Víkurfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 20
Alfreð Elías Jóhannsson,
þjálfari karlaliðs Grindavíkur,
segist vera brattur fyrir
átökin í Lengjudeildinni
í sumar. Alfreð tók við
Grindavík síðasta haust
en hann er sjálfur uppalinn
Grindvíkingur, lék um 40 leiki
í efstu deild með félaginu og
skoraði fimm mörk.
Vel heppnuð vorferð
Suðurnesjadeildar FKA
Sextíu konur í Suðurnesjadeild
Félags kvenna í atvinnulífinu
Atvinnurekendadeild Félags kvenna
í atvinnulífinu (AFKA) fór í sína
árlegu vorferð á dögunum sem
heppnaðist mjög vel í alla staði og
var áfangastaðurinn Suðurnesin
þetta árið. „Það er ekkert annað
en magnað að fylgjast með lands-
byggðadeildum FKA springa út.
Þessi vegferð kvenna á Suðurnesjum
er einstök og virkilega gaman að fá
að taka þátt í að skapa og endur-
skapa og ekki síst kortleggja tæki-
færin í deild sem telur hátt í sextíu
konur og stækkar hratt,“ segir Guðný
Birna Guðmundsdóttir formaður
FKA Suðurnes, fyrsti kvenformaður
stjórnar HS Veitna, bæjarfulltrúi
í Reykjanesbæ og hjúkrunarfræð-
ingur.
Nýjasta deild FKA er
á Suðurnesjum
Nýjasta deild FKA er á Suðurnesjum
og þar er lögð áhersla á nýsköpun
og eflingu atvinnutækifæra kvenna
á svæðinu með jákvæðni, seiglu
og útsjónarsemi. „Með því að efla
þátt kvenna í samfélaginu, eflum
við okkur öll,“ segir Guðný en með
henni er Fida Abu Libdeh varafor-
maður FKA Suðurnes í forsvari með
félagsdeildina.
Styrkleikar í fjölbreytileikanum
Dagskráin var þétt sem náði yfir
tvo daga og gisti hópurinn á Hótel
Keflavík. Viðburðurinn er hugsaður
sem tengslamyndun og vettvangur
til að styðja við kvenleiðtoga í að
sækja fram og auka þátttöku og
sýnileika í atvinnulífinu. Farið var
í heimsóknir í fjölmörg fyrirtæki á
Suðurnesjum, m.a. í Grindavík og
Reykjanesbæ þar sem hópurinn fékk
kynningu á starfsemi þeirra. Nokkrir
stjórnendur og sérfræðingar hjá
sveitarfélaginu Reykjanesbæ tóku á
móti hópnum í bíósal Duus húsa í lok
dags á laugardeginum og kynntu sín
störf og helstu verkefni.
„Við þurfum að nýta okkur styrk-
leikana sem felast í fjölbreytileika
samfélagsins á Suðurnesjum með
því að styðja konur í að sækja fram
og sameina þær til aukins sýnileika
og þátttöku,“ segir Guðný.
Atvinnusköpun og tækifærin
„Það var frábært að fá félagskonur
af landinu í Reykjanesbæ og deildin
hér á Suðurnesjum þakkar AFKA
konum kærlega fyrir heimsóknina
og frábæra ferð,“ segir Guðný Birna.
Félagskonur FKA heimsóttu konur,
kynntust og áttu góða daga saman
og skemmtilegt kvöld. Það voru þær
Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir
verkefnastjóri gæðamála, Ásdís
Ragna Einarsdóttir verkefnastjóri
lýðheilsumála, Ásta Kristín Guð-
mundsdóttir, teymisstjóri alþjóð-
legrar verndar og samræmdrar mót-
töku flóttafólks, Eydís Rós Ármanns-
dóttir verkefnastjóri Velferðarnets
– Sterkrar framlínu, Halldóra G. Jóns-
dóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra,
Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir
verkefnastjóri fjölmenningarmála
og Þórdís Ósk Helgadóttir forstöðu-
maður Súlunnar verkefnastofu sem
allar eru félagskonur í FKA. Félags-
konur FKA voru að sögn Guðnýjar
heillaðar af útgeislun hópsins, þeirri
sýn sem kynnt var og þeirri heild-
rænu nálgun þar sem unnið með
margbreytileikann.
Fida Abu Libdeh, framkvæmdastjóri
GeoSilica og varaformaður FKA Suðurnes,
og Guðný Birna Guðmundsdóttir,
formaður FKA Suðurnes.
Það voru þær Aðalheiður Júlírós, Ásdís Ragna, Ásta Kristín, Eydís Rós,
Halldóra, Hilma og Þórdís Ósk, sem allar eru félagskonur í FKA, sem kynntu
heilsueflandi og metnaðarfulla heildarsýn á verkefni í Reykjanesbæ,
sem höndlar með margbreytileikann og ferskar nálganir.
Hópurinn heimsótti fjölmörg fyrirtæki og félagskonur m.a.
Paloma, Vigt, Bryggjan, VP Verkstæði, Benchmark Genetics,
Torfæru og Rallycross útgerðin, Orkustöðina, HS veitur, Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum MSS, Trendport og Duus hús.
Betra lið í hverri viku
20 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM
sport