Víkurfréttir - 09.06.2022, Blaðsíða 21
„Þeir sem eru
duglegir að
koma sér á fram-
færi eru líklegri
til að ná langt,“
– segir Sævar Helgi Jóhannsson,
tónskáld og píanóleikari.
Sævar Helgi Jóhannsson er ungt tónskáld og píanóleikari sem á
rætur sínar að rekja til Reykjanesbæjar. Sævar hélt á dögunum
útgáfutónleika fyrir fjórðu plötu sína Whenever You’re Ready en
hann hefur áður gefið út þrjár plötur undir listamannsnafninu
S.hel. Hann segir plötuna vera byggða á vangaveltum hans um
seiglu, kulnun og hvíld. „Ég vona að þessi plata veiti hlustendum
ró. Eins og titillinn gefur til kynna þá eru skilaboðin þau að það er
í lagi að taka sér pásu og gera hluti fyrir sjálfan sig,“ segir Sævar.
Sævar segist reyna að ögra sér við
gerð hverrar plötu. Á nýjustu plötu
hans eru strengjahljóðfæri en hann
fékk strengjaleikara með sér í lið.
„Allar útsetningar á plötunni eru
mínar en það er alveg ómetanlegt
að við upptökur á plötunni var ég
með frábæra strengjaleikara sem
hafa spilað með Ólafi Arnalds. Þau
hjálpuðu mér mikið með að finna
réttu textúruna/stemmninguna í
laginu. Í mínum huga eru þau sér-
fræðingarnir og því afþakka ég ekki
ef þau koma með góðar hugmyndir
eða tilboð. Mér finnst bara svo ómet-
anlegt að vinna með öðrum,“ segir
hann. Hægt er að hlusta á plötuna á
öllum helstu streymisveitum og segir
Sævar viðbrögð fólks við plötunni
hafa verið góð. „Það eru nokkrir
búnir að senda á mig skilaboð varð-
andi plötuna, ég er ótrúlega þakk-
látur fyrir það.“
Samdi tónlist fyrir Skugga Svein
Sævar æfði á saxófón og píanó í
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og
lauk BA-gráðu í tónsmíðum við
Listaháskólann. Sævar hefur unnið
í fjölbreyttum verkefnum tengt
tónlistinni. „Ég er búinn að vera í
hljómsveitarstússi, spila með kórum
og búinn að vera að kenna á píanó
í fjögur ár,“ segir hann. Þá samdi
hann og útsetti einnig tónlistina fyrir
nýjustu uppsetningu á leikritinu
Skugga Sveinn í leikstjórn Mörtu
Nordal þar sem Jón Gnarr var í aðal-
hlutverki en það var sýnt á Akureyri
í vetur. „Ég hafði sem sagt samband
við Mörtu, leikstjórann, til að leitast
eftir verkefnum og hún heyrði svo
í mér varðandi Skugga Svein. Hún
leggur mikið upp úr máltakinu; þeir
fiska sem róa,“ segir hann.
„Þetta er örugglega eitt af elstu ís-
lensku leikritunum. Það var skrifað
1861 og er eftir einn af ástsælustu
höfundum Íslands, Matthías Joch-
umsson. Þannig þetta var alveg rosa-
lega stórt verkefni. Við vorum með
það markmið að gefa þessu nýjan
anda en á sama tíma heiðra upp-
runalegu útgáfuna og halda upp á
arfinn. Það tókst vel til og þetta náði
vel til allra,“ segir Sævar.
Hljómsveitarmeðlimir
með fjölbreyttar sögur
Korda Samfónía er hljómsveit sem
er samsett af hljóðfæraleikurum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nem-
endum Listaháskóla Íslands og skjól-
stæðingum Starfsendurhæfinga-
stöðva Vesturlands, Hafnarfjarðar
og Suðurnesja. Hljómsveitin var
stofnsett í febrúar 2021 og koma
hljómsveitarmeðlimir úr hinum
ýmsu áttum og eru með fjölbreyttar
sögur að baki. Verkefnið er runnið
undan rifjum MetamorPhonics, sam-
félagsmiðuðu fyrirtæki sem Sigrún
Sævarsdóttir-Griffiths, tónlistar-
kona úr Keflavík, stýrir í London.
Sævar hefur síðustu tvö ár tekið
þátt í verkefninu og segir hann að
verkefnið stuðli að því að við getum
öll lært hvort af öðru. „Þetta gengur
ekki bara út á að gera flotta tónlist
heldur efla fólk og finna nýjar leiðir
til að vinna saman,“ segir Sævar.
Korda Samfónía hélt „debut“-tón-
leika í Eldborgarsal Hörpu á síðasta
ári og var viðburðurinn tilnefndur
til íslensku tónlistarverðlaunanna
fyrir viðburð ársins. Hljómsveitin
er búin að vinna í skemmtilegum
og framandi verkefnum á síðustu
misserum en heimildarmyndin Ég sé
þig er um skapandi tónlistarsmiðjur
Korda Samfónía og var hún sýnd á
RÚV sunnudaginn 29. maí. Þá hélt
hljómsveitin einnig tónleika í Fíla-
delfíukirkjunni mánudaginn 30. maí
við góðar undirtektir.
Ætlaði ekki að verða tónskáld
Sævar kemur úr mikilli tónlistarfjöl-
skyldu og segir tónlistina hafa verið
óumflýjanlega. Hann ætlaði þó aldrei
að verða tónskáld en segir viðveru
sýna í lúðrasveit Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar hafa aukið áhuga
hans á tónlist til muna. „Ég ætlaði að
verða leikari eða eitthvað allt annað,
svo byrjaði ég að læra á saxófón
þegar ég var um það bil tólf ára og
Tónlistarskólinn í Reykjanesbæ var
bara algjör griðastaður fyrir mig.
Þetta var mjög eflandi umhverfi og
ég held að áhuginn hafi aukist þar,“
segir Sævar og bætir við: „Ég var oft
út af fyrir mig en ég fann mig í tón-
listinni og spilaði píanó allan daginn.
Það gaf mér svo mikið.“
Aðspurður hvaða skilaboð hann
hefur til ungs tónlistarfólks segir
hann: „Þetta er langhlaup, ekki gefast
upp. Hæfileikar eitt og sér eru ekki
nóg, þeir sem eru duglegir að koma
sér á framfæri eru líklegri til að ná
langt. Þeir fiska sem róa.“
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
Þetta er langhlaup,
ekki gefast upp.
Hæfileikar eitt og
sér eru ekki nóg, þeir sem eru
duglegir að koma sér á framfæri
eru líklegri til að ná langt ...
Frá útgáfutónleikunum. Mynd: Rakel Ýr Stefánsdóttir Whenever You’re Ready -
Sævar Helgi Jóhannsson
Skugga Sveinn. Mynd: Auðunn Níelsson
Sævar Helgi Jóhannsson. Mynd: Gunnlöð Jóna
VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum // 21