Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.06.2022, Qupperneq 4

Víkurfréttir - 09.06.2022, Qupperneq 4
Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is TJÓNASKOÐUN BÍLAMÁLUN OG RÉTTINGAR BÍLRÚÐUSKIPTI/VIÐGERÐIR INNSTILLING Á ÖRYGGISBÚNAÐI MYNDAVÉL OG FJARLÆGÐARRADAR Bolafæti 3 – Njarðvík Sími 421 4117 bilbot@simnet.is Sílið hefur snúið aftur eftir að makríllinn hætti að koma Júní mættur á svæðið, þó ekki tog- arinn júní heldur þessi mánuður. Það voru reyndar gerðir út togarar sem hétu þessu nafni, Júni GK, og voru þeir frá Hafnarfirði. Fyrst síðu- togari og síðan skuttogari. Allavega þá byrjar þessi mánuður mjög rólega fyrir útgerð frá Suður- nesjunum. Sturla GK kom með 50 tonn til Grindavíkur. Enginn neta- bátur hefur landað og dragnótabát- arnir eru enn á veiðum. Nesfisk- sbátarnir munu róa til 9. júní og fara síðan í stopp í sjö vikur. Reyndar fóru bæði Siggi Bjarna GK og Sigurfari GK vestur utan við Patreksfjörð og þegar þessi pistill er skrifaður þá voru þeir ennþá á veiðum þar og því ekki kominn afli. Reyndar er þetta þriðji túrinn hjá Sigurfara GK þarna vestur, því hann fór í túr snemma í júní og náði þá tuttugu tonnum en þurfti að koma fyrr í land því það varð smá bilun í vírastýri á spili bátsins. Það er eiginlega helst í gangi frá Suðurnesjunum utan við dragnóta- bátanna eru handfærabátarnir, en þeir eru nokkuð margir á veiðum og skiptast þeir má segja í tvo flokka, strandveiðibátana og bátana sem eru að veiða ufsann. Ragnar Alfreðs GK og Addi Afi GK komu báðir með svo til jafn mikinn afla í land, Addi Afi GK kom með 5621 kg og af því var ufsi 5,5 tonn, Ragnar Alfreðs GK kom með 5679 kr í land og af því var ufsi 3,3 tonn. Auk þeirra var Hrappur GK með 3,5 tonn í tveimur róðrum og af því ufsi 2,1 tonn í Grindavík, Stakasteinn GK 2,3 tonn í tveimur og af því ufsi eitt tonn, Snorri GK 2 tonn í einum og af því var ufsi 1,9 tonn, Snorri GK hét áður Brynjar KE, og Von ÓF 1,9 tonn í einum og af því ufsi 1,8 tonn. Mikið líf er í sjónum hér fyrir utan og eftir að makrílinn hætti að koma þá hefur sílið komið aftur og með því hefur þorskurinn verið að eltast með. Tala sjómenn um það að nú sé mjög stór og mikill þorskur á veiðast á handfærin og það stefnir því í að sumarið verði gott hjá handfærabátunum frá Sandgerði og Grindavík. Annars er ég staddur núna í Grundarfirði og þar hefur verið mikill uppgangur í útgerð og sem og hafnarstarfsemi. Margir togarar frá Reykjavík og 29 metra togararnir frá Grindavík hafa landað þar og er aflanum þá ekið suður til vinnslu. Reyndar er bátur sem heitir Ísey EA núna gerður út frá Sandgerði og sá bátur á ansi sterka tengingu við Grundarfjörð. Ísey EA var smíðaður á Seyðisfirði árið 1976 og hét fyrst Langanes ÞH, hann var seldur 1978 til Grundarfjarðar og fékk þar nafnið Farsæll SH 30. Í Grundarfirði var báturinn í átján ár, eða til 1996, þegar að hann var seldur til Stykkis- hólms og þaðan til Ólafsvíkur. Stakkavík ehf. í Grindavík kaupir bátinn árið 2007 og fékk hann þá nafnið Gulltoppur GK 24, Stakkavík gerði bátinn út til 2018 og þá á dragnót og línu með bölum. Síðan 2019 hefur báturinn heitið Ísey EA (var reyndar fyrst Ísey ÁR) og skip- stjórinn á bátnum er Grétar Þor- geirsson sem var í 25 ár skipstjóri á bátnum Farsæli GK frá Grindavík sem faðir hans átti. Það má geta þess að árið 2021 fiskaði Ísey EA um 1.143 tonn yfir árið og var þetta mesti ársafli sem að Grétar hafði náð en núna í ár hóf báturinn ekki veiðar fyrr en í enda apríl. Áfram er hægt að finna teng- ingu því núverandi Farsæll SH er 29 metra togari sem var áður í Grindavík og hét þar Áskell EA – og reyndar er 29 metra togari gerður út frá Grundarfriði sem heitir Sigurborg SH en sá togari hét áður Vörður EA. Vörður EA og Áskell EA voru báðir í eigu Gjögurs en viku fyrir nýrri 29 metra togurum sem heita Vörður ÞH og Áskell ÞH. aFlaFrÉttir á SuÐurnESjum Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Tvenn hjón úr Sandgerði hafa keypt húsnæði og rekstur veitinga- hússins Vitans í Sandgerði af hjónunum Stefáni Sigurðssyni og Brynhildi Kristjánsdóttur. Þau höfðu rekið Vitann í nær fjóra áratugi, hófu rekstur 1982 en Vitinn hefur verið lokaður síðustu tvö ár vegna heimsfaraldurs Covid-19. Stefán og Brynhildur hafa verið síðustu mánuði á Kanaríeyjum og notið heitara loftlags. Stefán hefur þó ekki alvega sagt skilið við potta og pönnur, hann hefur m.a. verið að kokka á hinum kunna Klörubar. Í samtali við Víkurfréttir segist Bryn- hildur eiga eftir að sakna Vitans. Stefán sagðist ekki sammála henni þar og ætlaði að njóta þess að vera sestur í helgan stein. Nýir eigendur Vitans eru tvenn hjón úr Sandgerði. Arna Björk Unn- steinsdóttir og Símon Haukur Guð- mundsson annarsvegar og Bergljót Bára og Elfar Logason hinsvegar. Í samtali við Víkurfréttir sögðust þau ætla að glæða Vitann lífi að nýju. „Við munum nýta gamalt og gott en einnig setja okkar brag á staðinn. Hér er góður grunnur og gott að byggja ofan á hann,“ sögðu þau aðspurð um hvort ráðist yrði í miklar breytingar. Vitinn var með matseðil í há- degi og á kvöldin þegar þau Stefán og Brynhildur ráku staðinn. Nýir eigendur ætla að hafa opið allan daginn alla daga. Vitinn hafði skapað sér sérstöðu með því að bjóða upp á grjótkrabba sem alinn var lifandi í kerjum við veitingahúsið. Grjót- krabbinn mun aftur rata á matseðil staðarins. Frá því Vitinn lokaði fyrir tveimur árum hefur ekki verið rekið veit- ingahús í Sandgerði og segjast nýir eigendur vera að auka þjónustu við bæjarbúa. Þá er einnig markmið nýrra eigenda að sækja á ferða- mannamarkaðinn og fá ferðamenn, bæði íslenska sem erlenda, til að stoppa í Sandgerði og gera vel við sig í mat. Formleg opnun Vitans hefur ekki verið tímasett en hún verður bráð- lega og vonandi fyrir haustið. Nýir eigendur taka við rekstri Vitans Brynhildur Kristjánsdóttir og Stefán Sigurðsson á Vitanum á upphafsárum Vitans. Mynd úr safni Víkurfrétta - Grjótkrabbinn verður aftur í boði F.v.: Elfar Logason, Bergljót Bára, Stefán Sigurðsson, Brynhildur Kristjánsdóttir, Símon Haukur Guðmundsson og Arna Björk Unnsteinsdóttir. Á myndinni að neðan má sjá krabba- og skelfiskveislu í anda Vitans. vf is 4 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.