Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 04.05.2022, Blaðsíða 21
Alfreð hóf þjálfaraferilinn með GG árið 2006 og hefur þjálfað lið Ægis í Þorlákshöfn, ÍBV, BÍ/Bolungarvík og síðustu fimm ár var hann með kvennalið Selfoss sem hann gerði meðal annars að bikarmeisturum árið 2019. Nú má segja að Alfreð sé kominn heim en hann gerði þriggja ára samning við Grindavík síðasta haust og segir undirbúningstímabilið hafa gengið mjög vel. „Ég er bara brattur fyrir tímabilið, þetta er það sem við erum búnir að vera að æfa fyrir í allan vetur og erum fullir eftirvæntingar fyrir fyrsta leik,“ sagði Alfreð þegar Víkur- fréttir heyrðu í honum en keppni í Lengjudeildinni hefst nú í vikunni. „Liðið er að slípast til og verið að fínstilla. Við erum búnir að vera að prófa alls kyns útfærslur og leikmenn í vetur en nú held ég að þetta sé að smella saman.“ Hver eru markmið sumarsins hjá ykkur Grindvíkingum? „Markmiðið er að verða betra lið í hverri viku, bæta okkur sem leik- menn og lið. Þú færð mig ekki til að segja hvort við ætlum upp eða niður. Við munum einblína á okkur, leggja okkur fram við að bæta eigin leik, gera okkar besta og svo teljum við upp úr pokanum í haust.“ Vilja endurspegla bæinn sinn Þið hljótið nú að stefna á sæti í efstu deild, er Grindavík ekki lið sem á heima þar? „Jú, að sjálfsögðu finnst okkur að Grindavík sé lið sem eigi heima í efstu deild og við munum gera okkar besta til að tryggja Grindavík sæti þar. Við viljum endurspegla bæjar- félagið okkar og sýna vinnusemi, ein- beitingu og dugnað.“ Alfreð segir að stemmningin í bænum sé mjög jákvæð og hann skynji mikinn stuðning. „Við héldum stuðningsmannakvöld um daginn, vorum með sameiginlegt fyrir karla-, kvennaliðið og GG. Það er í fyrsta sinn í langan tíma sem við höldum þetta saman og það heppnaðist mjög vel, var vel sótt og fólk skemmti sér vel saman. Ég hef ekki fundið fyrir neinu nema góðvild og hlýju frá bæjar- búum sem hlakka til tímabilsins eins og við. Svo þegar við byrjum að vinna leikina þá fjölgar í fallegu stúkunni okkar.“ Nú mætið þið Aftureldingu á úti- velli í fyrsta leik. Hvernig leggst sá leikur í þig? „Bara vel, við erum fullir tilhlökk- unar að byrja – það verður gaman að sækja þrjú stig í Mosfellsbæ,“ segir Alfreð að lokum. Betra lið í hverri viku Við viljum endur- spegla bæjarfélagið okkar og sýna vinnusemi, einbeitingu og dugnað [...] Svo þegar við byrjum að vinna leikina þá fjölgar í fallegu stúkunni okkar ... Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Nýliðakynning hjá Golfklúbbi Suðurnesja VILTU KYNNA ÞÉR GOLF OG FÁ AÐ PRÓFA? Þann 9. maí hefjast nýliðakynningar hjá Golfklúbbi Suðurnesja. Sigurpáll Geir Sveinsson, PGA golfkennari og íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja, ásamt leiðbeinanda, mun kynna golfíþróttina fyrir áhugasömum ásamt því að fara yfir grunn atriði golfsveiflunnar ásamt púttum og vippum. Námskeiðin miða að þeim sem langar að prófa golf eða eru að skríða sín fyrstu skref í íþróttinni. Miðað er við nýliða og þá sem hafa ekki náð 35 í forgjöf. Námskeið 1. 9. og 10. maí kl. 19.30–20.30. Námskeið 2. 9. og 10. maí kl. 20.30–21.30. Námskeið 3. 16. og 17. maí kl. 19.30–20.30. Námskeið 4. 16. og 17. maí kl. 20.30–21.30. Námskeið 5. 23. og 24. maí kl. 19.30–20.30. Námskeið 6. 23. og 24. maí kl. 20.30–21.30. Námskeiðið kostar aðeins 7.000 kr. og eru kúlur og áhöld innifalin. Fyrir þá sem síðan ganga í golfklúbbinn fæst gjaldið endurgreitt. Skráning er hafin á www.sportabler.com/shop/gs Takmarkað sætaframboð! Markaskorarinn Sigurður Bjartur Hallsson skipti yfir í KR eftir síðasta tímabil og Alfreð segir að eðlilega muni Grindvíkingar sakna krafta hans. „Hann skoraði sautján mörk í fyrra, næstum helming allra marka liðsins – en nú þurfa aðrir leikmenn að stíga upp og taka boltann. Við þurfum að dreifa mörkunum á fleiri – ekki treysta á einhvern einn.“ GOLFSKÓDAGAR SÉRFRÆÐINGUR VERÐUR Á STAÐNUM FIMMTUDAGINN 5. MAÍ Í SKÓBÚÐINNI HAFNARGÖTU 29 % AFSLÁTTUR AF ÖLLUM GOLFSKÓM20 5.-7. MAÍ Alfreð ásamt þjálfarateyminu á þessari leiktíð. F.v: Maciej Majewski, Milan Stefán Jankovic, Alfreð Elías Jóhannsson, Vladimir Vuckovic og Óttar Guðlaugsson. víkurFrÉttir á SuðurNESJuM // 21

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.