Víkurfréttir - 04.05.2022, Page 11
Þökkum viðskiptavinum okkar til fjörutíu ára kærlega
fyrir viðskiptin og góð samskipti.
Óskum Nýsprautun, nýjum rekstraraðila hjólbarðaverk-
stæðisins til hamingju og góðs gengis í framtíðinni.
Björn Marteinsson og Þórður Ingimarsson.
Hvernig gekk að reka sveitarfélagið
í heimsfaraldri með tilheyrandi
áskorunum?
„Í febrúar 2020 skall á heimsfar-
aldur Covid 19 með afleiðingum sem
öllum eru kunnar, miklum takmörk-
unum og gríðarlegu atvinnuleysi m.a.
vegna mikils samdráttar á flugvell-
inum. Að undanförnu hefur ástandið
lagast mikið og atvinnuleysi sem fór
mest í 26% komið niður fyrir 10%
og fer hratt lækkandi. Samfélagið
er að komast í svipað horf og fyrir
faraldur með miklum vexti í ferða-
þjónustu og öðru. Við höfum rætt
mikið að það þurfi að fjölga tæki-
færunum í atvinnumálum og það er
stöðugt verið að skoða þau mál.
Ofan í heimsfaraldur urðu svo
miklar jarðhræringar á Reykjanesi
sem enduðu með því að eldgos hófst
í Fagradalsfjalli í mars 2021. Eld-
gosið reyndist síðan mikil auglýsing
fyrir Ísland og ferðamenn flykktust
til landsins til að skoða það. Vegna
áskorana vegna jarðhræringa í að-
draganda eldgoss settum við á lagg-
irnar Neyðarstjórn Reykjanesbæjar
og mikið púður fór í störf Almanna-
varna Suðurnesja en starfi bæjar-
stjóra fylgir formennska í báðum
nefndunum.“
Eftir mögur ár frá árunum 2014 til
2018 þar sem framkvæmdir voru
ekki miklar í bæjarfélaginu fóru
hjólin fóru að snúast á kjörtíma-
bilinu sem nú er að ljúka, er það
ekki?
„Já, framkvæmdir hófust við bygg-
ingu Stapaskóla í ársbyrjun 2019
og fyrsti áfangi skólans var tekinn
í notkun haustið 2020. Bygging 2.
áfanga, sem hýsa mun nýtt glæsi-
legt íþróttahús og sundlaug, er hafin
og bygging 3. og síðasta áfangans
fyrir leikskólastigið hefst á næsta
ári 2023. Þá hefur skólalóð Stapa-
skóla vakið mikla athygli og er nú
unnið að undirbúningi þess að upp-
færa allar skólalóðir grunnskólanna á
næstu árum. Við höfum fjármagnað
framkvæmdir við Stapaskóla úr
bæjarsjóði, án þess að taka lán en
heildarkostnaður mun nema um 5 til
6 milljörðum króna þegar yfir lýkur.
En við gerðum meira. Við opnuðum
nýjan gervigrasvöll á síðasta ári,
bættum inniaðstöðu golfklúbbsins
og nýtt borðtennisfélag fékk glæsi-
lega aðstöðu svo eitthvað sé nefnt.
Einnig var haldið áfram að byggja
upp gamla og nýja göngustíga og
útsvæði Sundmiðstöðvarinnar við
Sunnubraut fékk andlitslyftingu.
Annað sem hefur einkennt þetta
kjörtímabil er stefnumörkun í
mörgum málaflokkum. Meginstefna
sveitarfélagsins, sem ber yfirskriftina
„Í krafti fjölbreytileikans“, var sam-
þykkt í lok árs 2019 og er ætlað að
varða veginn til 2030. Auk þess
höfum við mótað stefnur í mörgum
öðrum málaflokkum svo sem um-
hverfis- og loftslagsmálum og nýrri
menntastefnu sem ber yfirskriftina
„Með opnum hug og gleði í hjarta“.
Kjartan segir að í lok síðasta árs,
2021, voru íbúar orðnir 20400 og
skuldaviðmiðið komið niður í 120%.
„Þetta hefur gengið vonum framar
og ástæða til bjartsýni.“
Hvað bíður nýrrar bæjarstjórnar?
„Fyrst og fremst skemmtilegir
tímar og spennandi verkefni. Starf-
semin á Keflavíkurflugvelli er óðum
að komast í samt horf og áhugi á
svæðinu fer hratt vaxandi og margt
í pípunum og atvinnu. Það eru fjöl-
mörg áhugaverð verkefni fram-
undan við þéttingu byggðar m.a. í
Grófinni, á nokkrum svæðum við
Hafnargötuna, á Vatnsnesi, í 2. og 3.
áfanga Hlíðahverfis og í Dalshverfi
III. Auk þess verður unnið að fjölgun
atvinnutækifæra t.d. í Njarðvíkur-
höfn, í fyrrum kerskálum Norðuráls
í Helguvík, úti á Reykjanesi og á nær-
svæðum flugvallarins í samvinnu
Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar,
ISAVIA og Kadeco. Við þurfum
að auka fjölbreytni í atvinnulífi og
þannig dreifa eggjunum í fleiri körfur.
Til þess að það sé hægt þarf íbúum
að fjölga enn meira og það verður
áframhaldandi áskorun að halda í við
þá fjölgun með uppbyggingu innviða
eins og leik- og grunnskóla en nú er
undirbúningur að byggingu þriggja
nýrra leikskóla hafinn m.a. í Hlíða-
hverfi og Dalshverfi III.
Þá mun ríkið byggja nýja heilsu-
gæslustöð í Innri Njarðvík og nýtt
hjúkrunarheimili á Nesvöllum í sam-
vinnu við Reykjanesbæ. Á komandi
kjörtímabili þarf einnig að innleiða
margvíslegar stefnur og verkefni
þeim tengdum m.a. grípa til mark-
vissra aðgerða í loftlagsmálum, inn-
leiða farsældarlögin svokölluðu og
menntastefnuna. Þannig að það
verður nóg að gera hjá nýrri bæjar-
stjórn og starfsfólki Reykjanebæjar,“
segir Kjartan Már Kjartansson,
bæjarstjóri.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Það var góð
samstaða í
bæjarstjórn um að
taka þyrfti á málum af mikilli
festu. Það skipti sköpum
og var mikil samstaða um
flestar hagræðingaraðgerðir
sem ráðist var í hjá bæði
meiri- og minnihluta...
Kjartan Már hefur reglulega hitt nýja
íbúa í hinni miklu fjölgun. Hér er hann
með 18. þúsundasta íbúanum. Nú eru
íbúarnir tæplega 21 þúsund.
Hjörtur Zakaríasson, þáverandi bæjarritari
fylgdi Kjartani fyrstu skrefin þegar hann
mætti fyrsta daginn í starfi bæjarstjóra.
Kjartan Már sat sinn 300. fund í bæjarstjórn í nóvember 2021. Guðbrandur
Einarsson, forseti bæjarstjórnar afhenti honum blóm í tilefni tímamótanna.
Kjartan Már og Jóna Guðjónsdóttir kona hans með forsetahjónunum
sem komu í opinbera heimsókn til Reykjanesbæjar 2019.
Kjartan Már mætir
í sundlaugina
flesta daga.
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 11