Víkurfréttir - 09.11.2022, Blaðsíða 6
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Gengur hratt á kvótann
Þá er nóvembermánuður gengin í
garð og hann byrjar bara nokkuð
vel því að nokkuð hefur þeim
fjölgað línubátunum sem róa frá
Suðurnesjum. Reyndar er enginn
af 30 tonna bátunum kominn suður
og þeir eru flestir á Austfjörðum, t.d
allir Einhamarsbátarnir. Óli á Stað
GK er fyrir norðan á Siglufirði.
Október var mjög góður hjá línu-
bátunum og tveir stóru línubátar
frá Grindavík náðu yfir 500 tonnin,
Sighvatur GK var með 519 tonn í
fjórum róðrum og Fjölnir GK 510
tonn í fimm. Reyndar var Sighvatur
GK ekki aflahæstur því Tjaldur SH
frá Rifi var hæstur með 576 tonn
í fimm róðrum. Valdimar GK var
með 480 tonn í fimm.
Af 30 tonna bátunum voru átta
bátar sem yfir 200 tonnin náðu
en enginn af þeim var frá Suður-
nesjum. Auður Vésteins SU var
hæstur af þeim með 191 tonn í
sextán róðrum, Gísli Súrsson GK
var með 162 tonn í fimmtán, Óli á
Stað GK 134 tonn í tuttugu róðrum,
Sævík GK 118 tonn í átján róðrum
og Hulda GK 100 tonn í fjórtán.
Af minni bátunum var Margrét
GK hæstur með 177 tonn í 21 róðri
og það má geta þess að báturinn
endaði október í Sandgerði og
landaði þar 19,3 tonnum í tveimur
róðrum og núna í nóvember hefur
Margrét GK landað 16,1 tonn í
tveimur róðrum í Sandgerði.
Daðey GK með 106 tonn í sautján
og hann er kominn til Grindavíkur
og hefur landað þar níu tonnum
í tveimur róðrum. Sömuleiðis er
Sævík GK kominn til Grindavíkur
og hefur landað þar 13,3 tonn í
tveimur róðrum.
Reyndar þegar þessi pistill var
skrifaður þá landaði Sævík GK í
Sandgerði. Á línumiðunum fyrir
utan Sandgerði var bátur frá Rifi
á veiðum sem heitir Særíf SH og
hann landaði í Hafnarfirði 16,1 tonni
og þegar þessi pistill er skrifaður þá
er Særif SH á leið til Rifs með full-
fermi en báturinn var með tvær
lagnir.
Hjá dragnótabátunum var Sigur-
fari GK með 211 tonn í október og
var næstaflahæstur allra báta í
október, núna í nóvember þá byrjar
veiðin rólega með fimmtán tonn í
þremur róðrum.
Hjá togurnum átti Sóley Sigur-
jóns GK ansi góðan október því að
aflinn hjá honum var 602 tonn í sex
túrum og var öllu landað á Siglu-
firði. Vörður ÞH var með 427 tonn
í sex róðrum, Áskell ÞH 415 tonn
í sjö, Sturla GK 395 tonn í átta og
Pálína Þórunn GK 303 tonn í sex.
Þessir fjórir síðastnefndu lönduðu
hluta af aflanum í heimahöfnum
sínum, Grindavík og Sandgerði, og
restinni var landað t.d. á Eskifirði,
Grundarfirði, Djúpavogi og Siglu-
firði.
Reyndar vekur þessi mikli afli
í október spurningu um hvað
verður, því að kvótinn var skorinn
ansi mikið niður og í svona mok-
veiði gengur hratt á kvótann. Því
verður fróðlegt eða dapurlegt að
sjá hvernig vetrarvertíðin 2023
verður, því það má alveg búast við
því að einhverjir bátar eða togbátar
þurfi að hægja á sér útaf kvótaleysi,
sérstaklega eftir svona góða veiði
um haustið 2022, eins og er í gangi
núna.
aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Margrét Írena nýr útibússtjóri
hjá Sjóvá Reykjanesbæ
Margrét Írena Ágústsdóttir var nýverið ráðin útibússtjóri hjá Sjóvá í
Reykjanesbæ og hóf hún störf í byrjun september. Margrét Írena býr yfir
yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á sviði trygginga og þjónustu þeim
tengdum en hún hefur starfað hjá Sjóvá í þrettán ár. Hún segist full til-
hlökkunar að takast á við nýja starfið.
„Ég er afar þakklát fyrir að fá þetta
tækifæri til að starfa með þeim frá-
bæra hópi sem vinnur hjá Sjóvá í
Reykjanesbæ. Ég þekki starfsfólk
útibúsins vel í gegnum fyrri störf
mín og veit hvað það leggur mikinn
metnað í að veita viðskiptavinum
okkar á Suðurnesjum framúrskar-
andi þjónustu. Það er jú í takt við
áherslur okkar hjá Sjóvá um land allt,
enda höfum við verið efst í Íslensku
ánægjuvoginni heil fimm ár í röð,“
segir Margrét.
Hjá Sjóvá Reykjanesbæ starfa auk
Margrétar þau Ingibjörg Óskars-
dóttir, þjónustustjóri, Kristín Gyða
Njálsdóttir, ráðgjafi, og Maciej Stan-
islaw Baginski, ráðgjafi, auk þess
sem Sigurbjörn Gústavsson sinnir
fasteignaskoðunum á svæðinu. Þá
starfar Gunnar Már Gunnarsson sem
umboðsmaður Sjóvá í Grindavík.
Útibúið í Reykjanesbæ er til húsa
á Hafnargötu 36 og segir Margrét
ánægjulegt hversu margir koma við
hjá þeim, ýmist til að leita ráðgjafar,
tilkynna tjón eða einfaldlega til að
spjalla yfir kaffibolla. „Það eru þessi
daglegu samskipti við viðskiptavini
sem gera þetta starf svo gefandi og
það hefur verið virkilega gaman
að kynnast þeim viðskiptavinum
sem hafa komið eða haft samband
við útibúið frá því að ég hóf störf.
Starfsemi útibúsins hefur farið
vaxandi að undanförnum árum,
bæði í takt við fjölgun íbúa hér og
svo finnum við líka að fólk kann að
meta áherslur okkar þjónustu. Það á
bæði við snögga og góða þjónustu ef
til tjóns kemur en einnig við ráðgjöf,
og gildir þetta jafnt um einstaklinga
og fyrirtæki.“
Margrét Írena er með BSc gráðu í
viðskiptafræði og hefur einnig lokið
diplómanámi í afbrotafræði við Há-
skóla Íslands. Hún er í sambúð með
Orra Morthens og eiga þau tvær
dætur.
Starfsfólk Sjóvár í Reykjanesbæ. VF/Hilmar Bragi Skátasystur hlutu forsetamerki
Tvær systur úr skátafélaginu Heiðabúum í Reykjanesbæ, systurnar Guð-
björg Viðja og Sigurbjörg Erla Pétursdætur Biering, hlutu forsetamerki
Bandalags íslenskra skáta við formlega athöfn að Bessastöðum nýlega.
Í forsetamerkinu sameinast gildi
skátahreyfingunnar um eflingu
einstaklingsins og þess að gera sitt
besta samfélaginu til heilla.
Til þess að vinna að forseta-
merkinu þurfa skátar að stunda
kröftugt skátastarf í þrjú ár þar
sem meðal annars reynir á leiðtoga-
þjálfun, fjallamennsku, sjálfboðaliða-
störf í þágu samfélagsins og þjálfun
í verklegum þáttum eins og skyndi-
hjálp, skipulagningu ferða og fram-
kvæmd viðburða. Verkefnin hafa
mörg hver tengsl við heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna.
Að þessu sinni hlutu tíu skátar á
aldrinum átján til tuttugu ára silfur-
nælu sem forseti Íslands, verndari
skátahreyfingarinnar, hefur afhent
árlega síðan 1965.
Ljósmynd/Rita Osório
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM