarskólar. Fjölskyldusvið er samþætt
þjónustueining og til þess heyrir félags-, frístunda- og fræðsluþjónusta.
Þá sinnir fjölskyldusvið einnig félags- og fræðslumálum fyrir sveitarfélagið
Voga á grundvelli samnings, þar sem er einn leikskóli og einn grunnskóli.
Helstu verkefni og ábyrgð
■ Stýra og bera ábyrgð á rekstri og
daglegri starfsemi fræðsludeildar.
■ Eftirfylgni með lögum og reglugerðum
um leik-, grunn- og tónlistaskóla.
■ Eftirlit og umsjón með aðbúnaði,
skipulagi og árangri skólastarfs í
samvinnu við skólastjórnendur.
■ Stuðningur og ráðgjöf við að-
ila skólasamfélagsins.
■ Tengiliður skóla m.a. við mennta-
og barnamálaráðuneytið og
Samband íslenskra sveitarfélaga.
■ Innleiðing laga um samþættingu
þjónustu í þágu farsældar barna.
■ Teymisvinna þvert á deildir og
stofnanir sveitarfélagsins.
■ Starfsmaður fræðsluráðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
■ Leyfi til að nota starfsheitið kennari.
■ Framhaldsnám í stjórnun
eða menntunarfræðum.
■ Farsæl reynsla af grunnskólakennslu,
stjórnun og mannaforráðum.
■ Haldbær reynsla af áætlunargerð
og greiningum.
■ Þekking og reynsla í opinberri
stjórnsýslu er æskileg.
■ Leiðtogahæfni og góð færni
í mannlegum samskiptum.
■ Skipulagshæfni og sjálfstæði
í vinnubrögðum.
■ Hæfni til tjáningar í ræðu og
riti á íslensku og ensku.
Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2022.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starf deildarstjóra
fræðsluþjónustu.
Umsjón með starfinu hefur Guðrún Björg Sigurðardóttir,
sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is
eða í síma 425-3000.
Umsóknum skal skilað á rafrænu formi á netfangið
afgreidsla@sudurnesjabaer.is
Daníel varð afmælis-
mótsmeistari JSI
Afmælismót JSI fór fram síðustu
helgi en 40 keppendur frá átta
klúbbum tóku þátt í mótinu.
Daníel Dagur Árnason úr Judo-
félagi Reykjanesbæjar vann til gull-
verðlauna á mótinu í undir 21 árs
-66 kg flokki þegar hann vann allar
sínar viðureignir á Ippon.
Þá vann Zofia Dreksa úr júdó-
deild Grindavíkur einnig til gull-
verðlauna í undir fimmtán ára
flokki stúlkna.
„Það er mjög mikilvægt að hlúa vel
að yngstu iðkendum íþróttarinnar
því þau eru framtíðin,“ – sagði Matthías Örn Friðriksson, for-
maður Íslenska pílukastsambandsins,
að lokinni fyrsta umferð unglinga-
mótaraðar ÍPS og PingPong.is sem
var spiluð síðasta laugardag í að-
stöðu Pílufélags Reykjanesbæjar
að Keilisbraut 755, Ásbrú.
Mikill fjöldi ungra pílukastara reyndi fyrir sér á fyrsta
stigamóti unglingamótaraðar ÍPS og PingPong.is.
Allir skemmtu sér hið besta eins
myndirnar sýna. VF: JPK
Matthías Örn,
formaður ÍPS.
sport