Víkurfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 6
Eru tengsl milli Breiðdals-
víkur og Suðurnesja?
Suðurnesjamenn geta verið ansi
sáttir með aprílmánuð sem nú er
lokið, því mikið líf var í höfnunum
þremur og afli góður. Mest var
um að vera í Grindavík. Eftir að
hrygningarstoppinu lauk fór allur
línubátaflotinn sem var við veiðar
utan við Sandgerði til Grindavíkur
og hefur verið þar. Veiði bátanna
var góð og skal hérna litið á nokkra.
Rétt er að hafa í huga að bát-
arnir lönduðu bæði í Sandgerði
og Grindavík. Hafrafell SU með
289 tonn í 23 róðrum og Sand-
fell SU með 279 tonn í 23 róðrum.
Ansi mikill afli hjá þessum tveimur
bátum sem eru í eigu Loðnuvinnsl-
unar á Fáskrúðsfirði. Öllum afla af
bátunum var síðan ekið til vinnslu
á Fáskrúðsfirði.
Kristján HF með 263 tonn í 20
róðrum. Auður Vésteins SU með
232 tonn í 23 róðrum. Gísli Súrsson
GK með 199 tonn í 22 róðrum. Ind-
riði Kristins BA með 191 tonn í átján
róðrum. Háey I ÞH með 165 tonn í
ellefu veiðiferðum og öllu landað í
Grindavík. Daðey GK með 152 tonn
í sextán róðrum. Sævík GK með 134
tonn í sextán, báðir líka í Grindavík.
Dragnótabátar Nesfisks réru lítið
í apríl, enda var mikill fiskur í boði á
markaði og Nesfiskur keypti fiskinn
þar í staðinn, enda er kvóti bátanna
orðinn lítill. Tveir dragnótabátar
sem réru frá Sandgerði fóru yfir
100 tonnin. Maggý VE var með 114
tonn í níu róðrum og Aðalbjörg RE
sem var með 106 tonn í tíu.
Hjá netabátum var Erling KE
langhæstur af bátunum frá Suður-
nesjunum. Hann var með 308
tonn í tuttugu róðrum og mest öllu
landað í Sandgerði. Bátarnir hans
Hólmgríms réru í apríl en Grímsnes
GK réri reyndar aðeins til 11. apríl.
Var hann þá búinn að landa 79
tonnum í níu róðrum. Öfugt við
undanfarin ár þar sem að Grímsnes
GK hefur stundað netaveiðar allt
árið og verið með aflahæstu neta-
bátum landsins þá mun svo ekki
vera núna í ár, því ákveðið hefur
verið að Grímsnes GK muni fara
á rækjuveiðar og þá leggja upp hjá
Meleyri á Hvammstanga, en það
fyrirtæki á Nesfiskur. Grímsnes
GK hefur haft rækjuheimild og fékk
úhlutað um 97 tonnum af rækju
núna en báturinn hefur ekki verið
á rækju síðan árið 2016.
Talandi um þennan bát ,
Grímsnes GK, sem við höfum
nokkuð oft minnst á í þessum
pistlum mínum, að núna er ég stað-
settur á Breiðdalsvík og það snjóar
og snjóar. Hélt að það væri komið
sumar. Hmm. Næsti bær við Breið-
dalsvík heitir Stöðvarfjörður. Árið
1963 kom þangað nýr bátur sem hét
Heimir SU og var sá bátur gerður
út að mestu til síldveiða fram til
ársins 1967, þegar að nýr og stærri
Heimir SU kom. Gamli Heimir SU
var seldur til Hnífsdals og fékk þar
nafnið Mímir ÍS. Með því nafni var
báturinn gerður út í sjö ár, fram til
1974 þegar að báturinn var aftur
seldur austur og þá til Eskifjarðar.
Hét þá Hafalda SU. Báturinn kom
til Suðurnesja árið 1978 þegar að
Ásgeir hf. í Garði kaupir bátinn og
fékk hann þá nafnið Ásgeir Magn-
ússon GK. Árið 1981 fékk hann
nafnið Árni Geir KE og 1985 kom
nafn Happasæls KE á bátinn. Með
því nafni var báturinn gerður út til
2001. Áður en báturinn fékk nafnið
Grímsnes GK árið 2005, þá hét bát-
urinn Sædís HF og Mímir ÍS. Sem
sé, ég næ svo sem næstum því að
tengja staðinn sem ég er á núna við
Suðurnesin, og reyndar hefur það
verið þannig síðustu ár að minni
línubátarnir frá Suðurnesjum eins
og t.d. Daðey GK og Sævík GK hafa
róið frá Breiðdalsvík yfir sumarið
og eitthvað fram á haustið.
Annars er framundan 11. maí, sem
er lokadagur vetrarvertíðarinnar
árið 2022 og mun aðeins verða
fjallað nánar um það síðar.
aFlaFrÉttir á SuðurNESJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
OPIÐ HÚS
LAUGARDAGINN 7. MAÍ
OG SUNNUDAGINN 8. MAÍ
KL. 13:00 TIL 16:00
Brunavarnir Suðurnesja bjóða Suðurnesjafólki
að koma og skoða nýja slökkvistöð við Flugvelli
í Reykjanesbæ ásamt tækjabúnaði
laugardaginn 7. og sunnudaginn 8. maí
kl. 13 til 16 báða dagana. Allir velkomnir!
Glerfín ljósmyndasýning
Ljósmyndir frá Víkurfréttum prýða
glerveggi á slökkvistöðinni.
Myndirnar eru teknar á starfssvæði
Brunavarna Suðurnesja. Njótið!
Rétt fyrir klukkan tvö aðfaranótt
laugardags kom tilkynning frá
neyðarlínu um eld í fjölbýli á annari
hæð í Reykjanesbæ. Í upphafi var
ekki vitað hvort maður væri innan-
dyra svo reykkafarar voru sendir
inn í leit til að útiloka það.
Mikill reykur og hiti var innan-
dyra en slökkvistarf gekk vel. Miklar
skemmdir eru á íbúðinni eftir eld og
reyk en eldsupptök eru óljós en lög-
regla fer með rannsókn málsins. Einn
dælubíll og körfubíll voru sendir á
vettvang.
„Að vakna upp um miðja nótt
við það að heimili manns stendur í
ljósum logum er skelfileg lífsreynsla.
Eins og að vera fastur í hræðilegri
martröð sem þú getur ekki vaknað
upp af. Það sem vakti mig var svefn-
herbergishurðin sem glamraði í
hurðarfalsinu, líkt og hún gerði alltaf
í jarðskjálftunum síðasta vetur því
hún er örlítið laus í faginu. Þess
vegna hélt ég í svefnrofanum að það
hefði komið skjálfti. En glamrið varð
að þungum höggum, ég hrökk upp
og spratt fram úr rúminu. Þá fann
ég brunalyktina. Ég opna hurðina
og kolsvartur reykjarmökkurinn
kemur á móti mér. Ég hrópa af öllum
lífs og sálar kröftum á strákinn minn
en fékk ekkert svar. Náði að komast
inn í herbergið hans en hann var ekki
í rúminu sínu. Þetta var það skelfi-
legasta af öllu - að vita ekki um hann.
Þarna sá ég ekki orðið handa
minna skil í kolsvörtu reykjarkófinu
svo ég reyndi að halda niðrí mér
andanum og fetaði mig meðfram
veggnum að útidyrahurðinni og
náði að komast fram á stigagang.
Ég hafði gripið með mér símann af
náttborðinu til að geta hringt á hjálp.
Stuttu síðar er slökkviliðið komið
og neyðarlínan slítur samtalinu. Ég
hringi þá í strákinn minn og til allrar
Guðs blessunar svaraði hann. Hann
hafði ekki verið heima. Allir komust
út úr húsinu heilir á húfi.
Ég vil þakka nágrönnum mínum
hugulsemina fyrir að hlúa að mér og
koma mér í föt því ég var hálfnakinn
þegar ég komst út. Sérstaklega vil ég
þakka frábæra starfsfólkinu sem tók
á móti mér á HSS fyrir alúðlega að-
hlynningu um nóttina. Og lögregl-
unni og slökkviliðinu fyrir vel unnin
störf,“ skrifar náttúruljósmyndarinn
Ellert Grétarsson í færslu á fésbókar-
síðu sinni en eldsvoðinn varð í íbúð
hans en eldsupptök munu hafa verið
í fjöltengi í stofunni. Ellert þakkar
jafnframt fólkinu sínu, fjölskyldu
og vinum sem hafa umvafið hann
með hlýju og kærleik og hjálpað að
komast yfir versta áfallið.
Miklar skemmdir á
íbúð eftir eld og reyk
Frá vettvangi brunaútkallsins. Íbúðin er mikið skemmd eftir brunann.
6 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM