Rökkur - 01.09.1940, Qupperneq 16

Rökkur - 01.09.1940, Qupperneq 16
144 R 0 K Ií U R yður, eg veit, að hún gerir það. Og hugleiðið hvernig henni mundi líða, ef nýir leigjendur kæmi, kannske misendisfólk. Því að hún getur ekki farið héðan. Hún hefir verið hér alt síðan er faðir hennar seldi liúsið. Hann dó skömmu síðar. Þér megið ekki fara.“ Nú var það svo, að eg hai'ði tekið ákvörðun um að fara, en alt í einu fanst mér, að það væri skammarlegt af mér. „Það er ekkert að óttast, þegar alt kemur til alls,“ sagði eg. „Það er alveg satt. Ekkert að óttast. Eg held nú fyrir mitt leyti, að þetta sé ekkert óalgengt. Móðir mín sagði mér frá því, að það hefði verið algengt á bæjunum i sveitinni í ungdæmi henn- ar, að öll gólf liefði verið sópuð að næturlagi og sandur borinn á þau, pottar hreinsaðir og pönn- ur, meðan vinnukonurnar sváfu, og var svo sagt, að þetta liefði huldufólkið gert. En við vitum betur, ungfrú góð, og nú getum við varðveiit leyndarmálið og sofið rólega. Og ef við heyrum eitthvað segjum við bara: Guð blessi Margréti litlu, og höllum okkur út af aftur.“ Eg var þrjú ár í Tresillack og allan þann tima varðveittum við frú Carkeek leyndarmálið. Og eg þori að fullyrða, að sjaldan eða aldrei hafi tvær sambýliskonur notið eins mikillar ástar og umönnunar og við. Þessi ásthugur ósýnilegrar veru hafði sömu áhrif á mig Qg fagur söngur. Hendur þessarar veru struku svæfil minn, hagræddu rósum mín- um. Hann var hjá mér, er eg sá rósirnar í garði mínum lyfta höfði. Hann var hjá mér, er eg sat við arininn og horfði á glæðnrnar. Frli. Útgefandi: Axel Thorsteinson. Afgreiðsla: í Félagsprentsmiðjuhúsinu, opin 9—11.

x

Rökkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.