Víkurfréttir - 04.05.2022, Side 4
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.isá timarit.is
Verzlun Þorláks Benediktssonar,
sem rekin var í Akurhúsum í Garði
frá árinu 1921 til ársins 1972,
hefur gengið í endurnýjun líf-
daga. Innréttingar verslunarinnar
hafa verið settar upp í hlöðunni í
Byggðasafninu á Garðskaga og allt
umhverfi verslunarinnar endur-
skapað. Gamla verslunin fær nú
hlutverk móttöku byggðasafnsins
og þar verður jafnframt safnbúð.
Byggðasafnið á Garðskaga hefur
nú verið opnað að nýju eftir tals-
verðar endurbætur og endurskipu-
lagningu. Við opnunina var skálað
í appelsíni með lakkrísröri og var
það í anda Verzlunar Þorláks Bene-
diktssonar. Í þau 51 ár sem verslunin
var rekin í Akurhúsum í Garði var
það hápunkturinn hjá ungdómnum
í Útgarðinum að fara í búðina og fá
Egils appelsín í gleri með lakkrísröri.
Ef það var ekki í boði þá voru í það
minnsta keyptar karamellur.
Margrét I. Ásgeirsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafnsins á Garð-
skaga, Tanja Halla Önnudóttir, safn-
vörður byggðasafnsins, og Jóhanna
Kjartansdóttir, sem starfað hefur
fyrir byggðasafnið í vetur, tóku á
móti gestum í opnunarhófinu með
framangreindum veitingum, sem í
minningu Garðmanna einkenndu
verslunina.
Áður en gestum var boðið að
skoða endurgerða verslunina var
boðið upp á menningardagskrá í
móttöku safnsins. Meðal annars
léku nemendur og kennarar Tón-
– við opnun Verzlunar Þorláks Benediktssonar í Byggðasafninu á Garðskaga
Skálað í appelsíni
listarskólans í Sandgerði á forláta
hljóðfæri sem eru í safnkosti byggða-
safnsins, rafmagnsgítar frá árinu
1965 og orgel sem talið er frá því í
kringum aldamótin 1900.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri
Suðurnesjabæjar, afhenti Byggða-
safninu á Garðskaga einnig síðasta
stimpil bæjarstjóra Sveitarfélagsins
Garðs og verður hann varðveittur á
safninu.
Fram kom í máli Margrétar, for-
stöðumanns safnsins, að með opnun
á endurgerðri Verzlun Þorláks Bene-
diktssonar væri að opna sýning
í mótun sem ætti að segja versl-
unarsögu Garðs og Sandgerðis en
á veggjum er að finna bæði myndir
og texta sem segja frá verslunarsögu
sveitarfélaganna sem nú eru Suður-
nesjabær. Bætt verður inn munum
með reglulegum hætti næstu vikur
og mánuði, þannig að gestir geta
komið aftur og aftur og séð breyt-
ingar og nýja muni.
Sumaropnun Byggðasafnsins á
Garðskaga frá maí til september
verður kl. 10–17 alla daga.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suðurnesjabæjar, afhenti Byggðasafninu á
Garðskaga einnig síðasta stimpil bæjarstjóra Sveitarfélagsins Garðs. Tanja
Halla Önnudóttir, safnvörður, tók stimpilinn til varðveislu á safninu.
Við opnunina var leikið á hljóðfæri úr safnkosti byggðasafnsins.
Margrét I. Ásgeirsdóttir,
forstöðumaður Byggðasafnsins
á Garðskaga, Tanja Halla
Önnudóttir, safnvörður
byggðasafnsins, og Jóhanna
Kjartansdóttir, sem starfað hefur
fyrir byggðasafnið í vetur, tóku
á móti gestum í opnunarhófinu.
Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 14. maí 2022
KJÖRSTAÐIR Í SUÐURNESJABÆ
Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum
245 og 246 Sandgerði er í Sandgerðisskóla.
Kjörfundur fyrir kjósendur í póstnúmerum
250 og 251 Garður er í Gerðaskóla.
Sérstök athygli er vakin á að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjördagur sveitarstjórnarkosninga 14. maí 2022.
Kjörstaðir opna kl. 09:00 og loka kl. 22:00.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í Sandgerðisskóla
sími 893 3730
Talning atkvæða fer fram á sama stað.
Yfirkjörstjórn Suðurnesjabæjar
4 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM