Víkurfréttir - 09.11.2022, Síða 15
Sundfólk úr ÍRB á góðu skriði
Speedomótið
Laugardaginn 5. nóvember fór Spee-
domót ÍRB í sundi fram í Vatna-
veröld í Reykjanesbæ. Margt var um
manninn, eða 220 keppendur ásamt
foreldrum og aðstandendum, og
mjög þröngt á áhorfendapöllunum.
Mótið heppnaðist alveg frábærlega
en það er fyrir sundmenn tólf ára og
yngri og eru margir þeirra að stíga
sín fyrstu skref og aðrir að bæta sína
tíma.
Extramót SH
Viku fyrr fór Extramót SH fram í Ás-
vallalaug í Hafnarfirði og má sannar-
lega segja að sundfólk úr ÍRB hafi
náð frábærum árangri. Mjög mikið af
af bestu tímum og fjölmörg verðlaun
féllu ÍRB í skaut, í heildina vann ÍRB
68 verðlaun í þeim aldursflokkum
sem keppt var í og skiptust þau í 23
gull-, 26 silfur- og 19 bronsverðlaun.
Þá voru þrír sundkappar ÍRB
á meðal stigahæstu sundmanna
mótsins; Sunneva Bergmann Ás-
björnsdóttir varð í fjórða sæti og Eva
Margrét Falsdóttir varð í sjötta sæti
yfir stigahæstu konurnar og Fannar
Snævar Hauksson varð síðan fimmti
stigahæsti karlinn.
Sunneva Bergmann Ásbjörns-
dóttir fékk einnig verðlaun fyrir
mestu bætingu á milli móta í 800
metra skriðsundi.
Þrír sundmenn syntu undir NM-
lágmörkum.
Sunneva Bergmann Ásbjörns-
dóttir náði A-lágmarki í 800 metra
skriðsundi og B-lágmarki í 400
metra skriðsundi.
Eva Margrét Falsdóttir náði B-lág-
marki í 400 metra og 200 metra
fjórsundi.
Fannar Snævar Hauksson náði
B-lágmarki í 50 metra flugsundi.
VÉLSTJÓRI Í FISKVINNSLU
Vísir hf. óskar eftir að ráða vélstjóra í fiskvinnslur fyrir-
tækisins. Leitað er að drífandi manneskju með fjöl-
breytta reynslu í viðhaldsteymi fyrirtækisins. Um er að
ræða 100% starf.
Þar fer fram reglubundið viðhald á vélum og búnaði vinnslna. Um er
að ræða fjölbreytt og spennandi starf.
Vísir hf. er rótgróið, kröftugt og framsækið íslenskt sjávarútvegsfyrir-
tæki þar sem öll áhersla er lögð á ábyrgar veiðar, hátæknivinnslu og
vörugæði. Vísir hefur í 57 ár notið mikillar gæfu og haft á að skipa
metnaðarfullu og tryggu starfsfólki – mannauður fyrirtækisins er
lykillinn að farsælum rekstri.
Helstu verkefni og ábyrgð
n Að halda vélum og búnaði í fullkomnu ástandi
n Daglegt viðhald á frysti- og kælikerfum
Menntunar- og hæfniskröfur
n Vélstjóramenntun, rafvirkjun eða Baader maður
(sveinspróf í iðngrein). Starfsreynsla æskileg.
n Þekking á vinnslubúnaði æskileg.
n Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
n Góð almenn tölvunotkun.
n Samskiptafærni og hæfni til að vinna í hóp.
Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvember 2022.
Umsóknir sendast á umsokn@visirhf.is
Umsóknum skal fylgja ferilskrá.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns, til að sækja um.
Störf hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Akurskóli – Umsjónarkennari á yngsta stigi
Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
Heiðarskóli – Starfsmaður skóla
Stapaskóli - Náms- og starfsráðgjafi
Stapaskóli -Kennari á leikskólastig
Umhverfissvið - Sjálfbærnifulltrúi
Umhverfissvið - Verkefnisstjóri fráveitu
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Gott gengi á Íslandsmótinu í glímu
Glímufólk úr Reykjanesbæ stóð sig
vel á Íslandsmótinu í Glímu sem
fram fór á Mývatni um helgina.
Lena Anrejenko varð önnur í
flokki ellefu til tólf ára og liðsfélagi
hennar, Rannveig Unnur Hafþórs-
dóttir, varð þriðja.
Mariam Badawy hreppti svo
Íslandsmeistararititilinn í flokki
þrettán til fjórtán ára stúlkna. Hún
gerði sér svo lítið fyrir og sigraði
einnig opinn flokk unglinga.
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, annar
yfirþjálfara deildarinnar, sigraði
-74 kg flokk kvenna og varð önnur
í opnum flokki kvenna.
Helgi Þór Guðmundsson varð
svo Íslandsmeistari drengja í flokki
þrettán til fjórtán ára og Jóhannes
Reykdal Pálsson krækti svo í þriðja
sætið í opnum flokki unglinga
Margt var um manninn á áhorfendapöllum Vatnaveraldar þegar 220 keppendur
og aðstandendur þeirra mættu á Speedomótið um síðustu helgi.
Hressir sundkappar á
verðlaunapalli á Speedomótinu.
Flottir fulltrúar glímudeildar Njarðvíkur. Mynd/Facebook-síða deildarinnar
Þrír sundmenn bættust
inn í landsliðshópa SSÍ
Katla María Brynjarsdóttir náði
lágmörkum inn í unglingahóp
Sundsambands Íslands [SSÍ] og
Árni Þór Pálmason og Elísabet
Arnoddsdóttir náðu inn í fram-
tíðarhóp SSÍ. Á þessum tíma-
punkti eru átta sundmenn ÍRB
í hinum ýmsu afrekshópum SSÍ.
vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM // 15