Víkurfréttir - 19.10.2022, Side 8
Mikil gróska
hjá Hjálpræðishernum í Reykjanesbæ
Hjálpræðisherinn í Reykjanesbæ vinnur mikilvægt og óeigingjarnt starf. Hjálpræðisherinn er trúfélag
og er starfið í Reykjanesbæ aðallega byggt upp af sjálfboðaliðum. Nú á dögunum opnaði Hertex, ný
verslun Hjálpræðishersins, á Ásbrú. „Það er ákveðinn partur af virkni meðal þeirra sem leita til okkar
og við teljum það vera partur af eflingu sjálfstrausts og sjálfsvirðingar,“ segir Bergrún Ólafsdóttir,
verkefnastjóri Hjálpræðishersins í Reykjanesbæ.
Blaðamaður Víkurfrétta settist niður
með Bergrúnu og Ástu Kristínu Guð-
mundsdóttur, teymisstjóra alþjóða-
teymis Reykjanesbæjar. Ásta segir
aðsókn að þjónustu Hjálpræðis-
hersins hafa aukist mikið á síðustu
misserum og segir Reykjanesbæ
jafnframt taka á móti um þriðjung
fólks sem kemur til landsins í alþjóð-
legri vernd en sú tala hefur farið
hækkandi á síðastliðnu ári. „Þetta
eru stórar tölur. Við hjá Reykjanesbæ
erum að sinna móttöku á hátt í 350
einstaklingum eins og er, þegar ég
byrjaði fyrir ári síðan var sú tala í
kringum 50. Það er mikil aukning á
einu ári,“ segir Ásta.
Starfið ákveðinn stökkpallur
Aðspurðar hvers vegna starf Hjálp-
ræðishersins sé mikilvægt í fjöl-
menningarsamfélagi eins og Reykja-
nesbæ segir Bergrún: „Vegna þess að
einn þriðji af fólkinu sem kemur til
landsins kemur hingað, við verðum
að grípa þau og vera til staðar fyrir
þau.“ Ásta tekur undir með henni
og segir: „Virkni leiðir af sér meiri
virkni. Það er grundvöllurinn, ef fólk
byrjar að draga sig til hlés inni í nýju
samfélagi er ennþá erfiðara að koma
sér inn í það. Við viljum að þau sem
koma hingað séu virkir þátttakendur
í samfélaginu og séu einnig sýnileg
í samfélaginu okkar því þetta fólk
hefur margt gott fram að færa. Við
viljum gefa þeim aukin tækifæri og
þau vilja líka gefa til baka. Með þessu
starfi erum við að valdefla þau og
gefa þeim aukin tækifæri.“ Bergrún
segir starfið vera ákveðinn stökk-
pall út í samfélagið. „Þau vilja vinna
og láta gott af sér leiða. Í samveru
okkar erum við að veita þeim vett-
vang eða stökkpall út í lífið á Íslandi,“
segir hún. „Það er mikil aukning hjá
okkur og það hefur verið mikið að
gera. Ég ákvað því að sækja um styrk
hjá félagsmálaráðuneytinu fyrir
verkefni tileinkað börnum í sumar.
Ég heyrði í Bergrúnu og athugaði
hvort við gætum ekki sett upp eitt-
hvað samstarf þar sem við gætum
notað styrkinn í skipulagða starfsemi
á þeirra vegum,“ segir Ásta en Hjálp-
ræðisherinn bauð upp á leikjanám-
skeið fyrir börn og ungmenni í sumar
og er það verkefni sem er komið til
að vera innan veggja Hjálpræðis-
hersins.
Virkni er mikilvæg
Ásta og Bergrún segja virkni vera
stóran þátt í að koma aðkomufólki í
samfélagið og út á vinnumarkaðinn.
Hjálpræðisherinn býður upp á svo
kölluð virkni námskeið fyrir fólk í
alþjóðlegri vernd og hafa þau vakið
mikla lukku.
„Þetta er hugsað til þess að efla
virkni til starfs. Það er mikilvægt að
þau fái smá reynslu og rétta nálgun
á okkar menningu. Það er ekki hægt
að koma til Íslands og vera bara í
sínum hópi eða sinni menningu, auð-
vitað fylgir hún fólkinu alltaf en það
verður líka að aðlagast íslensku sam-
félagi. Það verður að aðlagast okkar
menningu, hvernig við högum hlut-
unum, hvernig við vinnum og við
erum hérna til að hjálpa þeim í því
ferli,“ segir Bergrún. Næsta verkefni
á dagskrá hjá „hernum“ er að bjóða
upp á mismunandi virkninámskeið,
meðal annars í smíðavinnu. „Við
erum með mikið af eldri mönnum
hérna sem eru einir og vantar
virkni, því erum við að fara að búa
til smíðaverkstæði. Það mun koma
gámur hérna fyrir utan hús Hjálp-
ræðishersins, sem verður rafmagns-
tengdur og nú vantar verkfæri,“ segir
Bergrún og Ásta bætir við: „Þetta
er smá ákall til samfélagsins til að
fá aðbúnað fyrir virkninámskeið.
Það vantar skrifborð, stóla, hillur,
efnisbúta, saumavélar, verkfæri og
fleira sem sem fólk getur losað sig
við. Vörumóttakan hjá Hjálpræðis-
hernum er opin alla virka daga frá
12 til 17.“
Ný glæsileg verslun
Ný verslun Hertex opnaði við hliðina
á húsi Hjálpræðishersins í september
og segir Bergrún viðtökurnar hafa
verið góðar. „Viðtökurnar hafa verið
algjörlega frábærar. Þessi verslun
er virkilega það sem samfélagið
hérna þurfti. Það er eitthvað sem
við gerum okkur grein fyrir í þessu
samfélagi sem við erum með versl-
unina í,“ segir Bergrún. Þær Bergrún
og Ásta hvetja alla sem geta til þess
að losa sig við föt sem sitja kyrrt í
skápum heima fyrir. „Hver einasti
poki sem kemur hér inn er flokkaður,
með því að vera með virkninámskeið
í svokölluðu „redesign“ þá minnkum
við útflutning hjá okkur og náum
betur að nýta þær flíkur sem koma
hérna inn. Redesign er í raun bara
endurnýjun á flíkum. Þannig að ef
það eru göt á flíkunum þá eru þau
löguð eða ef þær eru alveg ónot-
hæfar þá er jafnvel hannað eitthvað
nýtt úr efninu,“ segir Bergrún. Versl-
unin er opin alla virka daga milli 11 og
17 og frá klukkan 12 til 16 á laugar-
dögum.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Bergrún Ólafsdóttir
og Ásta Kristín
Guðmundsdóttir
í Hertex.
Dagný Kjærnested,
starfsmaður Hertex.
Húsnæði Hertex,
verslunar
Hjálpræðishersins
í Reykjanesbæ. Þar
er hægt að koma
með fatnað sem
fólk vill losna við.
Séð inn í verslunina.
8 // vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM