Víkurfréttir - 19.10.2022, Síða 11
Ronja fer á kostum í Frumleikhúsinu
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi barna og fjölskylduleikritið Ronju ræn
ingjadóttur síðasta föstudag. Að vanda var húsfyllir á frumsýningu og er
óhætt að segja að áhorfendur hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum. Ekki kæmi
á óvart þó aðsóknarmeti yrði ógnað en það eiga Dýrin í Hálsaskógi sem
félagið sýndi fyrir nokkrum árum.
Ronja ræningjadóttir er aðalper-
sóna samnefndrar barnabókar eftir
hinn kunna sænska höfund, Astrid
Lindgren, en bókin kom fyrst út
árið 1981 og hefur verið þýdd á yfir
fjörutíu tungumálum. Það er því ljóst
að Leikfélag Keflavíkur var ekki að
ráðast á garðinn þar sem hann er
lægstur en verkið hefur m.a. verið
sýnt í Þjóðleikhúsinu og víðar.
Söguþráðurinn er skemmtilegur
og gott dæmi um mikla vináttu sem
verður á milli Ronju og Birkis en þau
eru börn sitt hvors ræningjaforingjans
í Matthíasarskógi. Mikil illindi ríkja á
milli ræningjaflokkanna sem pabbar
þeirra stýra, þeir Matthías og Borki.
Í upphafi ríkir heldur engin vinátta á
milli Ronju og Birkis en það breytist
þegar hún bjargar honum úr háska.
Óvæntir hlutir gerast og vinátta
þeirra hefur mikil áhrif á framhaldið
í Matthíasarskógi.
Tara Sól Sveinbjörnsdóttir leikur
Ronju en Tara mætir hér á sviðið
annað leikverkið í röð hjá LK í
aðalhlutverki. Það er alveg ljóst að
hún er ein af efnilegri leikkonum
Suðurnesja. Hún fer mjög vel með
hlutverk Ronju og nær persónu
ræningjastelpunnar sérlega vel, er
vel áberandi á sviðinu og skýrmælt.
Almar Örn Arnarson leikur Birki og
stendur sig líka vel. Allur hópurinn
er mjög flottur á sviðinu, bæði fólk
í stærri hlutverkum sem og þeim
minni. Sumir eru með meiri reynslu
en aðrir í leikhópnum og einhverjir
eru á sviði í fyrsta sinn. Það er virki-
lega áhugavert að sjá svona marga,
m.a. nokkra unga leikara, fara svona
vel með textann, dansinn, sönginn
og sín hlutverk. Meðal þeirra sem
setja líka svip sinn á sýninguna
eru tipplandi grádvergar og rass-
álfar. Litlir þættir í stóru myndinni í
Matthíasarskógi en hafa áhrif.
Leikfélagið er áhugafélag en
maður gleymir því oft því þetta
rúllar svo flott, eitthvað sem maður
gerir ráð fyrir í atvinnuleikhúsum en
ekki endilega hjá áhugaleikfélögum.
Leikmyndin er líka góð. Þá er lifandi
tónlist frá hljómsveit félagsins undir
stjórn Sigurðar Smára Hanssonar í
leikritinu enn einn gæðastimpillinn.
Sá sem þetta ritar var með sex
ára tvíburaafastelpur með sér á
sýningunni. Þær fylgdust vel með
allan tímann og höfðu mjög gaman
af, eitthvað sem afinn var ekki viss
um fyrirfram. Ein leikkonan er vin-
kona þeirra úr Njarðvíkurskóla og
þeim fannst það svolítið skrítið að
sjá hana svona allt öðruvísi en dags
daglega. Enda leikur hún Skalla-Pésa
sem er frekar ófrýnilegur.
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm,
leikstjóri, kom á svið eftir sýninguna
og hrósaði í hástert leikhópnum og
öllum í félaginu sem koma að sýn-
ingunni. Þeir eru fleiri en bara leikar-
arnir. Undir það er hægt að taka en
við sendum líka hrós á leikstjórann
sem hefur greinilega unnið flott verk
með hópnum.
Þá er bara að hvetja Suðurnesja-
fólk að mæta í Frumleikhúsið. Það
verður enginn svikinn af því. Þetta
er skemmtileg sýning og söngleikur
sem ætti að ná til fólks á öllum aldri
þar sem vináttan á sviðið.
„Stefnan mín fyrir framtíðina er líklega
að halda áfram í tónlist og fara í nám í
viðskiptafræði,“ segir Magnús Már en
hann æfir og kennir á trommur. Auk þess
spilar hann í hljómsveit og æfir fótbolta.
Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Skólamatar og fá að vera í tíma með öllum
vinum mínum.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS?
Aðallega til að vera í skóla í sama bæjarfélagi
og ég bý í.
Hver er helsti kosturinn við FS?
Helsti kosturinn er hvað það tekur stuttan
tíma að komast í skólann.
Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Mér finnst félagslífið mjög gott, það var ekki
mikið að gerast síðustu tvö ár vegna Covid
en nú fer þetta allt að koma aftur.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða frægur
og hvers vegna?
Ég hef trú á að minn maður Logi Þór muni
fara langt í pólitíkinni.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Það eru nokkrir en ég held Eiður Orri taki
titilinn í þetta skiptið.
Hvað hræðist þú mest?
Ekki neitt.
Hvað er heitt og hvað er kalt þessa
stundina?
Öll tónlistin hans Daniils er heit núna en það
er kalt að það sé búið að hækka verðið á KFC
box tilboðinu um 100 krónur.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Þau eru ansi mörg en get nefnt Flauelsmjúk
með Valdimar og Sweet/I thought you
wanted to dance með Tyler The Creator.
Hver er þinn helsti kostur?
Ég er hjálpsamur og jákvæður.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum?
Spotify og Instagram.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Stefnan mín fyrir framtíðina er líklega að
halda áfram í tónlist og fara í nám í viðskipta-
fræði.
Hver er þinn stærsti draumur?
Minn stærsti draumur er líklega að búa í
Bandaríkjunum.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það og af hverju?
Jákvæður, ég reyni alltaf að líta á björtu hlið-
arnar.
„Ég er mikið í tónlistarskólanum, þar er
ég að æfa á píanó og fiðlu. Síðan er ég
að vinna í Ísbúð Huppu, ég er leiðtogi
í KFUK og í ungmennaráði Reykjanes-
bæjar og unglingaráði Fjörheima. Það
er hægt að segja að ég sé eiginlega að
gera of mikið,“ segir Hildigunnur Eir að-
spurð hvað hún gerir utan skóla.
Hvert er skemmtilegasta fagið?
Ég elska að vera í íþróttum því þar get ég
verið að öskra og láta öllum illum látum en
samfélagsfræði er númer eitt því ég er mjög
góð í henni.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna?
Freysteinn bekkjarbróðir minn er klikkað
góður í fótbolta og er 99.9999% viss um að
hann verði atvinnumaður.
Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Þegar ég keypti vatnsbyssu í frítíma og var
að leika mér að sprauta á alla. Síðan tók
vinur minn hana af mér og sprautaði á Jó-
hann kennara og lenti í vandræðum.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Ég og vinahópurinn minn erum mjög fyndin
og erum alltaf hlæjandi. Maður fær stundum
harðsperrur í magann af hlátri.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Brotlentur með Valdimar.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Butter chicken sem pabbi gerir er svo góður.
Hver er uppáhaldsbíómyndin þín?
Bibi blocksberg er uppáhaldsbarnæsk-
umynd en annars dýrka ég báðar Mamma
Mia!-myndirnar.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á
eyðieyju og hvers vegna?
Fjölskylduna, eldhús og nóg af borðspilum.
Hver er þinn helsti kostur?
Ég er mjög hugmyndarík, fyndin og ófeimin.
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að
vera með restina af ævinni, hvað myndir þú
velja?
Ég myndi vilja getað „teleportað“.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks?
Elska þegar fólk er ófeimið og vill kynnast
manni.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Ég stefni á því að fara í Kvennó og langar í
skiptinám.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það?
Ef ég þyrfti að lýsa mér í einu orði þá væri
það skellibjalla.
Reynir alltaf
að líta á björtu
hliðarnar
FS-ingur vikunnar:
Nafn: Magnús Már Newman
Aldur: 18 ára
Námsbraut: Listnámsbraut á tónlistarlínu.
Áhugamál: Tónlist, trommuleikur og fótbolti
Ungmenni vikunnar
Nafn: Hildigunnur Eir Kristjánsdóttir
Aldur: 15 ára
Skóli: Njarðvíkurskóli
Bekkur: 10. bekk
Áhugamál: Píanó, fiðla og félagsstörf
Hugmyndarík
skellibjalla
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Aðalleikararnir fremst á fjörlegu sviðinu.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
vÍkurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 11