Víkurfréttir - 19.10.2022, Blaðsíða 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Viðamiklar framkvæmdir hafa staðið yfir síðustu tvö árin við endurgerð á flugbrautum á Keflavíkur-
flugvelli og við viðbyggingu til austurs en hún er stærri en flugstöðin var þegar hún var opnuð árið
1987. Heildarkostnaður þessara tveggja stóru verkefna nemur um 26 milljörðum króna. Framkvæmdum
á akbrautum á að ljúka 2023 en þegar fyrsta áfanga austurbyggingar verður lokið 2024 verður hægt
að ráðast í nýja tengibyggingu á milli norður- og suðurbygginga. Áætlað er að kostnaður við þá stóru
framkvæmd muni nema um 40 milljörðum króna eða nærri tvöfalt meira en við þessar tvær.
Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður
flugvallarþróunar og uppbyggingar
hjá Isavia, segir að til að halda Kefla-
víkurflugvelli samkeppnishæfum og
tryggja öryggi þurfi að sjá til þess
að innviðum sé viðhaldið og líf-
tími þeirra hámarkaður því þeir séu
mjög dýrir. Bæting innviðanna eykur
einnig rekstraröryggi vallarins. Nú í
sumar hóf Isavia nýframkvæmd á
akbraut sem sem liggur norðri til
suðurs og kallast „Mike“. Sú fram-
kvæmd tengist við eina flugbraut
og þrjár akbrautir.
„Akbrautin er fyrsta nýja ak-
braut fyrir flugvélar sem gerð er á
Keflavíkurflugvelli í langan tíma.
Akbrautin er um 1.500 metrar að
lengd og 23 metrar að breidd með
sjö metra axlir beggja vegna, þannig
að þessi framkvæmd er töluvert um-
fangsmikil. Með framkvæmdinni er
verið að auka bæði öryggi og flæði.
Framkvæmdin mun einnig hjálpa
mikið til með viðhald til framtíðar
á öðrum akbrautum og einfalda
rekstur,“ segir Páll Svavar.
„Þegar við erum að vinna við teng-
ingar eða þveranir þá þurfum við
óhjákvæmilega að loka akbrautum
og beina flugvélum aðra leið en
hefðbundið vinnulag er. Í vor og nú
í haust hefur því verið meiri flugum-
ferð og ónæði yfir Reykjanesbæ en
við reynum að lágmarka þann tíma
sem það tekur. Verktakarnir Ístak
og Colas hafa verið mjög liprir og
samvinnan góð í að skila góðu verki.
Í sumum verkþáttum hefur verið
unnið allan sólarhringinn og þegar
veðrið hefur ekki leikið við okkur þá
hafa verkþættir verið framkvæmdir
um helgar eða að nóttu. Ljóst að
veðrið hefur ekki leikið við okkur
í sumar og stefnir því í að verkið
þurfi að ljúka næsta vor,“ segir Páll
Svavar. Að jafnaði eru um fimmtíu
starfsmenn við verkið en fara upp í
um eitthundrað á þeim dögum sem
malbikun á sér stað.
Umfangsmeiri framkvæmdir
við viðhald
Eftir að Varnarliðið fór frá Íslandi
árið 2006 var lítið fjármagn til við-
halds á flugbrautum í Keflavík og
akbrautum og flugbrautum var ekki
viðhaldið í fullri breidd. „Það hefur
aðeins verið að bíta okkur núna
þannig að framkvæmdir sem farið
er í núna eru umfangsmeiri og taka
meiri tíma. Þetta verður flóknara og
erfiðara en það hefði þurft að verða.
Árin 2017-2018 fórum við í endur-
gerð á flugbrautunum hjá okkur og
það eru stífar reglur á svoleiðis fram-
kvæmdum og uppfylla þarf alla nýja
staðla.“
Nú er verið að vinna í „mast-
erplani“ fyrir Keflavíkurflugvöll og
hvernig á að byggja upp flugvöllinn.
Meðal annars er núna verið að vinna
í hugmyndavinnu fyrir aðrar ak-
brautir sem munu liggja frá austri til
vesturs. Þá er einnig verið að skoða
sérstakt afísingarsvæði fyrir flug-
vélar.
Fyrsti áfangi austurbyggingar
stærri en upphaflega flugstöðin
Stjórnendur Isavia voru bjartsýnir
á endurheimtur á Keflavíkurflug-
velli eftir kórónuveirufaraldurinn en
endurheimtur virðast ætla að ganga
hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir og
vöxturinn er hraðari en menn áttu
von á. Til að bregðast við auknum
vexti hófust framkvæmdir við
austurbyggingu flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar 2021. Um er að ræða flug-
stöðvarbyggingu sem er um 22.000
fermetrar sem er t.a.m. stærri
bygging en upphafleg norðurbygging
flugstöðvarinnar sem tekin var í
notkun árið 1987. Framkvæmda-
kostnaður er áætlaður 17 milljarðar
króna og heildarkostnaður um 22
milljarðar. Þá fara um tveir milljarðar
króna í flughlöð við bygginguna sem
áætlað er að opna sumarið 2024.
Ákveðnir hlutar þeirrar byggingar
verða þó teknir í notkun fyrr, eins
og t.a.m. aðstaða fyrir farangurs-
flokkunarkerfi og stærri töskusalur
og afkastameiri töskubönd. Þá er sá
hlutu austurbyggingarinnar sem nú
er í smíðum aðeins um fjórðungur
þess sem byggingin verður fullbyggð.
Þegar fyrsta áfanga austurbygg-
ingar verður lokið verður hægt að
ráðast í nýja tengibyggingu á milli
norður- og suðurbygginga og leysir
af hólmi ranann svokallaða, sem er
hluti af upphaflegu flugstöðvarbygg-
ingunni.
Nánar er fallað um framkvæmdir
á Keflavíkurflugvelli í Suðurnesja-
magasíni vikunnar á fimmtudags-
kvöld kl. 19:30 á Hringbraut og vf.is.
Nærri 40 manns
vildu í forstjóra-
stól HS Veitna
Páll Erland hef ur
v e r i ð r á ð i n n
nýr for stjóri HS
Ve i t n a . H a n n
tek ur við af Júlí
usi Jóni Jóns syni
sem mun láta af
störf um í lok árs
eft ir 40 ára farsælt starf fyr ir
fé lagið.
Starfið var aug lýst í ág úst og
sóttu tæp lega 40 manns um
starfið.
Páll er fram kvæmda stjóri Sam-
orku, en áður var hann fram-
kvæmda stjóri Orku nátt úr unn ar.
Hann mun hefja störf á nýju ári.
– Framkvæmdir fyrir nærri 30 milljarða. Árið 2024 verður hafist handa við tengibyggingu sem mun kosta um 40 milljarða.
Ný akbraut fyrir flugvélar og 22.000
fermetra austurbygging við flugstöðina
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur
samþykkt framkomnar tillögur um
styttingu vinnuvikunnar í grunn
skólum Suðurnesjabæjar sem til
raunaverkefni til eins árs. Bæjarráð
telur að skoða verði hvort skerðing
á starfsdögum sem lagt er til komi
niður á undirbúningi og eflingu
skólastarfs áður en framtíðar
skipulag styttingar vinnuvikunnar
verður ákveðið.
Bæjarráð leggur til við deildar-
stjóra fræðslumála að skoðað verði
hvort aukin samræming skóladaga-
tala leik- og grunnskóla sé ekki
möguleg fyrir næsta skólaár.
Samþykkja styttingu
vinnuviku sem tilrauna-
verkefni til eins árs
Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar
og uppbyggingar hjá Isavia segir að til að halda
Keflavíkurflugvelli samkeppnishæfum og tryggja öryggi
þurfi að sjá til þess að innviðum sé viðhaldið .
Akbrautin er um 1500 metrar að
lengd og 23 metrar að breidd með
sjö metra axlir beggja vegna.
N Ý S P R A U T U N O G B Í L A K J A R N I N N
óska eftir að ráða í eftirtaldar stöður:
A F G R E I Ð S L A O G M Ó T TA K A
Nýsprautun óskar að ráða starfsmann í afgreiðslu og móttöku
í starfsstöð fyrirtækisins að Njarðarbraut 13 í Reykjanesbæ.
B Í L A V I Ð G E R Ð A R M E N N
Nýsprautun óskar eftir að ráða til starfa bifvélavirkja og bílasmið.
Umsóknir sendist á netfang: sverrir@nysprautun.is
Nýsprautun ehf er bíla-, réttinga- og sprautuverkstæði,
Bílakjarninn ehf er bílasala en félögin eru samrekin bílaþjónustufyrirtæki
í Reykjanesbæ, m.a. samstarfsaðilar Heklu hf.
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM