Víkurfréttir - 09.11.2022, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Pólsk menningarhátíð verður haldin í Reykjanesbæ dagana 10. til
13. nóvember næstkomandi. Hátíðinni í ár er verkefnastýrt af Sylwiu
Zajkowsku ásamt föngulegu teymi sjálfboðaliða. Fjölbreytt dagskrá
verður í boði þar sem fjölbreytileikanum verður fagnað og innsýn
gefst í pólska menningu með skemmtilegum hætti.
Hátíðin verður sett í Bókasafni
Reykjanesbæjar á laugardaginn kl.
13:00. Við það tilefni mun pólska
sendiráðið gefa Reykjanesbæ veg-
lega bókagjöf og flutt verða atriði
af börnum í pólska móðurmáls-
skólanum.
Helstu viðburðir hátíðarinnar
verða í Bókasafni Reykjanesbæjar, í
Fjörheimum og gamla SBK húsinu í
Grófinni 2. Fjörheimar hafa skipulagt
pólska menningarviku og bjóða upp
á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá.
Í SBK húsinu verður listasýning
alla dagana og á laugardeginum
verður líflegur markaður þar sem
hægt verður að kynna sér fjöl-
breyttar vörur en einnig verður
pólskri matargerð gert hátt undir
höfði sem gestum býðst að smakka.
Aðrir viðburðir sem vert er að
nefna er núvitundargönguferð um
Njarðvíkurskóga með pólskri og
íslenskri leiðsögn um jógastöðvar
sem leikskólinn Gimli hefur komið
fyrir á svæðinu. Þar hefur Bókasafn
Reykjanesbæjar komið fyrir pólskum
ljóðum á íslensku og pólsku sem og
við heita potta í sundlaugum Reykja-
nesbæjar.
Á sunnudeginum verður boðið
upp á leiksýninguna Tíst, tíst í Duus
Safnahúsum fyrir yngri kynslóðina.
Sýningin er sýnd á þremur tungu-
málum, íslensku, ensku og pólsku.
Í SBK húsinu verður boðið upp á
vinnustofur fyrir börn og fullorðna
ásamt candyflossi og snyrtistofu
fyrir börn þar sem hægt verður að
fá andlitsmálningu og hárgreiðslu
svo eitthvað sé nefnt.
Bæjarbúar eru hvattir til að fjöl-
menna á pólska menningarhátíð.
Nánari dagskrá má finna á ís-
lensku, ensku og pólsku á
www.visitreykjanesbaer.is
Reykjanesbær hlaut viðurkenningu
Jafnvægisvogarinnar sem er hreyfi-
aflsverkefni FKA (Félags kvenna í
atvinnurekstri) en hún var afhent
12. október.
Viðurkenningin var afhent á ráð-
stefnunni sem félagið stóð fyrir og
bar heitið „Jafnrétti er ákvörðun“.
Þar kynnti Eliza Reid, forsetafrú,
viðurkenningarhafa Jafnvægisvogar-
innar en það eru þeir þátttakendur
sem hafa náð að jafna kynjahlutfall í
efsta lagi stjórnunar (framkvæmda-
stjórn). Auk Reykjanesbæjar hlutu
59 fyrirtæki, ellefu opinberir aðilar
og fimm sveitarfélög viðurkenningu.
Þetta er í annað sinn sem Reykja-
nesbær hlýtur þessa viðurkenningu.
„Þetta er mikilvæg viðurkenning
fyrir okkur og er einn liður í jafn-
réttisstarfi okkar hjá Reykjanesbæ.
Jafnrétti er ákvörðun,“ sagði Kristinn
Óskarsson, mannauðsstjóri, sem tók
við viðurkenningunni fyrir hönd
Reykjanesbæjar. Bláa lónið og HS
veitur eru meðal fyrirtækja sem
fengu sömu viðurkenningu í ár.
Hagur ferðaþjónustunnar hefur vænkast hratt og er útlitið gott í þeim geira. Spáð er 1,7 milljónum
ferðamanna til landsins á þessu ári og tveimur milljónum á næsta ári. Fjöldinn verður þá orðinn svip-
aður og var fyrir sex árum þegar mest var. Þetta er meðal þess sem fram kom á morgunverðarfundi
Íslandsbanka í Hljómahöll nýlega.
Í máli sérfræðinga Íslandsbanka
kom fram að útlit sé fyrir að ferða-
þjónustan verði helsti vaxtabroddur
útflutningstekna þjóðarinnar á næst-
unni.
Fundur Íslandsbanka var vel
sóttur og fróðleg erindi á boð-
stólnum. Una Steinsdóttir fram-
kvæmdastjóri bankans opnaði
fundinn, en Sighvatur Ingi Gunn-
arsson útibússtjóri var fundarstjóri.
Efnahagur í aðlögun
Jón Bjarki Bentsson og Bergþóra
Baldursdóttir hagfræðingar í grein-
ingardeild bankans fóru yfir það
helsta í nýrri þjóðhagsspá bankans.
Þannig er því spáð að verðbólga hafi
náð hámarki og lækki með hægari
hækkun á íbúðaverði og stöðugra
innflutningsverðlagi. Spenna verður
áfram á vinnumarkaði og því spáð
að kaupmáttur launa vaxi á nýju ári.
Spáð er að stýrivextir fari í allt að
sex prósent fyrir árslok en fari svo
hægt lækkandi frá miðju ári 2023.
Íbúðaverð mun kólna allhratt á
næstu mánuðum samkvæmt spá
Greiningar Íslandsbanka en verði
vonandi komið í jafnvægi um mitt
næsta ár. Spáð er 11,6% hækkun
íbúðaverðs á þessu ári sem er að
mestu komin fram og raunverðs-
hækkun á næsta ári verði um 0,8%.
Spá bankans í heild sinni má nálgast
á heimasíðu bankans, islandsbanki.
is.
Vöxtur hjá Blue Car Rental
Á fundinum fór Magnús Sverrir Þor-
steinsson, forstjóri Blue Car Rental,
yfir rekstur félagsins undanfarin ár.
Í dag er Blue Car Rental með um
2.500 bíla í rekstri og er því ein
sú stærsta á landinu. Um hundrað
manns starfa hjá félaginu á fimm
starfsstöðvum, í Reykjanesbæ og í
Reykjavík.
Félagið rekur viðgerða- og þjón-
ustuverkstæði ásamt dekkjaverk-
stæði, sprautuverkstæði og rúðu-
verkstæði. Í vor var svo opnuð ný
þvottastöð við Blikavelli en félagið
tekur á móti vel yfir 100.000 ferða-
mönnum á hverju ári.
Fram kom í máli Magnúsar Sverris
að Blue Car Rental skilgreini sig sem
stórfyrirtæki í ferðaþjónustu enda
hafi mikil sérþekking myndast hjá fé-
laginu. Félagið hafi skapað sér skýra
sýn á hvað það vill standa fyrir. Þar
er viðskiptavinurinn settur í fyrsta
sæti, en til marks um það hafi fyrir-
tækið meðal annars fjárfest gríðar-
lega í snertilausum- og stafrænum
lausnum til að hámarka jákvæða
upplifun viðskiptavina.
Covid-19 gerði félaginu erfitt fyrir
og fór Magnús yfir þær fjölmörgu
áskoranir sem félagið stóð frammi
fyrir í mjög flóknu rekstrarumhverfi.
En þrátt fyrir erfið ár var Magnús
bjartsýnn á komandi tíma, sér í lagi
í ljósi spá Greiningar Íslandsbanka
um fjölgun ferðamanna á næsta ári.
Líflegar umræður voru á morgunverðarfundi bankans í Hljómahöll.
Íbúðaverð og verðbólga munu lækka. Fjörlegar umræður
á efnahagsfundi Íslandsbanka í Reykjanesbæ.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Ferðaþjónustan verður
helsti vaxtarbroddurinn
Reykjanesbær hlýtur viðurkenningu
Jafnvægisvogarinnar 2022
Pólsk menningar-
hátíð í Reykjanesbæ
10. til 13. nóvember 2022
Hátíðin verður sett í Bókasafni Reykjanesbæjar á laugardaginn
2 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM