Rökkur - 01.09.1926, Page 85
83
Fór eg með hana til baka aftur, og
áttum við erfitt með að hemja hana hjá
ketlingunum. Gátum við ekki Iátið hana
út svo að við ættum ekki í löngum elt-
ingaleik með að koma henni aftur ofan
i kassann. — Er við vorum búin að
vera um tvær vikur á ferðinni, og
vorum komin á annað hundrað mílur
að heiman, lofuðum við kisu út. Leið
ekki á löngu þar til hún var horfin, og
gátum við ekki fundið hana, hvernig
sem við reyndum, og urðum að fara
án hennar. Þar var hús svo sem fjórð-
ung úr mílu frá þeim stað, þar sem við
áðum, og fórum við þangað, en urðum
einskis varir.
Tveimur árum síðar gistum við i
húsi þessu og spurðum þar eftir kisu
og var okkur þá sagt: að köttur hefði
komið þar og verið að snuðra á milli
hænu-unga, hélt fólkið að það væri í
illum tilgangi, svo kisa var skotin.