Rökkur - 01.09.1940, Blaðsíða 13

Rökkur - 01.09.1940, Blaðsíða 13
R Ö K K U R 141 þjóta upp í dauðans ofboði, en sannleikurinn var sá, að eg stóð þarna eins og rigneg'ld — og mér fanst hjartað i brjósti mínu vera hætt að slá. Eg man hversu alt var hljótt — man að eg lagði kertastjakann frá mér. Eg sá tvær hendur yfir postulínsskálinni. Það var alt og sumt —- tvær litlar hendur — barnshendur. Eg sá ekki nema hendurnar og ölnliðina — og svo — ekkert. Þessar litlu hend- ur voru á einlægu iði — það var eins og barn stæði þarna við skálina og væir að þvo sér um hendurnar, en ekkert sást nema þær. Eg sá vatnið huna á þær — ekki gegnum þær — huna á þær eins og liendur lifandi veru. Þetta voru hendur lítillar stúlku. Eg sá það undir eins. Eg var alveg viss — það er auðvelt að sjá livort um hendur drengs eða telpu er að ræða. Og stúlkur þvo sér öðruvísi um hendurnar. Eg sá þetta alt í einni svipan — áður en kertastjakinn datt á gólfið, því að eg hafði sett liann of tæpt á brún- ina á hárri dragkistu, sem þarna var. Næstu augnablik — þarna í myrkrinu — leið mér ekki sem best. Það verð eg að viðurkenna. Þótt ein- kennilegt kunni að þykja var sú hugsun efst í liuga mér, að loka krananum, áður en eg færi upp. Mér fanst eg verða að gera það. Eg varð að safna öllu hugrekki mínu til þess, og um leið og andvarp leið frá brjósti mínu lokaði eg kran- anum — og flýði upp sem fætur toguðu. Það var lcomið undir dögun. Undir eins og fór að roða af degi fór eg í bað, klæddi mig og fór niður. Og þarna — við búrdyrnar, stóð frú Carkeek, með kertastjakann i hendinni. „Ó,“ sagði eg, „þér tókuð hann upp?“ Við horfðumst í augu. Það var augljóst, að frú Carkeek ætlaðist til, að eg byrjaði, og þar sem eg var staðráðin i að vita alt af létta, þá sagði eg:

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.