Víkurfréttir - 09.06.2022, Page 14
SAFNSKIPIÐ ÓÐINN TIL GRINDAVÍKUR Á SJÓMANNADAGSHELGINNI
Gamla varðskipið og nú safn-
skipið Óðinn verður til sýnis
á sjómannadagshelginni í
Grindavík. Ákveðið er að Óðni
verði siglt laugardaginn 11.
júní til Grindavíkur og komið
til hafnar þar um hádegisbil.
Forseta Íslands, Guðna Th. Jó-
hannessyni, hefur verið boðið
með í siglinginguna til Grinda-
víkur og hefur hann boðað
komu sína. Í Grindavík verður athöfn við komu Óðins í höfn. Ávarp forseta Íslands. Ávarp
Gunnars Tómassonar. Forstjóri japönsku skipasmíðastöðvarinnar, sem gaf Óðni nýtt formastur,
flytur ávarp og mastrið verður afhjúpað. Þá flytur Guðmundur Hallvarðsson þakkarávarp fyrir
hönd Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins. Flutt verður sjóferðabæn Odds V. Gíslasonar og
séra Elín Gísladóttir blessar skipið. Eftir athöfnina verður Óðinn opinn almenningi til sýnis
til klukkan 17:00. Óðinn siglir svo aftur til Reykjavíkur undir kvöld á laugardagskvöldinu.
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) er stéttarfélag sem
á sér langa sögu en uppruninn er stofnun Verkalýðsfélags Grinda-
víkur, árið 1937. Það voru nokkrir verkamenn sem stóðu að stofnun
félagsins en eftir nokkur ár þótti eðlilegast að mynda sérstaka deild
utan um sjómennina og það var svo árið 1956 sem sú deild klauf sig
alfarið út úr Verkalýðsfélaginu og SVG var stofnað.
Sú hefð hefur myndast í gegnum
árin, að sjómannafélögin á landinu
hafa gefið út sérstakt sjómannablað
sem er þá gefið út í kringum sjálfan
sjómannadaginn. Grindvíkingar tóku
þessa hefð þó ekki upp fyrr en árið
1989 þegar fyrsta blaðið kom út. Í
þessum pistli verður fjallað um sögu
Sjómannadagsblaðs Grindavíkur og
sat núverandi ritstjóri, sá sem hefur
haft pennann lengst á lofti, Óskar
Sævarsson, fyrir svörum.
Óskar er starfsmaður skrifstofu
SVG og fagnar 10 ára ritstjóraaf-
mæli sínu á þessu ári en hægt er að
nálgast öll fyrri blöð inni á vef SVG;
https://svg.is/sjomannadagsbladid/
Fyrsta blaðið árið 1989 var ekki
með eiginlegum ritstjóra, heldur
ritnefnd og skipuðu Kjartan Kristó-
fersson, Borgþór Baldursson og
Ölver Skúlason fyrstu nefndina. Að-
alhvatamaðurinn að útgáfu blaðsins
var Björn Gunnarsson. Árið eftir
tóku Pétur Vilbergsson og Hinrik
Bergsson við stjórninni en það er
óþarfi að rekja þetta í öllum blöðum,
hægt að nálgast upplýsingarnar á vef
SVG eins og áður sagði.
Óskar tók við ritstjórninni árið
2013. „Það urðu kaflaskil í útgáfu
blaðsins þegar Kristinn Bene-
diktsson tók við ritstjórninni en
Kiddi var frábær blaðamaður og ekki
síst, ljósmyndari. Blöðin öðluðust í
raun nýtt líf þegar Kiddi kom með
allar sínar frábæru myndir inn í
blöðin en eftir hann liggur ógrynni
frábæra ljósmynda af sjómennsk-
unni. Áður en Kiddi tók við þá voru
vinnubrögðin í kringum svona blaða-
útgáfu allt öðruvísi, ekkert „digital“
og það þurfti að setja myndir inn á
annan máta en gert er í dag. Efnis-
tökin hafa nú oftast verið af svip-
uðum toga, allt sjómannatengt að
sjálfsögðu en eins og ég segi, blöðin
færðust upp um nokkur „level“ þegar
Kiddi kom með sínar myndir. Því
miður veiktist Kiddi og rétt náði að
klára blaðið árið 2012 áður en hann
féll frá og þá tók ég við. Ég vissi það
nú reyndar ekki þegar ég mætti á
aðalfund SVG en stungið var upp á
mér sem næsta ritstjóra að mér for-
spurðum, standandi lófatak á fund-
inum og ég gat ekki vikist undan
þessu. Hóf fljótlega störf á skrifstofu
félagsins og þetta tvennt vann vel
saman, að reka skrifstofuna og sanka
að mér efni fyrir næstu blaðaútgáfu.”
Það eru nokkrir mikilvægir póstar
í sögu útgáfu Sjómannadagsblaðsins.
„Þau eru nokkur hryggjarstykkin í
sögu þessa blaðs og fyrstan skal
nefna Svavar Ellertsson í Stapa-
prenti en hann hefur lengst af brotið
blaðið um og prentað, en annar eins
öðlingur er vandfundinn. Afskap-
lega gott að vinna með honum og
okkar samstarf hefur alltaf verið
gott. Ég naut líka góðs af því á
þessum bernskusporum mínum sem
ritstjóri, að ég hafði aðgang að öllu
ljósmyndasafni Kidda Ben og eins
voru nokkrar greinar sem Kiddi var
byrjaður á. Annað hryggjarstykki
sem vert er að minnast á er Ólafur
Rúnar Þorvarðarson en eftir hann
liggur sömuleiðis ógrynni ljósmynda,
allt til svarthvítra mynda og fjölda
greina. Við efnisöflun koma margir
til hjálpar, velvild greinarhöfunda og
ljósmyndara hér í víkinni er til fyrir-
myndar.
Á fyrstu árunum tíðkaðist að
ganga í hús og selja Grindvíkingum
blaðið en í COVID breyttist það
og Grindavíkurbær samþykkti að
styrkja blaðið þannig að það yrði
borið í hvert hús í Grindavík - end-
urgjaldslaust. Þó svo að aðkomu
Grindavíkurbæjar sé lokið hvað það
varðar, þá ætlar að SVG að halda
þessu formi áfram og geta Grind-
víkingar og þeir 50-60 utan bæjar-
markanna sem fá blaðið sent heim til
sín, farið að láta sig hlakka til.“
En hver eru efnistök blaðsins í ár?
„Það eru fastir liðir eins og venju-
lega, formannspistillinn, en for-
maður SVG, Einar Hannes Harð-
arson, er í samninganefndinni og
ég ætlaði að hafa langt viðtal um
gang viðræðnanna en Einar sagði
að það væri ekkert… að frétta… Ég
tek viðtal við Kjartan Viðarsson hjá
Vísi og Hrannar Jónsson hjá Þor-
birni vegna nýsmíði fyrirtækjanna
og kaupa fiskiskipa í flotann, en
von er á nýjum glæsilegum skipum
í flota Grindvíkinga. Hér áður fyrr
var aldrei hægt að fjalla um svona
nýsmíði því það var ekkert slíkt í
gangi. Mér finnst athyglisvert eitt
umfjöllunarefnið en hafin er smíði
á svokölluðu „Grindavíkurskipi“ en
um er að ræða tíróinn, áttæring í
fullri stærð. Umrætt skip þótti sér-
stakt á sínum tíma, var frábrugðið
öðrum áraskipum, en skipasmiður
hefur hafið smíði á þessu skipi og er
ég mjög spenntur að sjá útkomuna.
Flott grein með flottum myndum.
Það er fullt af fleiri áhugaverðum
greinum með flottum myndum, ég
lofa góðu blaði.“
Myndirnar eru úr safni Valdimars Jónssonar, loftskeytamanns, og voru birtar
á vef Landhelgisgæslunnar í tilefni af 50 ára afmæli skipsins árið 2010.
Sjómannadagsblað
Grindavíkur 2020
Sjómanna- og vélstjórafélag
Grindavíkur
SjómannadagsblaðGrindavíkur 201930 ára
Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur
Óskar Sævarsson, ritstjóri
Sjómannadagsblaðs SVG, í viðtali
Nokkrar forsíður Sjómannadagsblaðs Grindavíkur.
„Þau eru nokkur
hryggjarstykkin í
sögu útgáfu blaðsins“
14 // VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum