Víkurfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 2
Sveitarfélagið stóðst
áraun heimsfaraldurs
Bókun vegna ársreiknings Reykjanesbæjar og stofnana fyrir árið 2021
„Þessi síðasti ársreikningur kjör-
tímabilsins sýnir að sveitarfélagið
hefur staðist þá áraun sem heims-
faraldur hafði í för með sér og er
tilbúið til að standa undir þeirri
þjónustu sem veita þarf til fram-
tíðar,“ segir í bókun meirihluta
Bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sem
lögð var fram á fundi hennar þriðju-
daginn 3. maí.
Þar segir jafnframt:
„Heildartekjur samstæðu (A og B
hluta) voru 28,1 milljarður og rekstr-
argjöld 23,2 milljarðar. Að teknu
tilliti til afskrifta, fjármagnsliða og
skatta var niðurstaðan jákvæð um
317 milljónir en í áætlun hafði verið
gert ráð fyrir 2,5 milljarða halla á
samstæðu sveitarfélagsins.
Heildartekjur bæjarsjóðs (A hluta)
voru 21,8 milljarður og rekstrargjöld
bæjarsjóðs námu 18,2 milljörðum.
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir
og fjármagnsliði var jákvæð um 3,6
milljarða en að teknu tilliti til þeirra
liða var niðurstaðan jákvæð um 2,1
milljarð, en í áætlun hafði verið gert
ráð fyrir 2,9 milljarða halla á bæjar-
sjóði.
Það sem skýrir þessa jákvæðu
niðurstöðu er að í ársreikningi
er reiknuð einskiptis tekjufærsla
vegna yfirtöku eigna frá Eignar-
haldsfélaginu Fasteign yfir í bæjar-
sjóð. Einnig má nefna að gjaldfærð
lífeyrirskuldbinding var talsvert
hærri en ráð var fyrir gert og hefur
hún einnig veruleg áhrif á endanlega
niðurstöðu.
Hins vegar er með réttu hægt
að halda því fram að sveitarfélagið
standi sterkt þrátt fyrir að atvinnu-
leysi á Suðurnesjum hafa farið í
24,5%. Atvinnuleysið minnkar
hins vegar hratt þessa dagana og
væntingar um að staðan verði orðin
ásættanleg með fjölgun ferðamanna
nú í sumar.
Eiginfjárstaða sveitarfélagsins
hefur batnað verulega og má þar
nefna að árið 2014 ár er hrein eign
bæjarsjóðs 2,1 milljarður en er nú
12,6 milljarðar.
Hrein eign samstæðu eru nú
28,3 milljarðar en var 7,5 milljarðar
í árslok 2014. Þess má geta að á
þessum tíma hafa skuldir HS Veitna
aukist um rúma 7 milljarða og hefur
það áhrif á útreikning skuldahlut-
falls/skuldaviðmiðs þrátt fyrir að
það muni á engan hátt hafa áhrif á
rekstur sveitarfélagsins.
Skuldaviðmið er skv. reikningi
102% hjá bæjarsjóði og 120% í sam-
stæðu sem er langt undir þeim við-
miðunarreglum sem gilda um fjármál
sveitarfélaga. Það er því ljóst að vel
hefur tekist við að halda jafnvægi í
rekstri um leið og lagt hefur verið í
verulegar fjárfestingar án lántöku.
Hin nýja og glæsilega bygging Stapa-
skóli er gott dæmi um það.
Þar sem nú er komið að lokum
þessa kjörtímabils viljum við kjörnir
fulltrúar Beinnar leiðar, Framsóknar-
flokks og Samfylkingar nota tæki-
færið og þakka öllum samskiptin,
bæði samstarfsfólki í bæjarstjórn
og starfsmönnum öllum. Þá hefur
nefndarfólk unnið af kostgæfni við
að láta hlutina ganga og viljum við
þakka fyrir alla þá vinnu sem þau
hafa lagt af mörkum.
Nú tekur við nýr kafli og viljum
við óska þeim velfarnaðar í störfum
sínum sem taka við keflinu og stýra
skútunni áfram en við erum stolt af
þeim verkum sem við höfum fengið
að vinna að og erum þess fullviss að
framtíð Reykjanesbæjar er björt.“
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Starfsmenn Brunavarna Suður-
nesja hjálpuðu þremur einstakl-
ingum út úr íbúð þar sem kraumaði
reykur frá potti sem hafði gleymst á
eldavél í íbúð í fjölbýlishúsi á Ásbrú
klukkan korter yfir sex á sunnu-
dagsmorgun.
Reykkafarar fóru inn og fundu
pott sem gleymst hafði á eldavél og
fóru með hann út. Fólkinu var svo
hjálpað við að komast út og íbúðin
var reykræst.
Reykur í íbúð frá
potti á eldavélinni
Lyfsalinn ehf. hefur samið við Aðaltorg ehf. um bygg-
ingu nýs apóteks undir nafni Lyfjavals á reitnum við
Courtyard by Marriott hótelið í Reykjanesbæ. Apó-
tekið verður bílaapótek, auk þess sem þar verður hefð-
bundið apótek sem gengið er inn í. Apótek Suðurnesja
flytur starfsemi sína í þetta nýja og glæsilega húsnæði
undir lok árs.
Apótek Suðurnesja var stofnað 1996 en hefur verið
rekið sem hluti af Lyfjavali til fjölda ára. Við þessi
tímamót mun apótekið verða rekið undir nafni Lyfja-
vals. Lyfsalinn á og rekur þrjú apótek undir merkjum
Lyfsalans og þrjú undir merki Lyfjavals.
„Þetta eru mjög svo ánægjulegir tímar fyrir okkur
starfsfólkið þar sem bílaapótekið verður án efa til þess
að auka þjónustu okkar við íbúa á Reykjanesinu öllu.
Okkur þykir staðsetningin einstaklega spennandi þar
sem þetta svæði er svo miðsvæðis fyrir svo marga, ferða-
menn og heimamenn í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ, “
segir Tanja Veselinovic, lyfsöluleyfishafi í Apóteki Suður-
nesja. Hún hefur unnið sem lyfsali í Apóteki Suðurnesja í
um tíu ár og segir að vissulega verði eftirsjá að fyrri stað-
setningu og gamla húsinu en þessi breyting sé til hags-
bóta fyrir alla. Stefnt er að því að Lyfjaval muni bjóða
upp á lengri opnunartíma en hingað til á svæðinu. Gert
er ráð fyrir opnun apóteksins undir lok árs.
Ingvar Eyfjörð er framkvæmdastjóri Aðaltorgs. Hann
segist hæst ánægður með að fá Lyfjaval inn á torgið sem
byggist nú hratt upp.
„Við erum ánægðir með að fá bílaapótek inn á torgið.
Lyfjaval hefur mikla reynslu af því að reka bílaapótek
og þessi þjónusta mun smellpassa inn í það þjónustu-
framboð sem þarna er að byggjast upp og tilkynnt verður
um á næstu vikum,“ segir Ingvar. Hann segir að eins og
áður komi allir verktakar framkvæmdarinnar af Suður-
nesjum. HUG Verktakar ehf. sjá um byggingu apóteksins
ásamt Lagnaþjónustu Suðurnesja ehf., Nesraf ehf. og
Ellerti Skúlasyni ehf. en hönnunin var í höndum Arkís
Arkitektar og Verkís.
Lyfjaval opnar bílaapótek í Reykjanesbæ
Svavar Valgeirsson frá Lyfjavali
tók fyrstu skóflustunguna á
stórri jarðvinnuvél frá Ellerti
Skúlasyni. Fulltrúar allra sem
koma að framkvæmdinni
standa við vélina.
VF-mynd/pket.
2 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM