Víkurfréttir - 09.11.2022, Side 4
Krissi átti 35 ára starfsafmæli þann 1. nóvember síðastliðinn og í tilefni dagsins veitti Samtakahópurinn,
þverfaglegur forvarnarhópur sem vinnur að forvörnum fyrir ungmenni í Reykjanesbæ, honum blóm-
vönd, viðurkenningu og veitingar fyrir vel unnin störf. „Þetta var virkilega skemmtilegt og óvænt, ég
var pínu meyr. Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig persónulega en þakklæti er mér fyrst og fremst
efst í huga,“ segir Krissi.
Krissi hefur starfað sem lögregla á
Suðurnesjum í 35 ár og flestir bæjar-
búar Reykjanesbæjar þekkja hann
best með Lúlla löggubangsa sér við
hlið. Forvarnarmál eru honum hug-
leikin og hefur hann verið í Samtaka-
hópnum frá því hann var stofnaður.
Hann segir mikið hafa breyst á þeim
árum sem hann hefur starfað sem
lögregla.
segir Kristján Freyr Geirsson, eða Krissi lögga eins og hann er oftast kallaður
Löggustarfið er lífsstíll
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í
lögregluna til að byrja með?
„Ég var tvítugur ungur forvitinn
maður með sítt að aftan – langaði
bara að prófa.“
Ef þú horfir til baka, hvað stendur
helst upp úr eftir allan þennan tíma
í þessu starfi?
„Þakklæti fyrir að hafa ákveðið að
prófa. Lögreglustarfið er allskonar
og mikil lífsreynsla sem felst í því
að starfa við þetta. Löggustarfið er
þannig að maður veit ekki hvað hver
dagur ber í skauti sér. Annars er það
líka að gefa af sér til samfélagsins og
láta gott af sér leiða.“
Hafa orðið einhverjar breytingar á
starfinu á þessum 35 árum?
„Lögreglustarfið hefur á þessum
tíma tekið miklum breytingum. Í dag
er miklu meira í boði, meira áreiti,
hraði, harka og heimurinn er gal-
opinn fyrir öllu - sem er bæði gott og
slæmt. Það er allt öðruvísi að alast
upp í þessum heimi í dag en var hér
áður þegar ég var að alast upp.“
Hver er lykillinn, hvað þarf til þess
að endast í starfi eins og þessu?
„Þetta er hugsjónarstarf. Lögg-
ustarfið er lífsstíll, en til að endast
svona í starfi þá er lykillinn sá að
hafa brennandi áhuga á vinnunni
sinni og að finna að þú sért að gera
eitthvað rétt og láta gott af þér leiða.
Ef þú finnur það á samstarfsfólkinu
þínu og samfélaginu þá líður þér vel
í hjartanu.“
Með leikskólabörnum við leikskólann Gimli í Njarðvík í maí árið 1996. Krissi lögga á mótorhjólinu árið 2007.
Krissi lögga og Lúlli löggubangsi
hafa átt samleið í mörg ár.
Betsý Ásta Stefánsdóttir veitti Krissa viðurkenningu fyrir hönd
ungmennaráðs Reykjanesbæjar og Gunnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður
Fjörheima, og Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Reykjanesbæjar, gáfu Krissa blóm fyrir hönd Samtakahópsins.
HAFNARGÖTU 29 / SÍMI 421 8585
Skóbúðin er 20 ára
Við erum í afmælisskapi og bjóðum
20% afslátt af öllum skóm og
40% af völdum vörum
dagana 10. til 12. nóvember.
Kaffi á könnunni
og allir viðskiptavinir fara í pott
sem við drögum út gjafabréf í Skóbúðinni.
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM