Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 13
„Upptökur á þriðju þáttarröð
Ófærðar áttu sér stað í miðjum
faraldri en með lagni og ótrúlegum
sveigjanleika og skipulagi gekk það
allt saman upp, við vorum hitamæld
á hverjum morgni og sett í okkar hólf
og allra smitvarna vel gætt, fórum
reglulega í próf og ef upp kom smit
var strax brugðist við því. Þess á
milli komu tilslakanir og svo aftur
hertar aðgerðir og ekki auðvelt verk
að vera framleiðandi við slíkar að-
stæður. Það segir sig sjálft að hringla
með tökuplan fram og til baka vegna
óviðráðanlegra aðstæðna er meira
en að segja það, að flytja heilt stóð
af mótorhjólum milli landshluta, að
fljúga leikurum og starfsfólki hingað
og þangað og koma þeim öllum
fyrir á hótelum, að panta mat fyrir
90 manns, að afpanta mat fyrir 90
manns, að panta gistingu og afpanta
svo daginn eftir vegna sóttkvíar og
einangrunar. En á einhvern ótrú-
legan hátt gekk þetta allt upp að
lokum og úr varð mikið ævintýri.
Ófærð er fyrir löngu orðin fastur
punktur í íslenskri þáttagerð og ekki
að ástæðulausu og von á seríunni á
Netflix innan skamms.
Annars fann ég satt best að segja
minna fyrir þessu en margir. Ég
starfa einnig mikið við talsetningu
og lestur hljóðbóka og það er ein-
faldara og auðveldara í sniðum. Hjá
Storytel er ég einn og innilokaður í
litlu hljóðveri og þarf ekki að hitta
sálu frekar en ég vil, er nettengdur
við tæknimann sem situr með heyr-
artólin sín í stúdíoíbúð í Berlín eða í
bílskúr raðhúss í Kópavogi.
Sviðslistafólk landsins fann þó vel
fyrir þessum lokunum og fjöldatak-
mörkunum, meira en margar aðrar
stéttir því eins og við vitum var öllu
skellt í lás í langan tíma með tilheyr-
andi röskunum og tekjutapi.“
Rannsóknarlöggan í Danaveldi
Hvernig er svo staðan hjá þér á
næstunni, hvað er framundan?
„Nú hef ég nýhafið lestur á
bókum danska metsöluhöfundarins
Jussi Adler-Olsen um Deild Q fyrir
Storytel og Forlagið. Þetta eru átta
bækur talsins, hver annarri betri.
Með hækkandi sól mun ég því
loka mig af í myrkvuðum upptöku-
klefa og sökkva mér dýpra og dýpra
ofan í harðan heim rannsóknarlög-
reglunnar í Kaupmannahöfn,“ sagði
Davíð.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Bak við tjöldin. Rvk studios Gufunesi.
Tökur á Ófærð
í Sandvík og á Siglufirði.
Guðbjörg Huldís, gervahönnuður,
græjar Davíð í Ófærð.
Berdreymi,
heimsfrumsyning,
rauði dregilinn
í Berlin.
Leikhúsferð
Félags eldri borgara verður farin
laugardaginn 7. maí 2022.
Farið verður í Borgarleikhúsið að sjá
„9 líf Bubba Morthens“
Farið frá Nesvöllum kl. 18.30.
Leikhúsnefnd
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
KEFLAVÍKURSÓKNAR OG
KIRKJUGARÐA KEFLAVÍKUR
verður haldinn þriðjudaginn 10. maí klukkan 17:30 í Kirkjulundi,
safnaðarheimili Keflavíkurkirkju.
Dagskrá fundarins: Venjulega aðalfundarstörf .
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju
og Kirkjugarðanefnd Kirkjugarða Keflavíkur
Skólaforðun var til umræðu á
síðasta fundi fræðsluráðs Reykja-
nesbæjar þar sem Haraldur Axel
Einarsson grunnskólafulltrúi gerði
grein fyrir málinu. Lögð var fram
samantekt grunnskólafulltrúa og
yfirsálfræðings skólaþjónustu
vegna fyrirspurnar frá kjörnum
fulltrúa í fræðsluráði um umfang og
ástæður skólaforðunar nemenda í
grunnskólum.
Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir,
fulltrúi S-lista, lagði fram eftirfarandi
bókun:
„Í aðalnámsskrá grunnskóla
er fjallað um jöfn tækifæri barna
til náms. Eins og Umboðsmaður
barna benti á árið 2018 og með til-
liti til Barnasáttmála og skólaskyldu
innan aðildarríkjanna, er mikilvægt
að skoða hvað við getum gert til
að halda börnum inni í skólasam-
félaginu.
Með spurningum mínum var
markmiðið að skoða hvort frekar
væri um að ræða börn með ein-
hverfu, geðrænan vanda eða aðrar
raskanir sem mæti ekki í skólann
svo mánuðum skipti og geti þá verið
upphaf að enn stærri vanda.
Það er von mín að þetta sé aðeins
upphaf á því að skólastjórnendur
hafi rýnt hópinn sinn og að fræðslu-
svið taki þessa vinnu áfram. Mikil-
vægt er að við notum tæknina og
það sem þarf til að hvetja börn til
skólasóknar.“
Fræðsluráð Reykjanesbæjar
hvetur til þess að lögð verði enn
meiri áhersla á þverfaglegt samstarf
allra sem koma að menntun og vel-
ferð barna til að sporna við skóla-
forðun nemenda í grunnskólum.
Ennfremur er lagt til að við fjár-
hagsáætlunargerð fyrir árið 2023
verði gert ráð fyrir stöðugildum
skólafélagsráðgjafa.
Lögð verði enn meiri áhersla
á þverfaglegt samstarf allra
Starfsmaður á velferðarsviði Suð-
urnesjabæjar er grunaður um að
hafa dregið að sér að minnsta kosti
eina og hálfa milljón frá tveimur
þroskaskertum bræðrum sem búa
í sjálfstæðu búsetuúrræði á vegum
bæjarins. Málið hefur verið kært
til lögreglu. Fréttablaðið greinir
frá þessu.
Bjarney Annelsdóttir, yfirlög-
regluþjónn á Suðurnesjum, stað-
festir í samtali við Fréttablaðið að
lögreglan sé að rannsaka málið og
miðar rannsókninni ágætlega fram.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri Suð-
urnesjabæjar, segir að bærinn hafi
brugðist við um leið og málið kom
upp. Starfsmanninum hefur verið
sagt upp störfum.
Kærður fyrir fjárdrátt í
sjálfstæðu búsetuúrræði
víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 13