Víkurfréttir


Víkurfréttir - 09.11.2022, Síða 10

Víkurfréttir - 09.11.2022, Síða 10
GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is „Ég byrjaði ungur á sjónum fljótlega eftir gagnfræðaskólann eins og margir Grindvíkingar en eftir nokkur ár þar ákvað ég að mennta mig,“ segir Hermann Waldorff sem á og rekur fyrirtækið Pesca Iceland í Grindavík ásamt eiginkonu sinni, Dóru Birnu Jónsdóttur, og syninum Ingimar Waldorff. Pesca, sem hét í byrjun Sílfell, nýtir aukaafurðirnar af fiskinum, þá helst gellur, lundir, kinnfisk og sundmaga, enda eru einkunnarorðin í vinnsl- unni hjá þeim „molar eru líka brauð“. Fín búbót undanfarin ár hefur verið að flaka fisk fyrir aðra en þannig nær fyrirtækið að hafa nóg fyrir stafni. Framlegðin út úr hverju kílói er kannski ekki mikil en þegar safnast saman þá getur niðurstaðan orðið góð og það á svo sannarlega við hjá grindvíska fjölskyldufyrirtækinu. Góður tími á sjónum Hermann fór í fiskvinnsluskólann þegar hann var 24 ára gamall. „Ég kláraði námið og réði mig í fram- haldinu sem verkstjóra hjá Hrað- frystihúsi Stöðvarfjarðar, seinna bauðst mér svo verkstjórastaða hjá Þorbirni hér í Grindavík sem starf- rækti á þeim tíma rækjuvinnslu, síldarsöltun og bolfiskvinnslu. Þor- björn keypti síðan frystitogarann Hrafn Sveinbjarnarson og ég var beðinn um að fara einn túr sem vinnslustjóri og kenna strákunum réttu vinnubrögðin við frystinguna þar sem ég hafði áður verið verk- stjóri í frystihúsi. En það teygðist á þessum túr, ég kom ekki í land fyrr en fimmtán árum síðar. Annað hvort var ég svona lélegur kennari eða mannskapurinn lélegur að læra,“ segir Hermann kíminn en bætir við að sjórinn hafi alltaf togað og þetta hafi verið frábærir strákar og góður tími á sjónum. Árið 2004 kom Hermann svo í land, byrjaði að vinna sem smiður en fiskurinn togaði alltaf og áður en hann vissi af var hann farinn að gella á kvöldin og selja veitingastöðum. „Ég keypti hráefnið af Þorbirni og fékk aðstöðu þar til að vinna og sá fljótlega að ég gæti einfaldlega haft lifibrauð af þessu og stofnaði fyrir- tækið Sílfell ásamt Dóru. Við gell- uðum og keyptum gellur alls staðar af landinu og vorum með töluverðan mannskap til að byrja með og þegar mest var þá fluttum við út hátt í 200 tonn af gellum á ári ásamt öðrum aukaafurðum en umfangið er minna í dag, það er einfaldlega orðið erfiðara að ná í hráefni. Sú breyting hefur líka orðið að við gellum nánast ekkert hér í húsinu heldur kaupum við gellur, lundir og fleira af öðrum fiskvinnsluhúsum en við sjáum síðan um að verka hráefnið, pakka og flytja út ferskt og saltað. Þetta er samvinna sem hentar mörgum fisk- vinnsluhúsum og fyrir vikið nýtist hráefnið betur og allt verður að út- flutningsvöru.“ Nýtt nafn og ný tækifæri Sílfell hafði fest kaup á núverandi húsnæði en það var notað undir umbúðir og fleira en svo var ákveðið að stækka það að aftan með stórum kæli og starfsemin öll flutt þangað fyrir fjórum árum. „Á sama tíma breyttum við vörumerkinu yfir í Pesca en Sílfell á húsnæðið. Pesca er með reksturinn á sinni könnu, við teljum þetta gott snið og á þessum tímamótum kom Ingimar sonur okkar inn sem 50% eigandi í Pesca. Pesca þýðir veiðar og teljum við nafnið eiga vel við á þeim mörk- uðum sem við seljum til, mun þjálla fyrir útlendingana en Sílfell. Þar sem hráefnisöflun er orðin erf- iðari en hún var þá sáu feðgarnir sér leik á borði og fjárfestu í flökunarvél, hausara, roðflettivél og snyrtilínu. „Við byrjuðum fyrir tveimur árum að verka fyrir aðra, þar sem fiskur kemur í húsnæðið til okkar og við flökum. Gott ef við erum ekki bara að nota gömlu flökunarvélina úr Hrafni Sveinbjarnar síðan forðum en það er mjög gott að fá þessi verk- efni. Þá kemur fiskurinn einfaldlega til okkar, við flökum hann, snyrtum og pökkum, síðan eru flökin sótt til okkar. Stundum er þetta alla daga vikunnar og þá byrjum við snemma á morgnana. Svona nýtist mann- skapurinn vel og ef við erum ekki að flaka þá byrjum við venjulega klukkan átta og ljúkum oftast vinnu um klukkan fimm en auðvitað kemur fyrir að við vinnum fram eftir.“ Jólasíld afhend á aðfangadegi Um tíma gerði Hermann líka góm- sæta jólasíld og voru vinsældirnar orðnar slíkar að stundum var pantað á ókristilegum tíma. „Þetta var orðin ansi mikil vinna og þegar áreitið náði eitt sinn hámarki á sjálfum að- fangadegi jóla, þá fannst mér orðið tímabært að ljúka þeim kafla og ein- falda hlutina. Við seljum nánast allar okkar afurðir í dag til útlanda, mest til Spánar og Portúgals. Nánast dag- lega sendum við frá okkur ferska eða saltaða vöru.“ Hermann er sáttur við stöðuna í dag. „Þetta rúllar fínt í dag, okkur þykir þetta þægilegt. Við erum í minna húsnæði en við vorum, þurfum ekki stærra þar sem okkur vantar í raun meira hráefni. Við höfum góða atvinnu af þessu, erum fjórir að vinna, stundum sex og sjáum ekki fyrir okkar stórkostlegar breytingar á næstunni,“ sagði Her- mann að lokum. MOLAR ERU LÍKA BRAUÐ Fiskurinn togaði alltaf í Hermann Waldorff í fjölskyldufyrirtækinu Pesca í Grindavík sem vinnur gellur og aðrar aukaafurðir fisksins. Gellur tilbúnar til útflutnings. Hermann við gömlu góðu flökunarvélina. Gellur í saltpækli. Hermann og Dóra. Hermann flytur flestar afurðirnar sjálfur upp á flugvöll. Bræðurnir Damian og Arkadiusz Piaskowski. Ingimar Waldorf. Ein milljón í gjöf og jólabingó Kvenfélag Grindavíkur afhendi sóknarnefnd Grindavíkurkirkju eina milljón að gjöf á dögunum en endurbætur á Grindavíkurkirkju standa nú yfir og því kemur gjöfin sér mjög vel. Kvenfélag Grindavíkur er einkar duglegt að safna fjármunum fyrir þörf málefni en hvernig fara grind- vísku konurnar að því að safna þessum fjármunum? T.d. með jóla- bingói sem einmitt fer fram núna á sunnudag, 13. nóvember í Grunn- skóla Grindavíkur. Börnin kl. 14 og fullorðnir kl. 20. Kvenfélag Grindavíkur vill koma þakklæti á framfæri til þeirra fjöl- mörgu fyrirtækja sem gefa vinn- inga. Grindvíkingar og aðrir eru hvattir til að mæta og taka þátt. Formaður kvenfélagsins, Sólveig Ólafsdóttir afhenti varaformanni sóknarnefndar Grindavíkurkirkju, Guðrúnu Maríu Brynjólfsdóttur, og meðlimi nefndarinnar, Ingvari Guðjónssyni, gjöfina. 10 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.