Víkurfréttir - 09.06.2022, Page 23
101 Íslandsmet
Katla Ketilsdóttir setti fjórtán Íslandsmet á Evrópumótinu í
ólympískum lyftingum. Að þessu sinni var mótið haldið í Tírana
í Albaníu og fór fram dagana 28. maí til 5. júní. Katla keppti í -64
kg flokki kvenna og lenti hún í ellefta sæti. Þyngsta lyfta Kötlu
í snörun var 88 kg en hún lyfti þyngst 106 kg í jafnhendingu og
fékk hún allar sínar lyftur gildar. Auk þess að hafa sett fjöldann
allan af Íslandsmetum á mótinu hlaut hún einnig „elite pin“
viðurkenninguna. Elite pin er viðurkenning sem veitt er þeim
sem ná ákveðnum árangri eftir stöðlum Norðurlandanna og
hafa staðist öll lyfjapróf á ferlinum. Þeir sem hafa hlotið viður-
kenninguna fá beinan aðgang á öll mót Norðurlandanna. Katla
er sjötti Íslendingurinn til að hljóta slíka viðurkenningu. Þess
má geta að Katla hefur sett 101 Íslandsmet síðan hún byrjaði
í íþróttinni.
Katla náði markmiðum sínum fyrir mótið en hún segir lang-
tímamarkmið sitt vera að komast á Ólympíuleikana. Aðspurð
hvað taki við eftir mótið segir hún: „Ég er að fara inn á smá
undirbúningstímabil núna fyrir EM Junior og heimsmeistara-
mótið í haust.“
Keflavík Íslandsmeistari á dýnu
Íslandsmótið í hópfimleikum var haldið þann 29. maí í íþrótta-
húsinu Ásgarði í Garðabæ. Fimmtán stúlkur á aldrinum ellefu
til þrettán ára frá Keflavík kepptu í þriðja flokki stúlkna og varð
liðið íslandsmeistari á dýnu. Alls kepptu níu lið í flokknum lenti
liðið í fjórða sæti samanlagt á áhöldum. Bikarmótið í áhaldafim-
leikum var að einnig haldið þessa sömu helgi og kepptu þær
Alísa Myrra Bjarnadóttir, Helen María Margeirsdóttir, Lovísa
Gunnlaugsdóttir, Íris Björk Davíðsdóttir og Jóhanna Ýr Ólafs-
dóttir í frjálsum æfingum.
Góður árangur iðkenda fimleikadeildar Keflavíkur, bæði í
hóp- og áhaldafimleikum, hefur ekki leynt sér en þær Lovísa
Gunnlaugsdóttir, Margrét Júlía Jóhannsdóttir og Helen María
Margeirsdóttir munu einnig keppa á Íslandsmótinu í áhaldafim-
leikum sem haldið verður helgina 11.–12. júní í Gerplu.
Bæði lið Borðtennisfélags
Reykjanesbæjar upp um deild
Borðtennisfélag Reykjanesbæjar (BR) tók í vetur í fyrsta sinn
þátt í deildarkeppni Borðtennissambands Íslands (BTÍ) en fé-
lagið var stofnað á síðasta ári. Árangur félagsins hefur verið
framúrskarandi á tímabilinu og sendi BR tvö lið til keppni, BR-A
og BR-B.
BR-A varð deildarmeistari í 3. deild og hafði því þegar tryggt
sér sæti í 2. deild að ári en BR-B, sem lenti í öðru sæti deildar-
innar, átti að leika umspilsleik við lið Samherja, liðinu í fimmta
sæti. Lið Samherja mætti ekki til leiks og því leika bæði lið BR
í 2. deild á næsta keppnistímabili.
Í 2. deild eiga því eftirtalin lið keppnisrétt á næsta keppnis-
tímabili: Akur-A, BR-A, BR-B, HK-B, HK-C og KR-B.
3. flokkur Keflavíkur í hópfimleikum og þjálfarar.
Katla Ketilsdóttir hefur
sett 101 Íslandsmet í
ólympískum lyftingum.
Mynd af Instagram-síðu Kötlu
Glæstur árangur á sterku kvennamóti
Fyrir skemmstu fóru þær Hildur Ósk Indriða-
dóttir og Margrét Guðrún Svavarsdóttir úr
Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR) á stærsta
hnefaleikamót kvenna sem er haldið árlega í
Svíþjóð. Mótið nefnist á Golden Girl og tekur á
móti öflugum stelpum frá öllum heimshornum.
Hildur lenti á móti mjög reyndum hnefa-
leikara frá Svíþjóð, Feliciu Jacobsen, í 69 kg
flokki. Felicia er bæði bæði hávaxin og örv-
hent, sem reynist andstæðingum oft erfitt.
Hildi tókst vel á fara inn á vinstri hliðina á Sví-
anum en þegar allt kom til alls vantaði aðeins
herslumuninn til að vinna bardagann. Felicia
endaði á að vinna mótið.
Margrét keppir í +81 flokki og átti tvo stór-
góða bardaga á mótinu. Eftir harða baráttu
við öflugar stelpur þá snýr Margrét aftur með
gullið í sínum flokki. Virkilega flottur árangur
hjá stelpunni.
Með HFR foru með tvær stelpur frá hnefa-
leikafélaginu Þór. Þrátt fyrir öflugar baráttur
duttu þær báðar út í fyrstu umferð, reynslunni
ríkari.
Bríet Sif Hinriksdóttir gengin
til liðs við Íslandsmeistarana
„Rúnar heillaði mig upp úr skónum,“ segir
Bríet Sif Hinriksdóttir sem samdi við Ís-
landsmeistara Njarðvíkur í byrjun vikunnar
um að leika með liðinu í Subway-deild
kvenna á næstu leiktíð.
Bríet sem lék með Haukum á síðasta
tímabili er uppalin í Keflavík en býr í
Njarðvík, hefur verið að vinna á leikskóla í
Njarðvík og á kærasta sem er Njarðvíkingur.
Í viðtali við vefmiðil umfn.is segir hún að
það hafi efalaust haft áhrif á ákvörðunina en
henni hafi litist vel á klúbbinn og það starf sem
er unnið hjá Njarðvík – svo hafi Rúnar heillað
hana með fagurgala og hún sé komin til að
vinna titla með Njarðvík.
Tilkynning frá körfuknattleiksdeild UMFN:
Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa samið
við bakvörðinn Bríeti Sif Hinriksdóttur og
mun því Bríet klæðast grænu á næstu leiktíð í
Subwaydeild kvenna. Hvalreki á fjörur Njarð-
víkinga sem þegar hafa mátt sjá á eftir Vil-
borgu Jónsdóttur og Helenu Rafnsdóttur í
háskólanám í Bandaríkjunum.
Bríet Sif lék með feiknasterku liði Hauka í
vetur og mætti Njarðvík í magnaðri úrslita-
seríu. Bríet var með 9,7 stig, 2,8 fráköst og 2,1
stoðsendingu að meðaltali í leik með Haukum
í deildinni á síðustu leiktíð.
„Rúnar heyrði í mér og seldi mér þetta rosa-
lega vel. Þetta er flottur klúbbur. Ég bý hérna
í Njarðvík þannig að þetta hentaði mér ágæt-
lega, en hann heillaði mig eiginlega upp úr
skónum hann Rúnar,“ sagði Bríet í samtali við
UMFN.is í dag þegar hún skrifaði undir nýja
samninginn.
Bríet lék með Haukum gegn Njarðvíkingum
í úrslitum Subwaydeildarinnar en hún segir
það ekki setja strik í reikninginn þó tekist hafi
verið á í þeirri rimmu. „Það er bara inni á vell-
inum. Utanvallar eru þetta örugglega æðislegar
stelpur og ég hlakka til að kynnast þeim. Ég hef
engar erfiðar tilfinningar gagnvart þeim og er
bara ógeðslega spennt fyrir komandi tímabili.“
Bríet er alin upp í Keflavík og hún viður-
kennir að það hafi gert henni aðeins erfitt fyrir
varðandi ákvörðun hennar. „Mér fannst það
alveg smá erfitt. Ég var alltaf að hugsa hvað
hefði 10 ára Bríet sagt? Hún hefði bara rang-
hvolft augunum og sagt hvað ertu að hugsa?
Svo þroskast maður bara og reynir að sjá þetta
í víðara samhengi. Mér fannst því fyrir þetta
tímabil þetta vera minn besti kostur.“ Bríet
sem hefur verið sigursæl í gegnum tíðina er
kokhraust þegar kemur að markmiðum fyrir
næsta tímabil. „Ég ætla að vinna, við erum að
fara að vinna. Það þýðir ekkert að vinna og
gera svo ekkert tímabilið á eftir.“
Bríet að kljást við Helenu Rafnsdóttur og
Aliyah Collier í oddaleik Hauka og Njarðvíkur
um Íslandsmeistaratitilinn. VF-mynd: JPK
Kylfingur við 18. flötina á Hólmsvelli
Kylfingur, listaverk eftir Helga Valdimarsson,
listamann úr Suðurnesjabæ, var settur upp
á Hólmsvelli í Leiru í síðustu viku. Kylfingur
horfir yfir 18. flötina og út á Hólmsvöll en
hann trónir á klettahól við flötina og klúbb-
húsið og tekur á móti kylfingum þegar þeir
ljúka leik.
Listaverkið er gefið af Páli Ketilssyni og fjöl-
skyldu en hann fékk golfbakteríuna á Hólms-
velli fyrir fimmtíu árum og hefur verið félagi í
Golfklúbbi Suðurnesja alla tíð. Páll er eigandi
Víkurfrétta og hluti af miðlum VF er golfsíðan
kylfingur.is.
GS félagarnir Örn Bergsteinsson og Gísli
Grétar Björnsson aðstoðuðu Pál við upp-
setningu listaverksins. Þeir steyptu stall undir
Kylfing svo hann gæti staðið hátt og verið vel
sýnilegur en hann sést vel frá flestum brautum
og einnig þegar Garðvegurinn er ekinn vestan
við golfvöllinn.
Kylfingurinn horfir yfir 18. flötina og Hólmsvöll
Helgi Valdimarsson hefur gert mörg listaverk
úr steypu og nokkur þeirra má sjá í hans
heimabæ, Garðinum í Suðurnesjabæ. Hér
er hann að setja lokahönd á verkið.
Það var gott að hafa fleiri hendur þegar
steypa þurfti stall undir listaverkið
og síðan að koma því á staðinn. F.v.:
Örn, Vigfús, Helgi, Páll og Gísli Grétar.
Nota þurfti öflugan kranabíl til að koma styttunni,
sem er um 400 kg, á sinn stað. Það gekk vel og
nú fylgist Kylfingur með kylfingum ljúka leik á
Hólmsvelli og hvetur þá til að taka mynd af sér
við hann og setja myllumerkið #kylfingur
VíKurFrÉttir á SuÐurnESjum // 23