Víkurfréttir - 04.05.2022, Page 10
„Ég er tilbúinn að starfa áfram sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar ef eftir því verður leitað. Þetta er
skemmtilegt og lifandi starf sem hefur verið mjög gefandi síðustu átta ár. Það hafa skipst á skin og
skúrir en framtíðin er mjög björt í mest vaxandi sveitarfélagi á Íslandi,“ segir Kjartan Már Kjartans-
son, bæjarstjóri Reykjanesbæjar en hann hefur verið bæjarstjóri í 8 ár.
Hvað einkenndi kjörtímabilið
2014-2018?
Kjartan segir að það hafa verið
áskorun og stórt verkefni sem beið
nýs meirihluta og hans sem bæjar-
stjóra árið 2014 en þá var fjárhags-
staða Reykjanesbæjar slæm.
„Endurskipulagning efnahags og
fjármála Reykjanesbæjar tók 90%
af tíma og orku stjórnenda m.a. við-
ræður við kröfuhafa og mikil sam-
skipti við eftirlitsnefnd með fjár-
málum sveitarfélaga. Það var góð
samstaða í bæjarstjórn um að taka
þyrfti á málum af mikilli festu. Það
skipti sköpum og var mikil samstaða
um flestar hagræðingaraðgerðir sem
ráðist var í hjá bæði meiri- og minni-
hluta.“
Bæjarbúar þurftu líka að taka þátt í
baráttunni með því að greiða hæstu
álögur og þá þurftu starfsmenn
einnig að taka þátt í hagræðing-
unni, er það ekki?
„Langflestir starfsmenn og íbúar
sýndu hagræðingaraðgerðum
skilning auk þess sem íbúar tóku á
sig auknar álögur í formi aukaálags
á útsvar og hærri fasteignaskatta.
Samtímis var mikill uppgangur í
flugumferð á Keflavíkurflugvelli,
flugfélagið WOW Air stækkaði
hratt og næg atvinna var fyrir alla
sem vildu og gátu unnið. Allt þetta
hjálpaði til við að rétta fjárhaginn af
með auknum tekjum.“
Síðla árs 2016 hóf kísilver United
Silicon starfsemi sem, eftir mikla
hrakfallasögu, endaði með stöðvun
starfseminnar um mitt ár 2017.
Kjartan segir að enginn áhugi sé hjá
Reykjanesbæ að þessi starfsemi fari
í gang á nýjan leik. Horfa þurfi til
nýrra leiða í Helguvík, m.a. með svo-
kölluðum grænum leiðum.
Á árunum 2014 til 2018 var mikil
íbúafjölgun, m.a. út af útþennslu
ferðaþjónustunnar með Keflavíkur-
flugvöll á svæðinu. Hvernig gekk að
takast á við þessa áskorun?
„Erlent vinnuafl streymdi til
landsins og íbúum í Reykjanesbæ
fjölgaði úr 14500 í tæplega 19000
eða um 30%. Fjölgunin kallaði á
margskonar uppbyggingu t.d. skóla
og leikskóla sem gerði okkur erfitt
fyrir því sveitarfélagið átti lítið sem
ekkert handbært fé, og frekari skuld-
setning með lántökum var óheimil.“
Þið voruð með Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga með gler-
augun á ykkur á sama tíma og þið
voruð í viðræðum við kröfuhafa.
Hvernig gekk að takast á við fjár-
hagsvandann og ná niður skuldum
bæjarins?
„Vinna við endurskipulagningu
efnahags gekk nokkuð vel á sama
tíma og skuldaviðmið samstæð-
unnar lækkaði úr 233% í 137%
á kjörtímabilinu 2014-2018. Við
þurftum að komast niður fyrir 150%
skuldaviðmið og það tókst.“
Hvað hefur einkennt kjörtímabilið
sem nú er að ljúka þ.e. 2018-2022?
„Í upphafi kjörtímabilsins, sum-
arið 2018, var útlitið bjart, mikið að
gera á flugvellinum, hátt atvinnu-
stig og allt á fullu. Íbúum hélt áfram
að fjölga. Um haustið fór að halla
undan fæti hjá WOW sem fækkaði
flugvélum og hóf að draga saman
seglin. Sú vegferð endaði með gjald-
þroti félagsins í mars 2019. Í kjölfarið
hófst erfiður tími fyrir marga íbúa
og fjölskyldur, atvinnuleysi jókst
hratt en íbúum hélt samt áfram að
fjölga með tilheyrandi áskorunum
fyrir allt og alla, ekki síst starfsfólk
félagsþjónustunnar.
Reykjanesbær fagnaði 25 ára af-
mæli árið 2019 með ýmsu móti.
Meðal annars kom forseti Íslands,
Guðni Th. Jóhannesson, í opinbera
heimsókn ásamt eiginkonu sinni
Elízu Reid. Það var ánægjulegt að
geta sýnt forsetahjónunum margt
áhugavert og skemmtilegt í ört
vaxandi sveitarfélagi þar sem fjórði
hver íbúi er af erlendum uppruna.
Það er ein af mörgum áskorunum
sem sveitarfélagið stendur frammi
fyrir og við brugðumst við með að
ráða sérstakan verkefnastjóra fjöl-
menningarmála sem sinnir mál-
efnum þessara íbúa. Við höfum t.d.
verið tvisvar sinnum með pólska
menningardaga í samvinnu við
pólska samfélagið í Reykjanesbæ.
Við þurfum áfram að tengja þennan
hluta íbúa við íslenska samfélagið en
samvinnan hefur gengið vel þó auð-
vitað megi alltaf gera betur.“
Kjartan Már Kjartansson er
tilbúinn að starfa áfram sem
bæjarstjóri Reykjansbæjar
verði eftir því leitað.
Endurskipulagning fjármála
Reykjanesbæjar tók 90% af
tíma og orku stjórnenda árin
2014 til 2018.
Horfir til betri vegar á flestum
sviðum en áfram áskoranir.
Framtíðin björt í ört
vaxandi bæjarfélagi
Bæjarstjórinn rýnir í símann með Helga Arnarssyni, fræðslustjóra í Duus Safnahúsum
en hann er einn af nánum samstarfsmönnum Kjartans á bæjarskrifstofunni.
Smelltu á myndskeiðið til að horfa á viðtal við
Kjartan í Suðurnesjamagasíni
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA
10 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM