Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 14
Katrín Freyja Ólafsdóttir er nítján ára og kemur frá Njarðvík. Hún hefur gaman af
líkamsrækt og þjálfar frjálsar íþróttir hjá íþróttafélaginu Nes. Katrín stefnir á að fara
í lýðháskóla í Danmörku eftir útskrift og langar að verða innanhússarkitekt. Katrín
Freyja er FS-ingur vikunnar.
Á hvaða braut ertu? Ég er á
fjölgreinabraut.
Hver er helsti kosturinn við
FS? Helsti kosturinn við FS
er allt skemmtilega fólkið
og félagslífið.
Hvaða FS-ingur er líklegur
til að verða frægur og
hvers vegna? Róbert Andri
veður frægur leikari, hann
var geggjaður í leikritinu
Grease.
Skemmtilegasta sagan úr
FS: Þegar nemendafélagið
fór saman í bústaðarferð og
fórum í vatnsblöðrustríð.
Hver er fyndnastur í
skólanum Svava Ósk er
fyndnust.
Hver eru áhugamálin þín?
Mín áhugamál eru líkams-
rækt og að ferðast.
Hvað hræðistu mest? Ég
hræðist mest að missa ein-
hvern nákominn.
Hvert er uppáhaldslagið
þitt? Þau eru svo mörg en
hlusta mikið á Aron Can.
Hver er þinn helsti kostur?
Minn helsti kostur er að ég
er jákvæð og réttsýn.
Hver er þinn helsti galli?
Að vera sein er minn helsti
galli.
Hvaða forrit eru mest
notuð í símanum þínum
Ég nota TikTok mest.
Hvaða eiginleiki finnst
þér bestur í fari fólks?
Ég myndi segja jákvæðni
og góður húmor.
Hver er stefnan fyrir fram-
tíðina? Ég stefni á að fara í
lýðháskóla í Danmörku eftir
útskrift en langar að verða
innanhússarkitekt og einka-
þjálfari í framtíðinni.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum
þér í einu orði hvaða orð
væri það? Hress.
FS-ingur vikunnar: Katrín Freyja
Ung(m
enni) vikunnar: Óskar Kristinn
Stefnir á
að fara í
lýðháskóla
Þúsundir
fylgjenda
á TikTok
Óskar Kristinn Vignisson, oftast kallaður Kiddi,
er fimmtán ára og kemur frá Keflavík. Hann hefur
gaman af fótbolta og líkamsrækt. Í frítíma hans býr
hann til TikTok-myndbönd en Kiddi er með nokkur
þúsund fylgjendur á forritinu. Óskar Kristinn er ung-
menni vikunnar.
Í hvaða bekk ertu?
Ég er í 10. bekk.
Í hvaða skóla ertu?
Heiðarskóla.
Hvað gerir þú utan skóla?
Fer á fótboltaæfingar,
ræktina eftir skóla en
þegar ég er heima spila ég
tölvuleiki og geri TikTok
video.
Hvert er skemmtilegasta
fagið? Íþróttir og árshá-
tíðar leikritið en skemmti-
legasta bóklega fagið er
enska.
Hver í skólanum þínum
er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna?
Persónulega ég, vegna
þess að ég er með nokkur
þúsund TikTok fylgjendur
frá mörgum löndum. Ef
ég ætti að velja annan en
mig þá væri það örugglega
Sóley Halldórsdóttir því
hún er með marga fylgj-
endur líka.
Skemmtilegasta saga
úr skólanum: Það var
skemmtilegast og fyndnast
á sýningu á leikritinu þegar
eiginlega allt klúðraðist.
Þrátt fyrir það skemmtum
við okkur vel.
Hver er fyndnastur í skól-
anum? Það er Hildir Hrafn,
þó djókin hans séu léleg þá
er hann alltaf fyndinn!
Hver eru áhugamálin þín?
Fótbolti, TikTok og fara
út með strákunum, ekki
spurning.
Hvað hræðistu mest? Ég
hræðist mest hunda og
að sjá ekki botninn í vatni
og sjó.
Hvert er uppáhaldslagið
þitt? Starlight - Dave.
Hver er þinn helsti kostur?
Þegar það kemur að fót-
boltanum hleyp ég hratt.
Annars finnst mér ég vera
skemmtilegur.
Hver er þinn helsti galli?
100% vera óþolinmóður,
sérstaklega í tölvunni.
Hvaða forrit eru mest
notuð í símanum
þínum? Mest notuðu
forritin eru TikTok en ég
nota Snapchat og Insta
ansi mikið.
Hvaða eiginleiki finnst þér
bestur í fari fólks? Þegar
fólk er ekki feimið og þegar
ég get talað lengi við fólk
án þess að leiðast.
Hvað langar þig að gera
eftir grunnskóla? Klára
framhaldsskóla og verða
fasteignasali.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum
þér í einu orði hvaða orð
væri það? Fyndinn.
KENNARAR UM ALDAMÓTIN 1900
Í tveimur síðustu þáttum var
sagt frá 5 fyrstu kennurunum við
Thorkilliibarnaskólann í Vatns-
leysstrandarhreppi (í daglegu
tali nefndur Suðurkotsskóli) og
hvað um þá varð er þeir hurfu
til annarra starfa. Þeir stoppuðu
stutt við skólann, kenndu aðeins
1 eða 2 vetur hver. Hér segir frá
þeim næstu, sem flestir stoppuðu
lengur við.
Sjötti kenn-
arinn var Skag-
firðingurinn
Pétur Pétursson
(f.1842), kenndi
hér í 6 ár, 1877-
’83. Hann hafði
stundað verslun-
arnám í Kaup-
mannahöfn og
lokið prófi 1867.
Náði hann vel til bæði nemenda og
foreldra, náði mjög góðum árangri,
að sögn séra Stefáns Thorarenssen
í skýrslu um skólann. Pétur varð
síðar bókhaldari, lögregluþjónn
og loks bæjargjaldkeri í Reykjavík
1891 - 1907. Pétur var faðir Helga
Pjeturs, náttúrufræðings og heim-
spekings (f.1872), en eiginkona
Pégurs og móðir Helga var Anna
Sigríður Vigfúsdóttir Thorarensen,
píanókennari og frænka sr. Stefáns
Thorarensen. Helgi lauk doktors-
prófi í jarðfræði 1905, fyrstur Ís-
lendinga og varð landsfrægur, setti
m.a. fram sérstakar kenningar um
framhaldslíf á öðrum hnöttum.
Steingrímur Scheving (f.1859)
var kennari 1883-’84. Hann var
prestlærður og vel látinn gáfu-
maður. Faðir hans, Sveinbjörn
Hallgrímsson, var aðstoðarprestur
á Kálfatjörn um 1850 og bjó þá
í Halakoti, en varð síðar fyrsti
ritstjóri Þjóðólfs og Ingólfs, og
þjóðfundarmaður, og að endingu
prestur í Eyjafirði. Steingrímur
varð um tíma geðbilaður, að sögn
Ágústs í Halakoti sem var nemandi
í skólanum á þessum árum. Hann
flutti síðar til Ameríku.
Guðmundur Þorsteinsson
1884-’86, ”ættaður frá Haugi í Flóa,
prýðilegur kennari og gáfumaður.
Hann fluttist síðan til Ameríku
1885, bjó þar á Gimli í Nýja Íslandi
og stundað lækningar, að sögn
Ágústs.
Guðni Felixson mun hafa kennt
við skólann 1884-’85 og Snæbjörn
Jónsson 1885-’86, en finnast ekki
heimildir um þá.
Sigurjón Jónsson var Rang-
æingur, f.1848.
Var hann
kennari við
Suðurkots-
skóla 1886-’98,
samfellt í 12 ár,
svo lengi sem
hann lifði. Hann
var að auki
trésmiður og
sóknarnefndar-
maður og bjó í
Minni-Vogum. Hann átti ríkan þátt
í smíði núverandi kirkju að Kálfa-
tjörn. Hann var einn af stofnendum
stúkunnar Díönu 1896.
Árni Theódór
Pétursson
var kennari
1889-’91, aftur
1897-’98, og
skólastjóri 1910-
’20 og nokkur
ár oddviti.
Hann fæddist í
Nýjabæ í Vogum
1871, bjó um tíma í Hvammi ásamt
konu sinni, Önnu Daníelsdsóttur
frá Nýlendu, en reif Hvamm og
flutti að Hábæ 1921. Það ár hætti
hann bæði sem oddviti og kennari,
bjó í Hábæ í 5 ár og stundaði sjó,
skildi þá við konuna og flutti til
Hafnarfjarðar.
Árni var heimiliskennari að
Kálfatjörn 1885-´89 og hélt einka-
skóla í Vogum 1891-’97. Hann var
kennari í Miðneshreppi 1898-1908
og í Njarðvík 1908-´10. Hann hafði
ekki kennarapróf, en góð meðmæli
frá fyrrgreindum stöðum, þegar
hann var ráðinn hér skólastjóri
/ kennari 1910. Hann gengdi því
starfi í áratug og segir frá því siðar.
Hann sagði til börnum og ungl-
ingum flesta vetur til 1951.
Jón Gestur Breiðfjörð kenndi
1898-1903.
Hann var
fæddur 1875,
sonur Jóns
J. Breiðfjörð
hreppstjóra og
útgerðarmanns
á Efri-Brunna-
stöðum. Jón
Gestur lauk
námi við Lærða skólann í Reykjavík
1893 og kenndi síðan í hreppnum,
fyrst í Norðurkoti, svo í Suðurkoti,
þar til hann lést 27. apríl 1903,
öllum harmdauði. Jón Gestur Bene-
diktsson í Suðurkoti, Vogum, hét
eftir honum.
Guðmundur Guðmundsson
í Landakoti, sonur Guðmundar
Brandssonar alþingis- og þjóð-
fundarmanns, var organisti í Kálfa-
tjörn í 40 ár og kenndi á orgel og
söng við skólann frá upphafi. Hann
stofnaði stúkuna Díönu, ásamt
Lárusi hómópata og fleirum, og var
laginn við lækningar.
Þegar séra Stefán Thorarensen
lét af prestskap og skólanefndar-
formennsku sumarið 1886, tók
við hvoru tveggja séra Árni Þor-
steinsson (f.1851). Hann var for-
maður skólanefndar til 1910 og
prestur til dánardags 1919. Hann
tók við því amstri Stefáns að afla
styrkja, skrifa skýrslur og ráða
kennara, í samráði við oddvita. Auk
þess kenndi Árni söng og leikfimi
og í nokkur ár almenna kennslu í
Norðurkotsskóla. Hann var síðasti
presturinn sem
bjó á Kálfatjörn.
Lengi vel var
enginn titlaður
skólastjóri við
skólann, en frá
1884 eru oftast
tveir kennarar
að störfum
samtímis, enda
er þá farið að
kenna á tveimur stöðum, í Þóru-
staða- og Kálfatjarnarhverfi, auk
Suðurkots, og síðar á Vatnsleysu.
Segir frá því í næsta þætti.
Heimildir: Greinar í Faxa 1982
og 1990 ; bók Guðm.Björgvin
bls.412 ; bók Ágústs í Halakoti; alt-
hingi.is ; Kennaratal á Íslandi, o.fl.
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
18. ÞÁTTUR
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelm
a.h.h
ermanns
dott
ir@gmail.co
m
14 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM